Fotbolti.net
Besta deildin
Gylfi Már Þórðarson
Besta karla
Eikarvöllurinn
Rigning og 5 m/s
Breiðablik
Breiðablik
2 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 124' Alpha ContehJónatan Guðni Arnarsson 57'1 - 1Kristinn Jónsson 89'2 - 1
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 588
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Blikar fara með sigur af hólmi
Keflvíkingar geta verið ansi svekktir, þeir sýndu góða frammistöðu lungan af leiknum en það er ekki spurt að því.

Stigin þrjú fara í Kópavoginn.

Skýrsla og viðtöl koma í kvöld
94. mín
Aftur setja Keflvíkingar boltann í netið!
En Arnar dómari segir að Eiður Orri hafi brotið á Kristni Jónssyni í aðdragandanum.
93. mín
Aukaspyrna úti vinstra megin
Fínasti bolti frá Muhamed Alghoul inn á teig Blika en enginn Keflvíkingur til að taka á móti
Breiðablik
92. mín
Fyrir brot á Alpha

Arnór Gauti Jónsson

91. mín
588 manns á Eikarvellinum í kvöld
90. mín
+4
Fjórum mínútum bætt við
Breiðablik
89. mín
Kristinn Jónsson!

Kristinn Jónsson (stoðsending: Dagur Örn Fjeldsted)

Það er ekki annað hægt að segja en að þetta hafi legið í loftinu.

Kristinn Jónsson fær boltann í teignum og á fast skot í fjærhornið sem Ásgeir kemur engum vörnum við.

Fjærhornið er að gefa í kvöld.
88. mín
Blikar mun líklegri
þessa stundina að setja sigurmark
86. mín
Keflvíkingar kærulausir!
Ásgeir er kominn langt úr marki sínu og gefur á samherja sem á afleita sendingu sem sóknarmaður Blika kemst inn í. Sem betur fer fyrir Keflvíkinga er Ásgeir á tánum og nær að tækla hann af tám fremsta manns Blika
Breiðablik
83. mín
InnAnton Logi Lúðvíksson
ÚtGabríel Snær Hallsson
Síðasta skipting Blika
Keflavík
82. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
Keflvíkingar gera sína síðustu breytingu
80. mín
10 mínútur eftir af þessu
Fáum við sigurmark?

Blikar fá allavega horn..

...sem ekkert verður úr
76. mín
Enn af Alpha Conteh
Eiður Orri með sendingu á fjær, aðeins of innarlega fyrir Alpha sem náði þó að setja tá á boltann og stýra honum í hliðarnetið utanvert.
75. mín
Flott sókn Keflavíkur
Langur bolti úr vörninni sem Stefan Ljubicic "kassars" á Muhamed Alghoul. Hann rekur boltann og gefur á Eið Orra sem á skot sem Anton ver vel.
Keflavík
74. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtSindri Snær Magnússon
72. mín
Blikar mun ákveðnari þessa stundina
Sækja mun meira að marki en gestirnir úr Keflavík
Breiðablik
70. mín
InnÞór Andersen Willumsson
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
67. mín
Horn fyrir Blika
Ágúst Orri átti fína fyrirgjöf fyrir markið sem Brigic hreinar í horn.
64. mín
Það er að hitna í kolunum
Menn eru að kasta sér í tæklingar og láta finna fyrir sér.
Keflavík
63. mín
InnEiður Orri Ragnarsson
ÚtMarin Mudrazija
Fyrsta skipting Keflavíkur
62. mín
Hörkuskot!
Keflavík eiga frábært skot fyrir utan teig. Anton ver í horn

Blikar skalla frá
61. mín
Blikar sækja í sig veðrið
Pressa hátt á vellinum og vinna horn

Ekkert kom úr því
Breiðablik
60. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtDavíð Ingvarsson
Tvöföld breyting Blika
Breiðablik
60. mín
InnKristinn Jónsson
ÚtViktor Karl Einarsson
Tvöföld breyting Blika
58. mín
Alpha Conteh reynir skot
En skotið hans er laust og beint á Anton
Breiðablik
57. mín
Blikar jafna!

Jónatan Guðni Arnarsson

Uppúr engu! Jónatan Guðni fær boltann utarlega í teignum vinstra megin og klínir boltanum í fjærhornið.

Allt orðið jafnt og Keflvíkingar naga sig í handarbökin að vera ekki búnir bæta í forustuna.
55. mín
Marin Mudrazija liggur
og þarfnast aðhlynningar... eða hvað? Arnar dómari hleypir ekki sjúkraþjálfara Keflvíkinga inná en skipar Marin að fara af vellinum.
53. mín
Hætta við mark Keflavíkur
Ágúst Orri vinnur boltann af Antoni Kralj úti við hliðarlínu og á eitraðan bolta fyrir teig Keflavíkur en fór þvert í gegnum teiginn.
50. mín
Blikar bíta frá sér
Ágætis spil Blika sem endar með því að Viktor Karl fær boltann fyrir utan teig og reynir skot. Ásgeir ver í horn.
49. mín
Hvað var þetta!?
Ótrúlega furðurleg sending Antons úr markspyrnu sem Keflvíkingar komast inn í, inni í vítateig Blika. Sóknarmenn Keflavíkur voru jafnundrandi og ég náðu ekki að gera sér mat úr þessu
48. mín
Nú er það Stefan Ljubicic
Alpha Conteh fær boltann úti vinstra megin sendir boltann inn á Ljubicic sem skýtur framhjá
46. mín
Keflvíkingar halda uppteknum hætti
Þórlakur Breki Baxter vinnur boltann á miðjum vallarhelmingi Blika, rekur boltann að vítateignum og á skot að marki sem Anton ver.
46. mín
Komið aftur í gang
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við
Frábær fyrri hálfleikur að baki - Tökum okkur fimmtán mínútur
40. mín
Hætta eftir hornspyrnu
Ívar Örn Árnason átti skalla rétt framhjá markinu eftir hornspyrnu.

Blikar hafa tekið því ansi persónulega þegar ég sagði að Keflvíkingar stýrðu þessum leik frá A-Ö
38. mín
Blikar í dauðafæri!
Þetta er fljótt að gerast þessar mínútur

Blikar geystust upp völlinn og áttu góða fyrirgjöf fyrir markið. Ásgeir markvörður var kominn svolítið frá marki sínu þegar Keflvíkingar hreinsa en alls ekki langt og lá boltinn dauður í teig Keflavíkur. Þeim var til happs að enginn græn treyja var nálægt og náðu að hreinsa betur frá.
38. mín
Nú vilja Keflvíkingar fá víti
Þeir töldu brotið á Stefani Ljubicic en enn neitar Arnar að dæma víti.
37. mín
Marin Brigic með skot að marki
Brigic kominn á framandi slóðir í teig Blika og á ansi slakt skot framhjá.

Keflvíkingar stýra þessum leik frá A-Ö
34. mín
Þetta var aldrei rangstaða
Risastór mistök hjá dómarateyminu. Marin Mudrazija var talsvert langt frá því að vera rangstæður í þessu atviki þegar Kristján Már Ólafsson aðstoðardómari lyfti flaggi sínu.
33. mín
Keflvíkingar skora..... eeeen
Það er dæmt af vegna rangstöðu. Muhamed Alghoul tekur aukaspyrnu frá vinstri og sendir hann á nær. Þar stýrir Marin Mudrazija boltanum í netið en er dæmdur rangstæður.
Breiðablik
32. mín
Fyrsta gula í dag

Viktor Örn Margeirsson

Viktor fær það fyrir brot á Alpha Conteh.

28. mín
Ásgeir Páll með ágætis skot
Var að leita að möguleikum en fann enga, var svo allt í einu kominn á D-bogann svo hann hleður í skot en beint á Anton í markinu.
Keflavík
24. mín
Keflvíkingar taka forustu!

Alpha Conteh (stoðsending: Anton Kralj)

Það er Alpha Conteh sem brýtur ísinn! Sá ákvað bara láta vaða vel fyrir utan teig og endar boltinn í fjærhorninu! Er að skora sitt annað mark í þremur leikjum og hefur verið að spila vel að undanförnu!
19. mín
Fyrsta horn Keflavíkur
Alghoul þræðir boltann inn á Stefan Ljubicic sem á lúmskt skot á nær sem Anton ver vel í horn.
17. mín
Aftur vilja Blikar víti!
En aftur neitar Arnar dómari þeim um það.

Reyndar eftir að hafa séð endursýningu af fyrra atvikinu þá var lítið í því atviki. Svo ég treysti Arnari til að hafa gert rétt hér líka.
16. mín
Fyrsta hornið er Blika
Viktor Karl fyrirliði tekur það, varnarmenn Keflavíkur skalla boltann upp í loft og framlengja boltann á fjær. Boltinn berst til leikmanns Blika sem skýtur boltanum yfir.
14. mín
Keflvíkingar í skyndisókn
Alpha Conteh vinnur boltann á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur, stingur boltanum inn á Stefan Ljubicic sem kemur sér inn í teig Breiðabliks en þar var Ívar Örn réttur maður á réttum stað og varðist glæsilega.
13. mín
Stuðningsmenn Blika taka norska róðurinn!
Gaman að því!
8. mín
Blikar vilja víti!
Jónatan Guðni Arnarsson fellur í teignum eftir samskipti sín við Muhamed Alghoul. Arnar Þór dómari var vel staðsettur og dæmdi ekkert. Fyrir mitt leiti hér í blaðamannastúkunni þá fannst mér vera snerting.
7. mín
Fyrsta skotið er Blika
Mér sýndist það vera Gabríel Snær sem átti það, Ásgeir í markinu var vandanum vaxinn og greip boltann í annarri tilraun.
2. mín
Blikar pressa hátt á vellinum
Gefa Keflvíkingum lítinn tíma á boltanum
1. mín
Leikur hafinn
Keflvíkingar hefja leik
Muhamed Alghoul sparkar þessu af stað.

Keflvíkingar sækja í átt að Fífunni, Blikar að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Kristinn Steindórsson heiðaraður fyrir leik
Kristinn afrekaði það í síðasta leik að spila 350. leik sinn fyrir Breiðablik og fær glæsilegan verðlaunagrip frá Flosa formanni knattspyrnudeildar fyrir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Upphitun lokið og liðin komin inn í klefa
Alan Parsons Project komið á fóninn og allt að verða klárt. 5 mínútur í leik!
Fyrir leik
Búið er að rýna í kúluna fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin er dottin inn
Ein breyting á liðunum frá því í síðustu umferð

Fyrir leik
Spámaðurinn
Viðar Örn Kjartansson, sem hefur verið að leika vel með Selfossi í sumar, spáir í spilin fyrir 14. umferð Bestu deildarinnar.

Breiðablik 2 - 2 Keflavík
Dagur Ingi Valsson kemur Keflavík á bragðið í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Innbyrðis viðreignir
Samkvæmt vefsíðu KSÍ hafa þessi lið mæst 92 sinnum í mótsleik á vegum KSÍ.

Breiðablik hefur unnið 43 sigra en sá síðasti í deild var 2-1 sigur á Kópavogsvelli 2023.

Liðin hafa skilið 16 sinnum jöfn en síðasta jafnteflið kom í fyrri umferðinni á HS Orku vellinum í Keflavík á þessu ári þegar liðin skildu markalaus.

Keflavík hefur unnið 33 sigra en sá síðasti í deild kom í Pepsi Max deildinni 2021 þegar þeir unnu öflugan 2-0 heimasigur.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik hefur sótt sjö stig í síðustu fimm leikjum og hafa því aðeins verið að hiksta.
Breiðablik sótti öflugan 1-2 sigur í síðustu umferð gegn ÍA á Írskum dögum á Akranesi og slógu svo út Víkinga sannfærandi 3-0 í bikarnum í leik þar á undan. Spurning hvort hjólin séu farin að snúast fyrir Blikana fyrir seinni hlutan á þessu móti?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflavík
Keflavík hefur ekki tapað í síðustu þremur leikjum sínum. Þeir gerðu 1-1 jafntefli við Val, unnu góðan 3-2 sigur á KR og gerðu svo 1-1 jafntefli við Fram í síðustu umferð.

Keflavík situr í 6.sæti deildarinnar með 16 stig og geta með sigri lyft sér upp fyrir Val í 5.sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Þór Stefánsson heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Kristján Már Ólafs og Ronnarong Wongmahadthai.
Róbert Þór Guðmundsson er fjórði dómari og eftirlistmaður KSÍ er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Kópavogsvöll
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá lokaleik 14. umferðar þar sem heimamenn í Breiðablik mæta Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.