Fotbolti.net
Helgi Inguson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
4 - 1
Njarðvík
Njarðvík
Birkir Eyþórsson 12'1 - 0Birkir Eyþórsson 32'2 - 0Guðmundur Tyrfingsson 40'3 - 0Guðmundur Tyrfingsson 43'4 - 04 - 167' Bragi Karl Bjarkason (víti)
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Fylkir gekk frá andlausum Njarðvíkingum í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Þessi sigur var afskaplega sannfærandi. Fylkismenn keyrðu yfir Njarðvíkinga í fyrri hálfleiknum og uppskáru sanngjarna 4-0 forystu í hálfleik. Varnarmenn Njarðvíkinga réðu engan veginn við hraðann á sóknarmönnum Fylkis. Heimamenn voru líka töluvert betri í þeim síðari en Guy Smit sá til þess að ekki fór verr.

Bestu leikmenn

1. Birkir Eyþórsson

Stýrði umferðinni á miðjunni. Var grimmur í öllum einvígum og hljóp úr sér lungun. Ekki skemma tvö mörk fyrir.

2. Guðmundur Tyrfingsson

Var góður í dag eins og alltaf. Gífurlega hraður, kraftmikill og hættulegur leikmaður. Skoraði tvö mörk og er nú markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Óðni Bjarkasyni með 11 mörk.

Atvikið

Guy Smit fer í skógarhlaup í byrjun seinni hálfleiks. Hann vinnur kapphlaupið gegn Theodóri Inga og kemur boltanum í innkast sem Fylkir reynir að taka hratt. Hann og Theodór flækjast hins vegar saman á leið hans í markið. Arnar dómari flautar þegar Guy fer auðveldlega í grasið og Fylkir þarf að taka innkastið aftur.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir er enn í öðru sæti deildarinnar en minnkar forskot Aftureldingar í eitt stig. Árbæingar eru með 30 stig eftir 14 leiki. Njarðvík er í 6. sæti með 20 stig.

Vondur dagur

Njarðvíkurliðið. Davíð Smári fór vel yfir frammistöðu liðsins sem var alls ekki góð. Fyrstu 60 mínúturnar voru sérstaklega lélegar og sex marka forysta hefði líklega verið sanngjörn eftir þær.

Dómarinn - 6

Vítadómurinn var réttur hjá Arnari. Var ekki sammála öllu en fínn leikur hjá Arnari engu að síður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.