Fotbolti.net
Besta deildin
Helgi Inguson
Besta karla
Lambhagavöllurinn
15 gráður og sól, gerist það betra?
Fram
Fram
2 - 5
KR
KR
0 - 14' Arnór Ingvi Traustason0 - 26' Eiður Gauti Sæbjörnsson0 - 329' Eiður Gauti SæbjörnssonKennie Knak Chopart 45'1 - 3Kennie Knak Chopart 61'2 - 32 - 473' Ástbjörn Þórðarson 2 - 577' Galdur Guðmundsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1908
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Vesturbæingar senda skýr skilaboð í Víkina

Hvað réði úrslitum?

Það var kröftug byrjun KR sem réði úrslitum. Liðið kemst þremur mörkum yfir og Fram þurfti að eyða mikilli orku í að koma tilbaka. Heimamenn nýttu ekki tækifærin til þess að jafna metin í seinni háfleik og KR refsaði. Þegar öllu er á botni hvolft áttu Vesturbæingar sigurinn skilið þrátt fyrir að leikurinn hafi verið jafnari en lokatölur gefa til kynna

Bestu leikmenn

1. Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)

Eiður lék á alls oddi í kvöld. Mér sýnist fyrra markið vera hans þó hann hafi viljað gefa Galdri það. Þetta var því ágætis dagsverk, tvö mörk og ein stoðsending.

2. Galdur Guðmundsson (KR)

Galdur ógnaði sífellt á vinstri kantinum og skoraði verðskuldað mark. Þau hefðu þó getað verið fleiri því hann komst í tvær góðar stöður undir lok leiks. Hefði hæglega getað sett Kennie Choppart hingað sem skoraði tvö en Galdur var einfaldlega frábær í kvöld og fær þetta.

Atvikið

Framarar minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks. Það stefndi í það að við myndum ekki fá spennu í þetta í kvöld og það var mikilvægt fyrir leikinn að Fram hafi skorað á þessum tímapunkti.

Hvað þýða úrslitin?

Með sigrinum kemst KR upp fyrir Fram og er í öðru sæti deildarinnar með 39 stig. Nú munar sex stigum á þeim og Víkingum og ef Víkingur heldur áfram að tapa stigum munu Vesturbæingar án ef refsa þeim. Fram er í þriðja sæti með 37 stig.

Vondur dagur

Framarar mættu ekki vel til leiks og KR-ingar gengu yfir þá. Það var enginn sem átti hauskúpuleik í liði Fram en þetta var alltof flatt til þess að byrja með.

Dómarinn - 8

Ég var mjög hrifinn af línunni sem Helgi Mikael setti. Hann leyfði leiknum að fljóta mjög vel og var ekki að flauta mikið. Hann var á tímapunkti örlítið djarfur og gleypti flautuna þegar leikmann brutu af sér. Það er hins vegar ekki hægt að kvarta yfir meiri hörku, svo lengi sem leikurinn fari ekki út í vitleysu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.