Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Ringingarlegt og 12 gráður
Keflavík
Keflavík
5 - 2
ÍA
ÍA
Þorlákur Breki Þ. Baxter 33'1 - 0Eiður Orri Ragnarsson 35'2 - 0Stefan Alexander Ljubicic (víti) 51'3 - 0Eiður Orri Ragnarsson 54'4 - 04 - 157' Viktor Jónsson (víti)Muhamed Alghoul 87'5 - 15 - 291' Markús Páll Ellertsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Stórsigur Keflavíkur staðreynd. Skagamenn hafa tapað fimm leikjum í röð í Bestu deildinni. Sjáum hvað menn hafa að segja eftir þetta.

Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld, fylgist með!
ÍA
91. mín
Sárabótarmark

Markús Páll Ellertsson

Boltinn skoppar í teignum eftir hornspyrnu og fer alla leið á Markús sem er utarlega í teignum. Hann setur boltann í jörðina og í markið. Ásgeir Orri var í þessu en nær ekki að verja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
,,Gula spjaldið, gula spjaldið, hvar ert þú?" syngja stuðningsmenn ÍA. Ótrúlegt að þau séu ekki bara farin eftir þessa frammistöðu hjá sínum mönnum.
Keflavík
89. mín
InnEgill Valur Karlsson
ÚtÁsgeir Páll Magnússon
88. mín
Beint úr aukaspyrnu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík
87. mín
MARK!!!!

Muhamed Alghoul

Skorar beint úr aukaspyrnunni!

Fer í gegnum hrikalegan varnarvegg ÍA. Lýsandi fyrir leik Skagamanna í dag.

Þetta er rúst!
86. mín
Keflavík að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
85. mín
Eiður Orri með skot í stöngina en er dæmdur rangstæður.
Keflavík
83. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtAnton Kralj
Keflavík
83. mín
InnAxel Ingi Jóhannesson
ÚtSindri Snær Magnússon
82. mín
STURLUÐ varsla!
Ásgeir Orri með magnaða vörslu! Jón Gísli með góðan bolta fyrir á Böðvar Böðvarsson og hann nær skallanum af stuttu færi en Ásgeir Orri ver stórkostlega!
79. mín
VEL varið!
Keflavík aftur að hóta. Frábær sókn og aftur er það Marin Mudrazija sem er í mjög góðu færi en Jón Sölvi ver mjög vel frá honum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
78. mín
Stórhættulegt!
Keflavík með frábæra sókn sem endar næstum því með marki. Vantaði lítið upp á að Marin Mudrazija myndi pota boltanum inn.
ÍA
77. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtViktor Jónsson
Keflavík
75. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtAlpha Conteh
Keflavík
75. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtStefan Alexander Ljubicic
74. mín
Dauðafæri!!
Viktor Jóns sloppin í gegn en setur boltann fram hjá markinu. Þetta var frábært færi, Keflavíkurvörnin svolítið opin.
73. mín
SLÁIN!!
Eiður Orri með skot fyrir utan teig sem smellur svoleiðis í slánni. Þetta hefði verið einhver flottasta þrenna sem sést hefur í íslenska boltanum ef þetta hefði dottið.
73. mín
Stórsókn hjá Keflavík eftir hornið en Skagamenn henda sér fyrir.
72. mín
Alghoul með góða hornspyrnu sem Jón Sölvi þarf að blaka aftur fyrir. Hann kann betur á vindinn en Rúnar Már hér í fyrri hálfleiknum.
72. mín
Jón Sölvi í veseni og sparkar boltanum í hornspyrnu.
71. mín
Eiður Orri og Breki Baxter virðast vera í keppni um það hver getur skorað flottasta markið í þessum leik.
70. mín
Stöngin!!
Þorlákur Breki Baxter með hörkuskot sem smellur í stönginni! Skemmtileg tilraun.
69. mín
Svona lítur tölfræðin út núna
Með áskriftarþjónustu Fótbolta.net geturðu skoðað ítarlega tölfræði á meðan leik stendur, liðsuppstillingar og einkunnir leikmanna.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Mynd: Fótbolti.net
68. mín
Skagamenn heldur betur búnir að vakna eftir að Keflavík komst í 4-0 en líklega er það of lítið, of seint.
ÍA
68. mín
Gult spjald

Viktor Jónsson

Stoppar hér sókn Keflvíkinga.
67. mín
Varsla!
Markús Páll í mjög góðu færi en Ásgeir Orri ver frábærlega frá honum.
65. mín
Vítí?
Skagamenn vilja hendi og víti á Keflvíkinga og ég er ekki frá því að það sé rétt. Gísli Eyjólfs svo í þröngu færi sem Ásgeir Orri ver.
62. mín
Skagamenn fengu aukaspyrnu á hættulegum stað en Jón Gísli neglir boltanum yfir markið.
ÍA
60. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
ÍA
60. mín
InnMarkús Páll Ellertsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
ÍA
60. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtSteinar Þorsteinsson
60. mín
Ég er búinn að horfa á atvikið aftur, vítaspyrnudóminn hjá Skaganum, og ég held að þetta sé réttur dómur. Sýnist Viktor vera á undan í boltann.
58. mín
Viktor minnkaði muninn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík
57. mín
Gult spjald

Muhamed Alghoul

Fyrir mótmæli.
Keflavík
57. mín
Gult spjald

Ásgeir Orri Magnússon

ÍA
57. mín
Skagamenn minnka muninn!

Viktor Jónsson

Viktor Jónsson fer á punktinn og skorar. Ásgeir Orri var í þessu og var ekki langt frá því að verja.

Viktor fékk höggið en fór sjálfur á punktinn og skoraði.

Eiga gestirnir einhvern séns?
56. mín
Skagamenn eru að fá víti!
Ásgeir Orri dæmdur brotlegur. Veit ekki alveg með þetta.
55. mín
Eiður Orri búinn að skora tvö flott mörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík
54. mín
VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ

Eiður Orri Ragnarsson

Eiður Orri gerir sitt annað mark í leiknum!

Eftir hornspyrnu berst boltinn til Eiðs fyrir utan teig og hann lætur bara vaða, 4-0! Boltinn söng í netinu!

Skagamenn eru gjörsamlega rotaðir.
53. mín
Gísli Eyjólfs við það að komast í færi en Marin Brgic hendir sér fyrir og fær boltann í magann.
52. mín
3-0!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík
51. mín
Alveg í bláhornið!!

Stefan Alexander Ljubicic

Stefan Ljubicic fer á vítapunktinn og skorar. Jón Gísli fer í rétt horn en nær ekki að verja, alveg í bláhornið hjá Stefan.
50. mín
Keflavík fær víti!
Held að þetta sé hárréttur dómur. Erik Tobias Sandberg rekur höndina út og boltinn fer í höndina á honum. Klaufalegur varnarleikur.
47. mín
Hætta!!
Alpha Conteh með geggjaða fyrirgjöf frá vinstri á fjærstöngina þar sem Stefan Ljubicic lúrir. Hann setur höfuðið í boltann en nær ekki að stýra honum í átt að marki.
46. mín
Stuðningsmenn ÍA eru ekki búnir að gefast upp, syngja áfram.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
45. mín
Það er hálfleikur í Keflavík og heimamenn leiða 2-0. Núna þurfa Skagamenn að stíga upp og bíta frá sér. Þetta er mjúkt hjá þeim. Dýru leikmennirnir sem voru sóttir fyrir tímabilið - Guðmundur Þórarinsson, Gísli Eyjólfsson og Böðvar Böðvarsson - hvar eru þeir?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
43. mín
Ef maður horfir á tölfræðina úr leiknum er þetta hrikalega sanngjörn staða. Með áskriftarþjónustu Fótbolta.net geturðu skoðað ítarlega tölfræði á meðan leik stendur, liðsuppstillingar og einkunnir leikmanna.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Mynd: Fótbolti.net
41. mín
Skagamenn eru vankaðir og það er næstum því búið að rota þá.
40. mín
ÞVÍLÍK VARSLA
Keflvíkingar svo nálægt því að bæta við þriðja markinu eftir hornspyrnu. Mikill darraðadans en svo fer Jón Gísli stórkostlega til að bjarga því að staða Skagamanna versni ekki.
38. mín
Hvað er að gerast hérna?
Keflvíkingar hóta þriðja markinu!

Eiður Orri með skot sem fer af varnarmanni og rétt yfir markið! Jón Sölvi var alls ekki viss um þennan.
36. mín
Eiður Orri gerði annað mark Keflavíkur!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík
35. mín
ANNAÐ MARK!!!

Eiður Orri Ragnarsson (stoðsending: Alpha Conteh)

Núna er það Eiður Orri sem skorar með öflugu skoti!

Skagamenn ráða ekkert við Alpha Conteh! Hann sýnir hér góða takta áður en hann leggur hann út á Eið Orra. Hann hugsar sig ekki tvisvar um, lætur vaða og skorar!

Þetta er fljótt að gerast í boltanum!
34. mín
Breki Baxter kom Keflavík yfir!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík
33. mín
MARK!!!!!!!!

Þorlákur Breki Þ. Baxter

ÞVÍLÍKT SKOT!

Keflvíkingar í stórsókn. Alpha Conteh við það að koma sér í færi en Skagamenn koma sér fyrir, svo á Eiður Orri skot en Skagamenn koma sér aftur fyrir.

En þeir ná ekki að koma sér fyrir skotið sem Breki Baxter tekur fyrir utan teig.

BOMBA!
31. mín
Keflvíkingar að sækja í sig veðrið og hafa verið sterkari þessar síðustu mínútur.
30. mín
SLÁIN!
Stefan Ljubicic með hörkuskot í slána! Þarna munaði engu!
ÍA
27. mín
InnBaldvin Þór Berndsen
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
Fyrirliði Skagamanna þarf að fara meiddur af velli.
23. mín
FÆRI!
Alpha Conteh með skot sem fer í Skagamann en svo fær Eiður Orri ágætis færi en mér sýnist Jón Sölvi ná að verja þetta mjög vel!
22. mín
Rúnar Már les ekki vindinn hér í Keflavík nægilega vel. Tekur hornspyrnuna sem fer beint aftur fyrir endamörk.
21. mín
Svolítið rólegt yfir þessu, engin dauðafæri enn sem komið er.
18. mín
Alghoul með skottilraun úr þröngri stöðu en skotið fer beint í varnarmann.
17. mín
Eiður Orri með lipra takta úti hægra megin og vinnur hornspyrnu fyrir Keflavík.
13. mín
Skagamenn mun sterkari þessa stundina.
13. mín
Jón Gísli fer niður í teignum og vill fá eitthvað fyrir sinn snúð, en fær ekkert.
12. mín
Rúnar Már með hornspyrnuna en Keflvíkingar skalla boltann frá.
11. mín
Hættulegt!
Jón Gísli fær boltann úti hægra megin, fer yfir á vinstri löppina og á skot sem fer í varnarmann og fram hjá markinu!
10. mín
ÍA vinnur hér boltann hátt á vellinum, Ómar Björn fær boltann og keyrir í átt að vörn Keflavíkur. Hann nær svo skoti en það er beint á Ásgeir Orra. Hann missir boltann aðeins frá sér en það reddast.
8. mín
Nokkrir stuðningsmenn ÍA gerðu sér ferð til Keflavíkur og syngja sína menn áfram.
6. mín
Stefan Ljubicic gerir vel með bakið í markið, heldur manninum fyrir aftan sig og leggur hann út á Muhamed Alghoul en skot hans fer beint í varnarmann.
4. mín
Ásgeir Páll með góðan sprett upp hægra megin og sendir boltann fyrir markið. Þar er Eiður Orri mættur en skalli hans er laus og fram hjá markinu.
2. mín
Tengdafeðgar á bekknum hjá ÍA
Sigurður Jónsson er kominn inn í teymið hjá Skagamönnum en Dean Martin fékk starf í Oman og er því farinn út úr því. Athyglisvert að tengdasonur hans, Emil Ásmundsson, er líka í teyminu en hann er nýr styrktarþjálfari Skagamanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Við erum farin af stað!
Fyrir leik
Tilvalið að minna á það að með áskriftarþjónustu Fótbolta.net geturðu skoðað ítarlega tölfræði á meðan leik stendur, liðsuppstillingar og einkunnir leikmanna.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.
Fyrir leik
Krakkarnir byrjaðir á trommunum, þetta fer fljótlega að byrja.
Fyrir leik
Fyrri leikur þessara liða í sumar
Þessi lið mættust á Akranesi fyrir rúmum tveimur mánuðum og þá vann Keflavík sterkan 1-3 útisigur. Bakverðirnir Ásgeir Páll Magnússon og Axel Ingi Jóhannesson voru á skotskónum fyrir Keflavík og þá gerði Stefan Ljubicic einnig mark. Markús Páll Ellertsson, sem er á bekknum hjá ÍA í kvöld, gerði mark Skagamanna í leiknum í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Bæði lið eru að klára upphitun. Það er ekki mikið um manninn á Keflavíkurvelli en það er enn korter í leikinn. Það er rigningarlegt og smá vindur.
Fyrir leik
Dómarateymið
Jóhann Ingi Jónsson er aðaldómar og aðstoðardómarar eru Ragnar Þór Bender og Jovan Subic. Fjórði dómari er Hreinn Magnússon og eftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Keflvíkingar gera tvær breytingar á liði sínu. Davíð Helgi Aronsson er farinn til Lyngby í Danmörku eftir góða lánsdvöl í Keflavík og kemur Nacho Heras inn í liðið í hans stað í kvöld. Þá kemur Eiður Orri Ragnarsson inn fyrir Marin Mudrazija.

Hjá Skagamönnum kemur Viktor Jónsson inn í liðið eftir að hafa byrjað síðustu leiki á bekknum. Sögusagnir hafa verið um að hann sé mögulega á förum frá ÍA en hann byrjar í kvöld. Markús Páll Ellertsson fer á bekkinn hjá ÍA og Haukur Andri Haraldsson er ekki með í kvöld en Guðmundur Þórarinsson kemur einnig aftur inn í liðið hjá gestunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Einn frægasti leikur Íslandssögunnar
Það má alveg segja að það sé ákveðinn rígur á milli þessara liða eftir leik sem liðin spiluðu þann 4. júlí árið 2007. Þá skoraði Bjarni Guðjónsson, þáverandi leikmaður ÍA, mark með skoti við miðlínuna eftir að Keflavík hafði sparkað boltanum út af til að leikmaður ÍA gæti fengið aðhlynningu. Það varð allt gjörsamlega brjálað við þetta eins og sjá má á þessu myndbandi:

Fyrir leik
Varstu búin/n að lesa þennan pistil?
„Ég held að ég sé alltaf í sama helvítis viðtalinu," sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir 3-2 tap gegn KA síðastliðinn sunnudag.

Skagamenn voru með stór markmið fyrir sumarið og fjárfestu vel í leikmönnum. En staðan núna er sú að ÍA er talsvert nær fallsætunum en Evrópubaráttu.

En segir stigataflan alla söguna? Þegar rýnt er í tölfræðina á bak við frammistöðu Skagamanna kemur nefnilega í ljós lið sem hefur ítrekað fengið minna út úr leikjum sínum en tölurnar gefa tilefni til.

Það hefur oft verið sungið að Skagamenn skoruðu mörkin en sú hefur ekki verið raunin í sumar. Fótbolti.net kafaði ofan í tölurnar.

Fyrir leik
Damir spáir í spilin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, er spámaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net. Hann spáir heimasigri hérna.

Keflavík 2 - 1 ÍA
ÍA er með betra lið á pappír, en Keflavík er alltaf Keflavík í Keflavík. Gísli Eyjólfsson kemur ÍA yfir en Stefan Ljubicic skorar tvö mörk fyrir Keflavík.
Fyrir leik
Staðan er svona
Keflavík hefur komið mörgum á óvart í sumar og situr í sjöunda sæti Bestu deildarinnar með 16 stig, einu stigi meira en ÍA sem er í níunda sætinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík spilaði síðast gegn Breiðabliki og tapaði þar 2-1 eftir að hafa leitt 0-1. Keflvíkingar voru mjög óheppnir með dómaraákvarðanir í þeim leik.

ÍA tapaði líka síðasta leik sínum en sá leikur var gegn KA á Akureyri. Skagamenn komust í 0-2 í þeim leik en enduðu á því að tapa 3-2 þar sem sigurmark Akureyringa kom í uppbótartímanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góða kvöldið!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og ÍA í Bestu deild karla. Hér munum við fylgjast með öllu því sem gerist í þessum áhugaverða leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.