Leik lokið!
Skagamenn með slátrun!
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
89. mín
InnGuðmar Gauti Sævarsson
ÚtViktor Jónsson
Guðmann Gauti með frumraun í gulu!
86. mín
Hvað er að gerast hjá Stjörnunni?
Skagamenn refsa!!!!
Markús Páll Ellertsson
Markús Páll með sitt annað mark sleppur í gegn eftir góða sendingu frá Ómari Birni og klárar frábærlega framhjá Árna snæ!Hvað er að gerast hjá Stjörnunni?
85. mín
Víti misnotað
Árni Vilhjálmsson
Árni Marínó ver vítið les Árna Vill eins og opna bók83. mín
VÍTI!
Stjarnan fær víti!
82. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtGísli Eyjólfsson
82. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtBöðvar Böðvarsson
82. mín
Ómar með hættulega fyrir gjöf en þarna var enginn gul treyja
81. mín
Guðmundur Baldvin með hörku tilraun en beint á Árna Marínó.
80. mín
Stjarnan fá aukaspyrnu á hættulegum stað!
En Baldvin hoppar tvisvar fyrir Andra rúnar og þeir fá horn.
En Baldvin hoppar tvisvar fyrir Andra rúnar og þeir fá horn.
76. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
72. mín
Með hörmulega aukaspyrnu beint á Markús Pál sem átti bara eftir að mæta Árna og klára færið. Árni er kominn í gjafastuð Jesús kristur!
GAME OVER!
Hvað var þetta!
Markús Páll Ellertsson
Árni Snær í gjafastuði!Með hörmulega aukaspyrnu beint á Markús Pál sem átti bara eftir að mæta Árna og klára færið. Árni er kominn í gjafastuð Jesús kristur!
GAME OVER!
70. mín
Stjarnan fá aukaspyrnu á hættulegum stað!
68. mín
Dauða færi!
Markús sloppinn í gegn einn gegn Árna Snæ en bombar honum lengst yfir
66. mín
Stjarnan að minnka Muninn!
Andri Rúnar Bjarnason (stoðsending: Alex Þór Hauksson )
Alex með geggjaðan bolta inná teiginn og Andri gerir frábærlega að snúa Erik Tobias af sér sem átti ekki breik í Andra sem klárar í þak netið!63. mín
Viktor Jóns fékk einnig aðhlynningu eftir samstuð við Ara Leifs
63. mín
Erik Tobias þarf hér að hlaupa útaf vellinum vegna blóðnasir og þarf að skipta um treyju og fær eina ómerkta treyju.
62. mín
Gult spjald
Jón Gísli Eyland Gíslason
Jón Gísli keyrir í Benedikt Waren og fær réttilega spjald!60. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtBirnir Snær Ingason
Jón Þór gerir tvær aðrar breytingar
60. mín
InnSindri Þór Ingimarsson
ÚtGustav Kjeldsen
56. mín
Daníel Finns með laflaust skot sem endar beint í fanginu á Árna Marínó. Stjörnuliðið aðeins að stíga hér upp!
54. mín
Alvöru staða þarna
Markús Páll var sloppinn í gegn og reynir að koma honum á Viktor í stað þess að skjóta!
51. mín
Stjörnumenn fá horn. Voðalega lítið sem kemur uppúr þeim hjá Stjörnunni!
46. mín
Seinni farinn af stað!
45. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtStyrmir Jóhann Ellertsson
Lárus gerir eina breytingu
45. mín
InnGuðmundur Baldvin Nökkvason
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Jón Þór hendir í þrefalda!
45. mín
InnBenedikt V. Warén
ÚtÖrvar Eggertsson
45. mín
InnAri Leifsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
45. mín
Rey cup meistarar
3 flokkur karla hjá ÍA unnu Rey cup í dag og koma hér með titilinn á völlinn. Óskum þeim til hamingju með þetta!
45. mín
Pétur Guðmunds flautar hér til hálfleiks. Tökum okkur 15 mínútna pásu!
45. mín
Einni mínútu bætt við
43. mín
Lárus Orri lætur Gunnar Odd heyra það og er ekki sáttur eftir að Gummi Kri heldur í Viktor Jóns. Mér fannst ekki mikið í þessu
41. mín
Stjörnumenn að fá horn!
37. mín
Menn liggja hér um allan völl, Árni Marínó keyrir í Árna Vill og hann fellur við og Stjörnumenn ná ekki að nýta sér það og Skagamenn bjarga á línu. Pétur leyfir leiknum að ganga mjög vel.
35. mín
Stjarnan fá horn!
32. mín
Markús Páll í færi en Gustav hendir sér fyrir hann og Skagamenn fá horn!
26. mín
Það liggja menn hér um allan völl mikil harka í þessu en Pétur flautar ekkert, Árni Marínó lá eftir og skagamenn bjarga á línu og Stjarnan fá horn.
26. mín
Skagamenn að hlaða í veislu!
Jón Gísli Eyland Gíslason (stoðsending: Gísli Eyjólfsson)
Gísli Eyjólfs gerir vel að koma boltanum á Jón Gísla sem á skot sem fer af Gustav Kjedsen og yfir Árna. Skagamenn eru að fara illa með Stjörnunna!24. mín
Rétt framhjá
Gummi Tóta með fína tilraun rétt framhjá markinu.
22. mín
Styrmir Jóhann með heiðarlega tilraun en bombar honum útí sjó!
16. mín
Stjörnumenn hafa búið til góðar stöður og haldið meira í boltann en ekki nýtt það
14. mín
Stjörnumenn vilja víti!
Stjarnan vilja víti en fá ekki missti alveg af þessu!
10. mín
Skagamenn komnir í 2-0!!
Viktor Jónsson (stoðsending: Baldvin Þór Berndsen)
Árni Snær með skelfilegan bolta úr markinu og fer beint á Baldvin Þór, sem kemur honum strax á Viktor Jóns sem klárar vel framhjá Árna Snæ. Skagamenn mæta sterkir til leiks!6. mín
Stjarnan að fá fyrstu hornspyrnu sína.
Árni grípur hann.
Árni grípur hann.
4. mín
Skagamenn komnir yfir!
Haukur Andri Haraldsson (stoðsending: Viktor Jónsson)
Það er Haukur Andri sem skorar, Markús Páll fær boltann og keyrir upp völlinn og kemur honum á Viktor Jóns sem leggur boltann til hliðar á Hauk sem setur boltann í autt markið.1. mín
Farið af stað!
Það eru gestirnir sem koma þessu af stað.
Fyrir leik
Stjörnumenn hafa haldið meira í boltann og búið til góðar stör en ekki nýtt þær.
Fyrir leik
Stjarnan heldur meira í boltann og hafa búið til góðar stöður en ekki nýtt þær!
Fyrir leik
Jón Þór heiðraður
Ingimar Elí formaður knattspyrnudeildar ÍA heiðrar hér Skagamanninn Jón Þór sem þjálfar stjörnuna í dag. Kominn heim!
Fyrir leik
5 mínútur í að leikurinn hefjist !
Fyrir leik
Flórídaskaginn skartar sínu fegursta
Fáum alvöru veður hér í dag 16 stiga hiti slétt grænt og fallegt grasið hér á Skaganum enginn afsökun að mæta ekki á völlinn!
Fyrir leik
Byrjunarliðinn er dottinn!
Byrjunarliðinn eru lent. Bæði liðinn gera nóg af breytingum.
Fyrir leik
Skagamenn gera sér fulla grein fyrir því að samfélagið er tryllt út í þá og þeir mega ekki tapa í kvöld, Gísli stígur upp. ÍA jafntefli ekki með er 1.8 á Epic. Gísli Eyjolfs skorar er 4,5 og er gott auka með.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 26, 2026
Fyrir leik
Spámaðurinn
Mattias Kjeld spáir fyrir þessari umferð.
ÍA 0 - 1 Stjarnan (19:15 á sunnudag)
Bæði lið verða að vinna til að koma sér í efri hlutann og Stjarnan kemur sér í betri stöðu með hundleiðinlegum 1-0 sigri
ÍA 0 - 1 Stjarnan (19:15 á sunnudag)
Bæði lið verða að vinna til að koma sér í efri hlutann og Stjarnan kemur sér í betri stöðu með hundleiðinlegum 1-0 sigri

Fyrir leik
Þriðja liðið
Pétur Guðmunds verður vopnaður flautunni og sér til þess að allt verði samkvæmt reglunum góðu honum til halds og trausts verða þeir
Gylfi Már Sigurðsson, Eysteinn Hrafnkelsson, og fjórði dómarinn er Gunnar Oddur Hafliðason. Alvöru teymi
Gylfi Már Sigurðsson, Eysteinn Hrafnkelsson, og fjórði dómarinn er Gunnar Oddur Hafliðason. Alvöru teymi

Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Fyrri leikur þessara liða. Skagamenn unnu fyrri leikinn í Garðabænum 2-1 þar sem Markús Páll og Viktor Jóns sáu um markaskorun Skagamanna

Fyrir leik
Gestirnir úr Garðabænum
Stjarnar eru einnig að koma inní þennan leik í smávegis basli, Stjarnan vann Ilves lið frá Finnlandi en á undan því töpuði þeir ansi ljótt gegn KR-ingum 5-0 og gátu mjög lítið í þeim leik þar sem þeir áttu ekki skot á mark og sáu aldrei til sólar. Bæði Stjarnan og ÍA eru í botnbaráttu og eru jöfn að stigum með 15 stig. Bæði lið ætluðu sér mikið á þessu tímabili en lítið hefur gengið. Það má búast við virkilega spennandi leik á milli þessara liða hef engar áhyggjur af því Jón Þór að koma heim, sól úti grænt gras nóg af mörkum getur eitthvað klikkað?


Fyrir leik
Skagamenn í basli
ÍA hefur valdið miklum vonbrigðum á þessi tímabili eftir að hafa verið duglegir á markaðnum í vetur og ætlað sér í baráttu um evrópusæti.
En staðan er allt önnur í dag þeir sitja eins og staðan er núna fyrir leik í 9.sæti Bestu deildarinnar eftir 15 leiki. ÍA eru núna búnir að tapa fimm leikjum í röð og eru vægast sagt á slæma kaflanum sínum ef það má orða það þannig. Leikurinn í dag gegn Stjörnunni er því gríðarlega mikilvægur og fá þá mögulega á góðum tíma þar sem Stjarnan er í miðju Evrópu verkefni. ÍA mætti Keflavík í síðustu umferð og lauk leiknum 5-2 fyrir Keflavík. Lárus Orri fór einnig í viðtal við Fótbolti.net eftir leik og segjis ekki óttast brottrekstur
En staðan er allt önnur í dag þeir sitja eins og staðan er núna fyrir leik í 9.sæti Bestu deildarinnar eftir 15 leiki. ÍA eru núna búnir að tapa fimm leikjum í röð og eru vægast sagt á slæma kaflanum sínum ef það má orða það þannig. Leikurinn í dag gegn Stjörnunni er því gríðarlega mikilvægur og fá þá mögulega á góðum tíma þar sem Stjarnan er í miðju Evrópu verkefni. ÍA mætti Keflavík í síðustu umferð og lauk leiknum 5-2 fyrir Keflavík. Lárus Orri fór einnig í viðtal við Fótbolti.net eftir leik og segjis ekki óttast brottrekstur

Fyrir leik
Skaginn býður ykkur velkominn!
Góða kvöldið og verið velkominn í þessa þráð beinu textalýsingu frá Skaganum. Í kvöld fer fram hörku leikur þegar ÍA tekur á móti Stjörnumönnum í gríðarlega mikilvægum leik. 









Takk fyrir mig!