Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Örlítil væta og smá blástur
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
4 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 18' Þórdís Nanna ÁgústsdóttirHildur Katrín Snorradóttir 44'1 - 11 - 251' Kristrún Ýr HolmSanta Sanija Vuskane 68'2 - 2Santa Sanija Vuskane 81'3 - 2Santa Sanija Vuskane 83'4 - 2
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Leik lokið!
Grindavík/Njarðvík sigrar!
Það eru heimakonur sem sigra þetta hérna í seinni hálfleik.

Innkoma Santa Vuskane breytti öllu fyrir lið Grindavík/Njarvík

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
93. mín
Þróttur að sækja hart að marki Grindavík/Njarðvík þessa stundina.
91. mín
Siglum inn í uppbótartíma
Rétt missti af skiltinu fara á loft svo ég veit ekki hve miklu er bætt við.
Grindavík/Njarðvík
88. mín
InnKatrín Lilja Ármannsdóttir
ÚtSigríður Emma F. Jónsdóttir
Grindavík/Njarðvík
88. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtSophia Faith Romine
Grindavík/Njarðvík
87. mín
Gult spjald

Sophia Faith Romine

Þróttur R.
85. mín
InnRósey Björgvinsdóttir
ÚtÞórdís Nanna Ágústsdóttir
Grindavík/Njarðvík
85. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtElísa Birta Káradóttir
Grindavík/Njarðvík
83. mín
ÞRENNA!!!

Santa Sanija Vuskane

Hrikaleg mistök í öftustu línu hjá Þrótti og Grindavík/Njarðvík refsa!!

Jahérnahér!
Grindavík/Njarðvík
81. mín
Heimakonur taka forystu!

Santa Sanija Vuskane (stoðsending: Ása Björg Einarsdóttir)

Mögulega er þetta sjálfsmark en ég gef henni þetta þar til annað kemur í ljós!

Frábær sending fyrir af hægri væng og Santa sýnist mér ná snertingunni frekar en varnarmaður Þróttar.

GRINDAVÍK/NJARÐVÍK LEIÐA Í FYRSTA SKIPTI Í KVÖLD!
79. mín
Mátti ekki miklu muna!
Santa Vuskane sloppin ein í gegn en Mollee Swift kemur vel út á móti og nær að loka á hana.

Gri/Nja halda pressunni og sókninni á lífi en Þróttur nær að lokum að bjarga.
Grindavík/Njarðvík
78. mín
Gult spjald

Santa Sanija Vuskane

Fór fyrir útspark og fer í svörtu bókina.
75. mín
Þróttur kemst í flotta stöðu og eru fjórar á tvær en fara afar illa með þessa stöðu. Natasha Anasi verst þessu vel og kemur boltanum í innkast.
72. mín
Vandræðagangur aftast hjá Gri/Nja en Þróttur nær ekki að refsa. Þórdís Nanna rennur þegar hún kemur að teignum og Ellie Coffield hirðir af henni boltann.
69. mín
Hannah McLaughlin tekur spyrnuna og lyfir boltanum yfir markið.
Þróttur R.
69. mín
Gult spjald

Mist Funadóttir

Gri/Nja fær aukaspyrnu á hættulegum stað við vítateigshornið.
Grindavík/Njarðvík
68. mín
ÞÆR JAFNA!!

Santa Sanija Vuskane

Varamaðurinn skorar með líklega sinni fyrstu snertingu fyrir félagið!

Gri/Nja lyfti boltanum inn á teig í átt að henni og Mollee Swift hikar svolítið í úthlaupinu og Santa Vuskane er á undan í boltann og leggur hann snyrtilega í hornið fjær.
Grindavík/Njarðvík
66. mín
InnEmma Nicole Phillips
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
Grindavík/Njarðvík
66. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtJúlía Rán Bjarnadóttir
65. mín
Ása Björg með sendingu fyrir markið ætlaða Hildi Katrín en Þróttarar komast fyrir.
Þróttur R.
64. mín
InnKayla Marie Rollins
ÚtAlexia Marin Czerwien
Þróttur R.
62. mín
Gult spjald

Jelena Tinna Kujundzic

Stoppar álitlega sókn Grindavík/Njarðvík og fer í svörtu bókina.
61. mín
Þróttur að komast í flotta stöðu en Þórdís Nanna lyftir boltanum hátt yfir markið.
56. mín
Emma Fanndal með fyrirgjöf sem verður að skoti rétt framhjá markinu.
Þróttur R.
55. mín
InnÁlfhildur Rósa Kjartansdóttir
ÚtSóley María Steinarsdóttir
Þróttur R.
51. mín
Þróttur nær aftur forystu!

Kristrún Ýr Holm

Þróttur með frábæra hornspyrnu og Grindavík/Njarðvík í bölvuðu brasi. Genevieve ver fyrst frábærlega og Gri/Nja koma boltanum úr vítateignum en þó ekki langt og þær reyna skot sem fer af varnarmanni og endar fyrir fætur Kristúnar Ýrar og hún skilar boltanum í netið!

ÞRÓTTUR LEIÐIR!
51. mín
Unnur Dóra með skot af varnarmanni og vinnur hornspyrnu. Það er smá kraftur með þeim hér í upphafi.
47. mín
Ellie Coffield með aukaspyrnu úti á velli og reynir skot sem fer yfir markið.
46. mín
Grindavík/Njarðvík sparkar síðari hálfleiknum af stað.
Þróttur R.
46. mín
InnMaría Eva Eyjólfsdóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
45. mín
+1

Allt jafnt þegar við förum til búningsklefa í hálfleik. Eftir að hafa lent undir hafa Grindavík/Njarðvík nánast tekið yfir leikinn og stýrt honum. Þær ná inn jöfnunarmarki stuttu fyrir hálfleik svo það er spurning hvað það gerir fyrir seinni hálfleikinn.

Tökum okkur korter og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn.
Grindavík/Njarðvík
44. mín
ÞÆR JAFNA!!

Hildur Katrín Snorradóttir (stoðsending: Júlía Ruth Thasaphong)

Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi legið í loftinu!

Júlía Ruth fær flottan bolta á bakvið vörn Þróttar og kemur svo með sendingu fyrir markið þar sem Hildur Katrín skilar boltanum í netið!

ALLT JAFNT!
43. mín
Þær eru að banka
Gri/Nja með aukaspyrnu og á einhvern ótrúlegan hátt skora þær ekki! Boltinn virðist falla fyrir fæturna á þeim tvisvar inn í teig en endar svo að lokum í fanginu á Mollee Swift.
40. mín
Natasha Anasi reynir skot af löngu færi en það fer yfir markið.
34. mín
Gri/Nja eru að leita af jöfnunarmarkinu en varnarlína Þróttar er að haldast nokkuð þétt.
30. mín
Júlía Ruth Thasaphong keyrir í átt að teignum úti vinstra megin og er rifinn niður.

Aukaspyrna dæmd og Hildur Katrín tekur spyrnuna beint í vegginn.
26. mín
Þróttur í nauðvörn eftir horn en koma boltanum burt á endanum.
25. mín
Elísa Birta að koma sér í flotta stöðu en Þróttur með mikilvæga tæklingu í teignum sem bjargar því að hún komist í skotið.
24. mín
Gri/Nja líkegri aðilinn eins og sakir standa. Þær eru búnar að þrýsta Þrótti neðarlega á völlinn.
19. mín
Ása Björg með tilraun framhjá markinu fyrir Gri/Nja.

Heimakonur eru aðeins að ná að vinna sig inn í leikinn eftir erfiða byrjun.
18. mín
Unnur Dóra með tilraun sem Genevieve ver í marki Gri/Nja.
15. mín
Hildur Katrín kemst í fínt skotfæri en skotið beint á Mollee Swift í marki Þróttara.

Lokisins náði Gri/Nja að tengja saman sendingar framarlega á vellinum.
12. mín
Gri/Nja komast lítið áleiðis hér í upphafi. Eru í stökustu vandræðum með uppspilið.
10. mín
Kraftur í gestunum hér í upphafi.
Þróttur R.
8. mín
ÞRÓTTUR TEKUR FORYSTU!

Þórdís Nanna Ágústsdóttir (stoðsending: Unnur Dóra Bergsdóttir)

Vinna boltann hátt og Unnur Dóra fer inn á teiginn og leggur hann í hættusvæðið þar sem Þórdís Nanna mætti og hamraði honum í netið.

ÍSINN ER BROTINN!
7. mín
Þróttur sækir fyrsta horn leiksins.

Missa boltann upp í vindinn og afturfyrir.
5. mín
Blæs svolítið á annað markið. Þróttur sækir fyrri hálfleikinn með vindinn í bakið.
1. mín
Þetta er allt farið af stað!
Fyrir leik
Katie Cousins er mætt aftur heim
Katie Cousins er aftur gengin í raðir Þróttar en hún gerir samning út næsta tímabil.

Fyrir leik
Nýliðarnir bæta við sig
Santa Sanija Vuskane er búin að gera tveggja og hálfs árs samning við Grindavík/Njarðvík sem hefur verið að gera flotta hluti sem nýliði í Bestu deild kvenna í sumar.

Fyrir leik
Fyrri leikur liðana í sumar
Þessi lið mættust á Avis vellinum í 4. umferð Bestu deildarinnar fyrr í sumar þar sem Grindavík/Njarðvík hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Nýliðarnir hafa sömuleiðis verið í smá brasi síðustu vikur og tapað síðustu tveim leikjum sínum gegn Þór/KA og FH. Grindavík/Njarðvík hafa sótt 4 stig úr síðustu 15 mögulegum líkt og Þróttur.

Grindavík/Njarðvík situr í 8.sæti deildarinnar og er aðeins tveimur stigum frá fallsæti en gæti með sigri lyft sér upp fyrir Þrótt í 5.sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttur hefur verið í örlitlu brasi síðustu vikur en þær hafa tapað síðustu þremur leikjum sínum gegn Fram, FH og Þór/KA og sótt 4 stig af síðustu 15 mögulegum.

Þær vonast til þess að komast aftur á sigurbraut í kvöld gegn nýliðunum en Þróttur situr í 5.sæti deildarinnar með 13 stig, þremur stigum frá fallsæti en gæti með sigri slitið sig aðeins frá þéttum pakka fyrir neðan sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Óli Njáll Ingólfsson verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða Nour Natan Ninir og Daníel Örn Arnarson.
Fjórði dómari er Breki Sigurðsson.
Eftirlismaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
JBÓ völlurinn heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík og Þróttar í 12. umferð Bestu deild kvenna sem fram fer á JBÓ vellinum í Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.