Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Fyrir leik
Spáin góða
Framundan er 17. umferð Bestu deildar karla og í gær var meðal annars leikur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem Fram vann 2-1. Tómas Óli Kristjánsson, leikmaður AGF í Danmörku, spáir í spilin.

ÍA 0 - 2 Víkingur R. (14:00 í dag)
Víkingar mæta vel pirraðir eftir tapið í Evrópu og vinna þennan 2-0. Gylfi með tvö.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson dæmir þennan leik og honum til aðstoðar verða þeir Ragnar Þór Bender og Jovan Subic. Fjórði dómarinn er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður KSÍ er enginn annar en Þórður Ingi Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Toppliðið gegn trylltum Skagamönnum
Víkingar eru á toppi deildarinnar aðeins 6 stigum frá Fram í 2. sætinu en með leik til góða eftir að þeir tóku ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum fræga. Skagamenn eru í 7. sætinu einu stigi á eftir Keflavík sem er í 6. sæti. Skagamenn hafa verið ískaldir en unnu í seinustu umferð stórsigur á Stjörnunni sem gefur þeim líklega mikið sjálfstraust.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skaginn heilsar um Versló!
Gleðilega verslunarmannahelgi kæru lesendur nær og fjær. Það er Skaginn sem heilsar að sinni og nú munu Íslandsmeistararnir, Víkingur Reykjavík, mæta í heimsókn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.