Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir fjóra breytingar á liðinu frá síðasta leik, þegar FH vann Val 2-0. Nýju mennirnir Jóhannes Kristinn Bjarnason og Oliver Stefánsson koma beint í byrjunarliðið, auk Ísak Óla Ólafssyni og Gils Gíslasyni. Það eru þá fjórir sem færa sig á bekkinn, en það eru Grétar Snær Gunnarsson, Sverrir Páll Hjaltested, Arngrímur Bjartur Guðmundsson og Róbert Hugi Sævarsson.

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Það er einnig einn nýr sem byrjar hjá Breiðablik, en það er Hlynur Freyr Karlsson. Hinir sem koma inn í byrjunarliðið frá síðasta leik eru Aron Bjarnason, Dagur Örn Fjeldsted, og Þór Andersen Willumsson.
Fyrir leik
Spáin
Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, tók að sér að spá í leikina sem framundan eru.

FH 1 - 2 Breiðablik
Það er komið að því að Blikar nái í þrjú stig í Krikanum. Það eru einhver meiðsli hjá Blikum en það mun ekki hafa áhrif á liðið í þessum leik. Viktor Örn og Ágúst Orri klára þennan leik.
Fyrir leik
Dómarinn
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í kvöld, en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari verður Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður Þórður Ingi Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Blikar lang fjórða besta liðið
Oft á tíðum hefur verið hægt að skipta upp deildinni í nokkra hluta út frá stigafjölda, og frammistöðu. Í ár virðist Breiðblik vera í algjörum sérflokki hins vegar sem fjórða besta liðið. Þeir eru sex stigum á undan Val sem er í 5. sæti, en miðað við gengi þeirra er líklegt að það bil verði stærra. Svo eru þeir 8 stigum á eftir Fram í 3. sæti. Blikar eiga hins vegar bikar úrslitin eftir, og þar geta þeir verið bestir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH ósigraðir fimm leiki í röð
Eftir skelfilega byrjun á mótinu hafa FH-ingar verið miklu flugi. Af þeim 11 stigum sem þeir eru með hafa þeir náð í 9 þeirra í síðustu fimm leikjum. Það eru tveir sigrar og þrjú jafntefli, þar sem í síðustu umferð unnu þeir Val 2-0. Ekkert af þessum leikjum hefur hins vegar verið gegn fjórum efstu liðunum, og því bíður þeirra erfitt verkefni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Breiðablik í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Kaplakrikavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.