95. mín
Úrslitin úr leikjum kvöldsins
Leik lokið!
2-2 og þriggja stiga forskot Selfoss heldur áfram
Finnbogi Laxdal á eftir að naga handarbakið sitt, hann fékk allra síðasta færi leiksins sem var skot einn á Sabatti en vinkillinn of erfiður og hann setur hann framhjá fjærstönginni.
94. mín
Logi Mar grípur fyrirgjöf frá Ivan Paponja.
92. mín
InnAuðunn Logi Valdimarsson
ÚtEinar Breki Sverrisson
90. mín
Selfoss vill víti!!!!
Gestur Helgi lendir í úthlaupi Loga Mar og liggur eftir. Stúkan stendur upp en Hreinn Magnússon veifar þessu í burtu. Ég get alveg skilið pirring Selfyssinga á þessu.
90. mín
Víkingur Ó. - Þróttur V. 2-1
Kristófer Áki Hlinason hjá Víkingi fékk rautt spjald.
90. mín
Verður eflaust ekki mikið bætt við og því algjörlega síðasti séns til að stela stigunum þrem
90. mín
InnRobert Elli Vífilsson
ÚtMarinó Hilmar Ásgeirsson
86. mín
Kári með langt innkast...mikið að gerast í teignum en Kára menn ná ekki að koma skoti á markið.
84. mín
Hvíti Riddarinn - KFG 0-4
Ólafur Viðar Sigurðsson skorar með langskoti.
83. mín
FÆRIIII
Selfoss hefur tekið völdin hér síðustu mínútur og fengu gott færi en Elías Karl náði ekki poti í boltann.
83. mín
InnJón Þór Finnbogason
ÚtGrétar Jónatan Pálmason
82. mín
InnMaksymilian Luba
ÚtAron Fannar Birgisson
Meiddur af velli eftir tæklinguna frá Grétari.
80. mín
Gult spjald
Grétar Jónatan Pálmason
77. mín
Dalvík/Reynir - Magni 1-1
Tíu gegn ellefu jafna heimamenn. Gabriel Lukas Freitas Meira skoraði á 73. mínútu.
76. mín
Sabatti liggur eitthvað eftir, var vel á tánum og náði lúmskri sendingu sem að Marinó átti í teiginn úr aukaspyrnu.
74. mín
Gult spjald
Eysteinn Ernir Sverrisson
Eflaust ósáttur að fá ekki aðra hornspyrnu og fær spjald fyrir tuð.73. mín
Selfoss að fá horn, loksins fyrir þá mættir með boltann fram og Viðar Örn á skot í varnarmann sem rennur útaf.
73. mín
Aukaspyrnan sem Kári tekur er góð sending í teiginn en Stefán Logi nær ekki til boltans á fjær.
72. mín
Gult spjald
Bjarki Flóvent Ásgeirsson
Á glórulausa sendingu beint á mann Kára og þarf svo að hreinsa upp eftir sig.70. mín
Allt jafnt hér á Selfossi, næsta mark ef það verður gæti verið rándýrt!
ALLT JAFNT!!!
Tómas Týr Tómasson
Aftur er það hornspyrna sem skilar marki fyrir Kára. Þetta sinn bara góður skalli í fjær sem Filip Sabatti á ekki séns í.Allt jafnt hér á Selfossi, næsta mark ef það verður gæti verið rándýrt!
70. mín
Kári aftur að fá hornspyrnu.
68. mín
Víkingur Ó. - Þróttur V. 2-1
Eyþór Orri Ómarsson minnkar muninn fyrir Þróttara úr Vogum á 63. mínútu. Víkingur Ólafsvík 2-1 yfir.
67. mín
Sabatti grípur fyrirgjöf, Kára liðið algjörlega átt þennan seinni hálfleik en án árangurs hingað til, man ekki eftir að Selfoss komst með boltann yfir miðjuna í seinni.
65. mín
Dalvík/Reynir - Magni 0-1
Magnamenn komnir yfir gegn tíu Dalvíkingum. Tómas Örn Arnarson skoraði á 59. mínútu.
64. mín
Gult spjald
Viðar Örn Kjartansson
Tók Grétar Jónatan niður við hliðarlínuna.63. mín
Gult spjald
Benedikt Ísar Björgvinsson
Sá ekki alveg hvort það var Benedikt eða Árni Salvar sem fékk að líta gula spjaldið63. mín
Logi Mar fékk smá aðhlynningu eftir samstuð og síðan var Sabatti með hörkuvörslu aftur.
61. mín
Víkingur Ó. - Þróttur V. 2-0
Naim Aaras El Hmaidi skoraði sitt annað mark og annað mark Ólsara. Hann á 23 ára afmæli í dag og heldur upp á daginn með stæl.
60. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
60. mín
InnGestur Helgi Snorrason
ÚtBrynjar Bergsson
60. mín
Stefán Logi brýtur á Viðari en hann fær brotið, stendur síðan yfir og lætur Viðar heyra það. Ég skil ekki hvernig hann dæmir Viðar brotlegan en það er smá hiti í mönnum
57. mín
Sabatti með vörslu!!!
Sýndist það vera Mikael Hrafn sem átti skotið og það var mjög gott en varslan einfaldlega bara betri.
Var varið í horn en varð ekkert úr henni.
Var varið í horn en varð ekkert úr henni.
53. mín
Dalvík/Reynir - Magni 0-0
Á Dalvík kom rautt spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Elvar Máni Guðmundsson hjá heimamönnum fékk brottvísun fyrir olnbogaskot.
52. mín
Kári hefur verið líflegra liðið til að byrja með og eru að fá aðra hornspyrnu.
49. mín
Fyrsta hornspyrna seinni hálfleiks er Kára manna.
Sigurjón Logi með skallann aftur fyrir sig rétt framhjá.
Sigurjón Logi með skallann aftur fyrir sig rétt framhjá.
46. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtFrosti Brynjólfsson
Eina skiptingin í hálfleik. Frosti átti frábæran fyrri hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Það er bara eitt mark sem skilur að í þessu, spennandi 45 framundan og Selfoss á upphafssparkið.
45. mín
Hvíti Riddarinn - KFG 0-3
Garðbæingar skoruðu tvö mörk í lok fyrri hálfleiks í botnslagnum í Mosó! Brynjar Gauti Guðjónsson skoraði með skalla eftir horn á 43. mínútu og rétt fyrir hálfleik skoraði Gísli Snær Weywadt Gíslason eftir skyndisókn.
Hálfleikstölur í leikjum kvöldsins
Hvíti riddarinn-KFG 0-3
Fjölnir-KFA 1-2
Selfoss-Kári 2-1
Víkingur Ó.-Þróttur V. 1-0
Dalvík/Reynir-Magni 0-0
Kormákur/Hvöt-Haukar 1-2
Hálfleikstölur í leikjum kvöldsins
Hvíti riddarinn-KFG 0-3
Fjölnir-KFA 1-2
Selfoss-Kári 2-1
Víkingur Ó.-Þróttur V. 1-0
Dalvík/Reynir-Magni 0-0
Kormákur/Hvöt-Haukar 1-2
45. mín
Hálfleikur
2-1 fyrir Selfoss í hálfleik
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið, smá spes kannski að Hreinn Magnússon á flautunni flautaði til hálfleiks í miðri hornspyrnu en sitt sýnist hverjum. Kára menn allavega ósáttir en þeir halda sér heldur betur í leiknum, framundan meiri spenna og skemmtun.
45. mín
Kári að minnka muninn!
Árni Salvar Heimisson
Fengu hornspyrnu og verður örlítið panik í teignum síðan fær Árni boltann í sig og nær að snúa og kemur boltanum í netið.43. mín
Hvíti Riddarinn - KFG 0-1
Ólafur Viðar Sigurðsson skoraði með hreint frábæru skoti og kom KFG yfir gegn Hvíta í Mosfellsbænum. Staðan hjá Dalvík/Reyni og Magna er enn markalaus.
42. mín
Virkilega vel klárað og Selfoss komnir tveimur mörkum yfir!
2-0!!!
Bjarki Flóvent Ásgeirsson
Sókn hjá Selfossi, smá dútl í gangi þegar boltinn dettur síðan í lappirnar hjá Bjarka Flóvent sem stendur rétt í teignum við miðju og hann smellir honum niður í fjær.Virkilega vel klárað og Selfoss komnir tveimur mörkum yfir!
41. mín
Aron Fannar reyndi að koma boltanum fyrir en Logi Mar gerði vel og át sendinguna.
39. mín
Fjölnir - KFA 1-2
Áhugaverð staða í Grafarvoginum þar sem KFA hefur náð að snúa þessu við. Marc Sirvent Espi kom KFA yfir á 32. mínútu.
38. mín
Kári að fá sitt fyrsta horn
Sabatti rís hæst þegar fyrirgjöf kemur í teiginn eftir hornið.
Sabatti rís hæst þegar fyrirgjöf kemur í teiginn eftir hornið.
35. mín
Víkingur Ó. - Þróttur V. 1-0
Naim Aaras El Hmaidi skoraði eftir hálftíma leik í Ólafsvík.
34. mín
Mikið fram og tilbaka á færa, en Marinó Hilmar reyndi erfitt skot sem fór yfir markið.
29. mín
Kormákur/Hvöt - Haukar 1-2
Jón Gísli Stefánsson kom Haukum 0-2 yfir en Pere Belmonte minnkaði muninn á 24. mínútu.
28. mín
Fjölnir - KFA 1-1
Patrekur Aron Grétarsson jafnaði fyrir Austfirðinga á 21. mínútu. Allt jafnt í Grafarvoginum.
27. mín
Mikael Hrafn með fína skot tilraun sem endar þó framhjá fjærstönginni.
26. mín
Aðeins búið að lifna við Kára, áttu fína fyrirgjöf en Selfoss vann þann darraða dans. Síðan var Marinó nálægt því ná í boltann eftir gegnum sendingu, en Filip Sabatti var vel á verði og sópaði þetta upp.
23. mín
En ein fína sóknin hjá Selfoss en Benedikt Ísar gerir vel og endar að sækja brot til að stoppa sóknina.
22. mín
Aftur Viðar Örn á nær!
Eysteinn með geggjaða hreyfingu til að losna á kantinum kemur boltanum fyrir markið og Viðar Örn á pot en boltinn framhjá samskeitunum.
21. mín
Kormákur/Hvöt - Haukar 0-1
Toppliðið er yfir. Haukar eru að vinna á Blönduósi. Tómas Atli Börgvinsson skoraði á 11. mínútu.
20. mín
Þetta hefur verið allt Selfoss til að byrja með en Kára liðið hefur ekki náð að gera mikið í þau fáu skipti þegar þeir halda í boltann.
15. mín
Fjölnir - KFA 1-0
Við munum líka reyna að fylgjast eitthvað með gangi mála í hinum leikjunum. Fjölnismenn, sem eru í fjórða sæti, eru 1-0 yfir gegn KFA. Árni Steinn Sigursteinsson skoraði strax á þriðju mínútu leiksins.
14. mín
Næstum því færi hjá Kára en Finnbogi Laxdal nær ekki að taka við boltanum. Eysteinn Ernir gerir vel í vörninni og sækir síðan brot.
10. mín
Safarík Selfoss byrjun
Heimamenn byrja mjög vel, komnir með mark og halda áfram að ógna.
Aftur er það Frosti sem kemur boltanum út í teiginn en skotið frá Aroni Fannar fer yfir markið
Aftur er það Frosti sem kemur boltanum út í teiginn en skotið frá Aroni Fannar fer yfir markið
8. mín
Næstum því!!
Frosti á vinstri kantinum kemur boltanum rétt við nærstöngina og Viðar Örn á skot en það fer rétt framhjá stönginni.
5. mín
Viðar Örn með erfitt skot sem hann kemur þó á markið en Logi Mar ver.
Selfoss fær þó fyrsta hornið.
Selfoss fær þó fyrsta hornið.
2. mín
Kemur smá ská á við markið og setur hann niðri í fjær.
Við erum farinn af stað!
Frosti Brynjólfsson (stoðsending: Ivan Paponja)
Selfoss átti aukaspyrnu við teiginn sinn og meðan maður blikkaði var Frosti kominn einn í gegn og hann klárar mjög vel.Kemur smá ská á við markið og setur hann niðri í fjær.
1. mín
Leikur hafinn
Boltinn rúllar af stað!
Aðstæðurnar eru nokkuð huggulegar hér á Selfossi. Það fer enginn að kvarta undan þessu. Við stefnum líka ekkert á að kvarta yfir leiknum, Kári á upphafsspark.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Selfoss gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Ívan Breki sem skoraði er ekki í hóp og líka Dagur Jósefsson. Inn fyrir þá koma þeir Einar Breki og Brynjar Bergsson.
Byrjunarlið Kára er það sama og í síðustu umferð þar sem þeir unnu sterkan 4-1 sigur gegn Víking Ó.
Byrjunarlið Kára er það sama og í síðustu umferð þar sem þeir unnu sterkan 4-1 sigur gegn Víking Ó.
Fyrir leik
Hvernig fór síðast?
Í 7.umferð þann 10.júní mættust Kári og Selfoss í Akraneshöllinni. Þar komust Selfoss yfir með marki á 46.mín frá Frosta Brynjólfs og síðan í 2-0 á 81.mín með marki frá Guðmundi Stefáns. Kára-menn voru þó ekkert búnir en Árni Salvar minnkaði muninn á 83.mín og síðan jafnaði Sigurjón Logi á 86.mín. Þannig lokastaðan var 2-2 jafntefli.
Fyrir leik
Kári
Tímabil Kára hefur verið mjög öflugt. Fljótt á litið sér maður þó jafnteflin sem liðið hefur gert. 8 jafnteflisleikir sem er það mesta í deildinni. En einsog er ritað hér fyrir neðan þá er Kári með töluvert betri markatölu en Selfoss og því er 2.sætið í boði ef þeir sækja stigin þrjú. Þeir hafa ekki tapað leik í síðustu sex en fyrir það var tap gegn toppliði Hauka.

Fyrir leik
Selfoss
Heimamenn koma í þennan leik með rjúkandi heitan Viðar Örn Kjartansson og liðið svo sem í heild. 6-2 endurkomu pökkun gegn Fjölnir í síðustu umferð. Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum. Viðar Örn í þeim leik með 5mörk og eina stoðsendingu. Annar heimaleikur Selfoss í röð og þeir hafa verið að gera góða hluti á JÁVERK-vellinum sínum.
Stórar fréttir komu einnig frá Selfossi, en Jón Daði Böðvarsson hefur lagt skóna á hilluna en hann spilaði 11 leiki með Selfoss þetta tímabil og skoraði í þeim 3 mörk. Einnig fór efnilegur Aron Lucas Vokes á lán til ÍBV í Bestu Deildina.

Fyrir leik
Dómarateymið
Hreinn Magnússon er á flautunni.
Ragnar Arelíus Sveinsson og Sigurður Þór Sveinsson eru Aðstoðardómarar 1 og 2.
Einar Örn Daníelsson er Dómaraeftirlitsmaður.

Einar Örn Daníelsson er Dómaraeftirlitsmaður.
Fyrir leik
RISA LEIKUR í 2.deild!
Selfoss í 2.sæti á móti 3.sæti Kára! Þrjú stig sem skilja liðin að, öll 18.umferðin fer fram í dag. Sénsunum fer fækkandi hjá liðum að komast í eftirsóttu sætin tvö. En bæði lið hér í dag á JÁVERK-vellinum á Selfossi koma hungruð í þrjú dýrmæt stig.
Fyrir leik
miðvikudagur 19. ágúst
18:00 Hvíti riddarinn-KFG (Malbikstöðin að Varmá)
18:00 Fjölnir-KFA (Extra völlurinn)
18:00 Selfoss-Kári (JÁVERK-völlurinn)
18:00 Víkingur Ó.-Þróttur V. (Ólafsvíkurvöllur)
18:00 Dalvík/Reynir-Magni (Dalvíkurvöllur)
18:00 Kormákur/Hvöt-Haukar (Blönduósvöllur)
18. umferð 2. deildar karla

miðvikudagur 19. ágúst
18:00 Hvíti riddarinn-KFG (Malbikstöðin að Varmá)
18:00 Fjölnir-KFA (Extra völlurinn)
18:00 Selfoss-Kári (JÁVERK-völlurinn)
18:00 Víkingur Ó.-Þróttur V. (Ólafsvíkurvöllur)
18:00 Dalvík/Reynir-Magni (Dalvíkurvöllur)
18:00 Kormákur/Hvöt-Haukar (Blönduósvöllur)




Fjölnir-KFA 1-2
Selfoss-Kári 2-2
Víkingur Ó.-Þróttur V. 2-1
Dalvík/Reynir-Magni 1-1
Kormákur/Hvöt-Haukar 1-2