Fotbolti.net
Besta deildin
Viktor Ingi Valgarðsson
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 3
Þór/KA
Þór/KA
0 - 110' Hildur Anna Birgisdóttir0 - 240' Erin Flurey0 - 375' Hulda Ósk Jónsdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir
Leik lokið!
Þór/KA með sterkan 3-0 sigur.
Þór/KA að gera góða hluti og sterkur útisigur hér í dag.
Víkingsliðið þrátt fyrir að eiga boltann bara allan seinni hálfleik koma þær honum ekki í netið og það er augljós brekka framundan fyrir þetta Víkingslið.
Ég þakka fyrir mig héðan úr blíðunni í Hamingjunni.
92. mín
Sláinn!!!
Seinna skotið frá Theu Rhode er erfitt en gerir vel og er óheppin að þetta fer beint í slána.
92. mín
Síðasta tækifæri fyrir Víkinga að ná allavega marki, fá hornspyrnu.
90. mín
+3 í uppbót
89. mín
Þór/KA eru að landa þessum þremur mikilvægu stigum og ná að koma sér í efri hlutan á markatölu. Þrír leikir eftir fyrir skiptingu og Þór/KA heldur betur náð að snúa sínu tímabili við.

Víkingsliðið þarf að klífa alvöru brekku í leikjunum sem þær eiga eftir.
Þór/KA
87. mín
InnEmelía Blöndal Ásgeirsdóttir
ÚtHildur Anna Birgisdóttir
84. mín
Arna Ísold með fínt skot en Augur ver boltann.

Hornspyrna fyrir heimakonur.
82. mín
Víkingur í brasiiiii
Áslaug Dóra í smá veseni sem aftasti mður og missir boltann til Birgittu sem náði þó ekki nægilega góðu skot og boltinn rúllaði rétt framhjá.
Þór/KA
80. mín
InnAgnes Birta Stefánsdóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA
80. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtErin Flurey
Víkingur R.
79. mín
InnErna Guðrún Magnúsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
Víkingur R.
79. mín
InnCamilly Kristal Silva Da Rocha
ÚtJasmín Erla Ingadóttir
78. mín
Augur með mikilvæga snertingu á bolta sem stefndi á einhvern ótrúlegan hátt í fjærhornið. Gerði vel og ýtti boltanum yfir.
76. mín
Bergdís með skot í fangið á Alessöndru Augur.
Þór/KA
75. mín
3-0!!!

Hulda Ósk Jónsdóttir (stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir)

Hildur Anna tekur hornið á fjær, boltinn dettur og Hulda snýr baki í boltann en nær að koma honum í netið! einhverskonar hælspyrna væntanlega, Jasmín Erla reyndi að bjarga af línunni en það var eiginlega ómögulegt.
73. mín
Aðeins lifnað við Þór/KA þó svo að þær hafa ekkert litið illa út í seinni. Hafa verið mjög solid en eiga hornspyrnu hér.
Þór/KA
72. mín
InnKaren María Sigurgeirsdóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
Þór/KA
71. mín
Gult spjald

Erin Flurey

fyrir að sparka boltanum í burtu eftir innkast
Víkingur R.
70. mín
InnArna Ísold Stefánsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
68. mín
Þórdís Hrönn með skot úr erfiðri stöðu sem fer rétt yfir markið.
65. mín
Þetta er svolítið sama sagan aftur og aftur hjá Víking fram á við. Þær hafa haldið boltanum í sókn nánast allan seinni hálfleik en án þess að skapa sér eitthvað sem þær gætu síðan nýtt í að minnka muninn.
Þór/KA
60. mín
Gult spjald

Angela Mary Helgadóttir

58. mín
Fyrsta skiptið þar sem Þór/KA kemst með boltann yfir miðju í seinni, en Erin Flurey átti góðan sprett á hægri kantinum. Náði þó ekki að vinna samherji í teignum og endaði með boltann útaf.
Víkingur R.
57. mín
InnThea Rhode
ÚtSelma Dögg Björgvinsdóttir
55. mín
Þórdís Hrönn verður fyrir höggi og það blæðir eitthvað úr nefinu. Virðist vilja halda áfram leik.
54. mín
Víkingskonur verið mun mun betri til að byrja með og fá hér aukaspyrnu.
Gott úthlaup frá Augur í markinu og hún kýlir þetta í burtu.
52. mín
Dagný með skot sem fer í varnarmann og útaf.

En ein hornspyrnan fyrir Víkingsliðið.
50. mín
Saana Tuomala á gulu spjaldi fellur leikmann Þór/KA á miðjum velli.
46. mín
Myndir frá fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Þór/KA vilja eflaust halda áfram sínum sterka leik en Víkingur þarf að gefa í og finna mark. Risa þrjú stig sem eru í boði hér í blíðunni og einsog er þá fara þessi þrjú stig á leiðinni til Akureyrar.
45. mín
Hálfleikur
Þór/KA leiðir 2-0
Þetta hefur verið nokkuð jafnt þannig séð. En munurinn endanlega sá að Þór/KA hefur nýtt færin sín bara fullkomnlega. Víkingsliðið ekki skapað mikla hættu nema þarna alveg til að byrja með.
Nóg eftir og allt mögulegt, vonandi áfram haldandi skemmtun í þeim seinni.
45. mín
+1 í uppbót
Gott spil sem endar með sendingu í markmannsteiginn en Dagný aðeins á eftir og nær ekki að komast á undan í boltann. Vel gert hjá vörn Þór/KA sem hefur heldur betur staðið sitt.
Þór/KA
40. mín
2-0!!!

Erin Flurey (stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir)

Hildur Anna sallí róleg á miðjum vellinum á hægri kantinum. Sendir einn þæginlegan fram og Erin Flurey nær til boltans. Aftur ein á markmann og þetta sinn tekur hún gott skot sem endar í netinu.

Frábær sending og frábært mark. Þór/KA leiða með tveimur rétt fyrir hálfleik.
39. mín
Jasmín Erla næstum því!
Gerir ótrúlega vel í að stela boltanum og fer í frábært svæði fyrir skot en það fer rétt framhjá nærstönginni.

Þetta var alvöru færi til að jafna leikinn.
Víkingur R.
35. mín
Gult spjald

Saana Emilia Tuomala

Fær verðskuldað gult eftir að hanga í treyjunni á Erin Flurey.
33. mín
Saana Tuomala með tvö skot sem fara yfir markið með stuttu millibili.
30. mín
Víkingsliðið hefur verið meira með boltann síðustu mínútur en Þór/KA liðið gert vel í að loka á þessar síðustu fram á við sendingar hjá Víking.
29. mín
Víkingur að fá sitt þriðja horn, alvöru darraða dans en endar í höndunum á Alessöndru Augur.
22. mín
Erin Flurey ein á markið!!!
Góð sending og betra hlaup til að losna frá vörninni en Telma Ívars er vel á verði og nær á undan til boltans.
20. mín
Brot dæmt á Víking í hornspyrnu sem þær tóku.
16. mín
Þór/KA að fá aukaspyrnu í fínni fyrirgjafarstöðu eftir að boltinn fór í hendi á varnarmanni Víkings.
Aukaspyrnan góð en náðu ekki í hann, fá innkast samt.
Þór/KA
10. mín
Þór/KA 1-0!!!

Hildur Anna Birgisdóttir (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )

Vinna boltann ofarlega og Hulda Ósk á hægri kantinum finnur Hildi Önnu í teignum og hún setur hann undir Telmu sem verður bara að verja þennan bolta. Skotið var alls ekki sérstakt en dugði til og Þór/KA konur eru komnar yfir hér!
8. mín
Dagný rétt framhjá!
Góð fyrirgjöf frá vinstri sem datt fyrir Dagnýju líkt og í horninu en hún setti hann framhja. Þarna voru Þór/KA konur stálheppnar.
6. mín
Víkingur vill víti!
Einhver köll eftir vítaspyrnu uppúr hornspyrnunni, Dagný Rún virtist vera gera sig tilbúna í skot en Alessandra Augur kom fljúgandi í hana og virtist ekki ná neitt í boltann.
Sérstakur dómur verður að segjast svona við fyrstu sýn.
5. mín
Víkingur á fyrstu hornspyrnu leiksins.
4. mín
Upphafsmínútur verið jafnar en Hulda Ósk átti fyrsta skot leiksins sem var af löngu færi og Telma ekki í neinu veseni með að grípa boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Komið í gang!
Það er ótrúlegt veður sem við fáum hér frá veðurguðunum í dag. Sólin skín skært og léttur vindur sem ætti ekki að skemma neitt.
Allir leikir eru extra mikilvægir og þessi er það svo sannarlega fyrir bæði lið. Getum búist við alvöru baráttu hér frá byrjun til enda.
Þór/KA konur eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Síðast þegar liðin mættust
Það var ekkert verið að spara mörkin þann 30.maí á Akureyri þegar þessi lið mættust í 7.umferð Bestu Deildarinnar. Víkingsliðið fór heim með stigin þrjú eftir 6-4 sigur.
Víkingskonur áttu góðan fyrri hálfleik sem endaði 4-0. Þór/KA skoraði fyrsta markið í seinni en Víkingsliðið var ekki lengi að henda tveir í grillið á þeim. En fyrstu þrjú mörkin í seinni komu öll milli 60-70mín. Þór/KA liðið skoraði síðustu þrjú mörk leiksins en brekkan var orðin of brött og 6-4 lokaniðurstaða.
Fyrir áhugasama er hægt að horfa hér á þessa markaveislu sem fór fram síðast þegar þessi lið mættust.
Fyrir leik
Þór/KA
Gestirnir hér frá Akureyri byrjuðu deildina hægt en hafa fundið alvöru heimavalla skrið hjá sér uppá síðkastið. Þær hafa unnið síðustu fjóra heimaleiki sína en þar á milli eru tvö töp á útivelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA eru í 8.sæti tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Sigur hér væri virkilega dýrmætur fyrir þær því liðið kæmist í efri hlutan. Spurning hvort þær nái að færa heimavallastiga söfnun sína hingað til Hamingjunnar í leik kvöldsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Um þessar mundir eru leikir Víkingsliðsins heldur betur mikilvægir. Liðið er á botni Bestu Deildarinnar með 11stig en það styttist í skiptingu deildarinnar. Síðast þegar Víkingsliðið vann leik í Bestu Deildinni var 30.maí en það var einmitt gegn Þór/KA á Akureyri. Það hefur þó lítið sem ekkert gegnið hjá liðinu eftir það, fjögur töp i síðustu fimm leikjum liðsins með eitt jafntefli þar á milli. Horfandi á jákvæðuhliðarnar sem er yfirleitt skemmtilegra þá er góður upphafspunktur í dag til að hefja stigasöfnun og koma liðinu úr fallsæti en með sigri kemst liðið yfir Val og verður einu stigi frá fallsæti þegar þrír leikir verða eftir en auðvitað bætast við leikir eftir skiptingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur sótti stóran bita í glugganum en Telma Ívarsdóttir kom til liðsins og hefur leikið síðustu tvo leiki fyrir Víkingsliðið. Sigurborg Katla sem hafði varið markið þangað til Telma kom fékk lánssamning hjá FH út tímabilið. Innkoma Telmu hefur klárlega haft jákvæð áhrif því liðið hefur bara fengið eitt mark á sig í báðum leikjum sem hún hefur spilað en það hefur vantað uppá markaskorun hjá Víkingsliðinu til að stigin sem eru sótt verða þrjú stór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Bríet Bragadóttir er á flautunni.
Aðstoðardómari 1: Tijana Krstic
Aðstoðardómari 2: Ingibjörg Garðarsdóttir Briem
Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson
Dómaraeftirlitsmaðurinn er Kristján Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heilsum frá Hamingjunni!
Verið velkomin lesendur góðir á Víkingsvöllinn. Hér verður textalýsing í þráðbeinni frá leik Víkings og Þór/KA sem hefst á slaginu 18:00!
Þetta er næstsíðasti leikurinn í 15.umferð Bestu Deildar kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.