Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu
ETO Stadion
ETO Györ
ETO Györ
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Mateo Erceg (Króatía)
Fyrir leik
Reynist danska ljónið Víkingum dýrmætt?
Nikolaj Hansen framherji Víkinga skartar rosalegu húðflúri en stærðarinnar mynd af ljóni prýðir bak hans. Um 20 tíma vinna hjá listamanninum að baki og ekki hægt að segja annað en að útkoman sé nokkuð flott.
Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson
Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson
Fyrir leik
Okkar maður á vellinum
Okkar eigin Ungverji hér á Fótbolta.net Maté Dalmay er mættur til Györ og verður í feiknastuði á vellinum í kvöld auk þess að taka viðtöl að leik loknum.
Mynd: Aðsend
Hann fór á stúfanna í gær og ræddi við Víkinga um verkefni kvöldsins.
Fyrir leik
Víkingar með forskot eftir fyrri leikinn
Liðin mættust fyrir viku síðan í Víkinni þar sem Víkingur fór með 1-0 sigur. Heimamenn höfðu talsverða yfirburði í leiknum gegn mjög varnarsinnuðu liði Györ en tókst þó ekki að finna marknetið fyrr en í uppbótartíma þegar Nikolaj Hansen setti boltann í netið af miklu harðfylgi. Markahæsti Víkingurinn frá Það var þó ekki eintóm gleði í herbúðum Víkinga eftir leikinn því þeir urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar Elías Már Ómarsson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Það var síðar staðfest að hann verður ekki meira með liðinu á árinu eftir að í ljós kom að krossband í hné hans er sltið.
Fyrir leik
Evrópukvöld í Ungverjalandi
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá síðari leik Györ frá Ungverjalandi og Víkings í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.