Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Evrópubikar kvenna
Eikarvöllurinn
Breiðablik
Breiðablik
8 - 1
Csikszereda
Csikszereda
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 6'1 - 0Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 9'2 - 0Sunna Rún Sigurðardóttir 24'3 - 0Líf Joostdóttir van Bemmel 26'4 - 0Kristín Dís Árnadóttir 42'5 - 0Sunna Rún Sigurðardóttir 47'6 - 0Sunna Rún Sigurðardóttir 52'7 - 0Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 54'8 - 08 - 179' Csilla Balasz
Dómari: Sofiya Prychyna (Úkraína)
Leik lokið!
+2
Virkilega sanngjarn sigur Blika staðreynd. Þær stjórnuðu þessum leik frá upphafi til enda. Ég þakka fyrir samfylgdina, þangað til næst.
90. mín
+1
Hrafnhildur Ása reynir skot sem fer framhjá.
Csikszereda
90. mín
Of sein í tæklinguna

Csilla Balasz

90. mín
Tvær í uppbót
87. mín
Dauðafæri!
Bryndís Arna þræðir Hrafnhildi Ásu í gegn, hún er ein á Bettinu en skotið er ekki gott og fer framhjá fjærstönginni.
85. mín
Blikar fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
84. mín
Hrafnhildur Ása!
Hrafnhildur Ása kemst í gegn og nær skoti sem fer framhjá.
83. mín
Áhorfendatölur eru komnar í hús!
Það eru 268 áhorfendur á Eikarvellinum í kvöld.
Csikszereda
79. mín
Mark upp úr þurru

Csilla Balasz

Csilla fær boltann fyrir utan teig, hún tekur skot sem fer í varnarmann og flýgur í boga yfir Herdísi í markinu.
78. mín
Gestirnir fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en Bryndís hreinsar frá.
76. mín
Rangstaða
Bryndís vinnur boltann, kemur honum á Hrafnhildi Ásu en hún er dæmd rangstæð.
71. mín
Fyrirgjöf og skalli
Hrafnhildur Ása kemur með góða fyrirgjöf á Bryndísi en hún stangar boltann framhjá markinu.
70. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á fínum stað
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
Breiðablik
69. mín
InnÞórdís Elva Ágústsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
Breiðablik
69. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtKristín Dís Árnadóttir
66. mín
Kristín Vala vinnur horn fyrir Blika
Boltinn kemur inn á teiginn og Karitas nær skalla en hann er laus og siglir framhjá marki gestanna.
Csikszereda
65. mín
InnLeila Szolomájer
ÚtPinja Xi Mei Eklund
Csikszereda
65. mín
InnPanna Klára Zán Fábian
ÚtAndrea Herczeg
Csikszereda
65. mín
InnBoglarka Fulop
ÚtAnna Ezer
63. mín
Gestirnir fá sína aðra hornspyrnu
Fyrirliðinn kemur með boltann inn á teiginn en Herdís Halla grípur boltann og Blikar hefja nýja sókn.
62. mín
Skot
Andrea reynir skot fyrir utan teig sem fer framhjá.
61. mín
Rangstaða
Bryndís fær boltann inni á teignum en rangstaða dæmd.
Breiðablik
59. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtLíf Joostdóttir van Bemmel
Jeffs gerir tvöfalda breytingu
Breiðablik
59. mín
InnKristín Vala Stefánsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
57. mín
Gestirnir fá sína fyrstu hornspyrnu
Fyrirliðinn kemur með boltann inn á teiginn en Blikar skalla frá.
55. mín
Mark en rangstaða dæmd
Agla María kemur boltanum í netið en það er flaggað.
Breiðablik
54. mín
Ég hef aldrei séð annað eins!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Hrafnhildur Ása fær boltann fyrir utan vítateig. Hún keyrir í átt að marki gestanna, hún lætur síðan vaða og boltinn syngur í fjærhorninu.
Csikszereda
53. mín
Inn Aranka Orban
ÚtAndria Efstratiou
Csikszereda
53. mín
InnAnabelle Nombot
ÚtFlóra Katona
Breiðablik
52. mín
Fyrirgjöf og mark!

Sunna Rún Sigurðardóttir (stoðsending: Edith Kristín Kristjánsdóttir)

Edith kemur með fyrirgjöf frá vinstri sem ratar beint á Sunnu sem potar honum í netið.
50. mín
Líf vinnur horn fyrir Breiðablik
Agla María kemur með boltann inn á teiginn en Bettina nær að kýla frá. Blikar fá síðan aðra hornspyrnu. Boltinn kemur inn á teiginn en hann endar í markspyrnu.
Breiðablik
47. mín
Þetta var mjög einfalt

Sunna Rún Sigurðardóttir (stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir)

Karitas þræðir Hrafnhildi Ásu í gegn, hún fær endalausan tíma til að athafna sig og kemur boltanum fyrir á Sunnu sem getur ekki gert annað en skorað.
46. mín
Blikar byrja með boltann í seinni
Þær sækja í átt að Fífunni.
Breiðablik
46. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
45. mín
Mini myndaveisla frá Hafliða í hálfleik. Njótið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
HÁLFLEIKSTÖLFRÆÐI (UEFA)
Marktilraunir: 18 - 1
Skot á mark: 11 - 1
Hornspyrnur: 7 - 0
Rangstöður: 2 - 0
45. mín
Hálfleikur
Algjör einstefna
Blikar hafa stjórnað þessum leik frá fyrstu mínútu. Þær eru að skapa sér fullt af færum en gestirnir komast varla yfir miðju. Það kæmi mér verulega á óvart ef að mörkin yrðu ekki fleiri á Eikarvellinum.

Tökum okkur korter.
45. mín
Agla vinnur horn fyrir Blika
Boltinn kemur inn á teiginn og Elís nær skoti sem fer framhjá.
Breiðablik
42. mín
Ja hérna hér. Sannkallað markaregn á Eikarvellinum!

Kristín Dís Árnadóttir (stoðsending: Sunna Rún Sigurðardóttir)

Agla finnur Sunnu við vítateigshornið eftir hornspyrnu. Hún leikur á eina og laumar boltanum inn á teiginn, þar tekur Kristín Dís eina snertingu og setur boltann framhjá Bettinu í markinu.

Staðan orðin virkilega svört fyrir gestina.
41. mín
Skot og horn
Agla nær góðu skoti inni á teignum en Bettina ver í horn.
40. mín
Hættuleg fyrirgjöf!
Agla er með boltann úti hægra megin. Hún kemur með hættulega fyrirgjöf inn á teiginn sem Bettina missir af og boltinn flýgur yfir allan pakkann.
38. mín
Rangstaða
Agla María fær boltann inni á teignum en rangstaða dæmd.
37. mín
Fyrirgjöf og skot
Edith kemur með lúmska fyrirgjöf á Líf, hún nær snertingu á boltann en framhjá fer hann.
36. mín
Skot
Sunna Rún leikur á eina, kemst upp að endamörkum og kemur með fyrirgjöf sem er hreinsuð frá. Boltinn berst til Karitas sem tekur fast skot í fyrsta sem Bettina ver og heldur.
Csikszereda
35. mín
Gult spjald

Anna Ezer

Of sein í tæklinguna
33. mín
Úlfa Dís vinnur horn fyrir Blika
Agla María kemur með boltann inn á teiginn en hann flýgur yfir allan pakkann og í markspyrnu.
Csikszereda
31. mín
Gult spjald

Flóra Katona

Hún braut af sér áðan en hagnaði var beitt.
29. mín
Fyrirgjöf og skalli
Agla María kemur með flotta fyrirgjöf eftir aukaspyrnu og Líf nær skalla sem er varinn.
Breiðablik
26. mín
ÞÁ ER ÞETTA ENDANLEGA BÚIÐ!

Líf Joostdóttir van Bemmel (stoðsending: Sunna Rún Sigurðardóttir)

Karitas kemur með stungu sem varnarmaður kemst í en varnarmaðurinn gefur boltann beint til Sunnu, hún kemur boltanum á Líf sem skorar.
Breiðablik
24. mín
Þær eru að ganga frá þessum leik í fyrri hálfleik!

Sunna Rún Sigurðardóttir (stoðsending: Edith Kristín Kristjánsdóttir)

Edith gerir virkilega vel, hún kemst upp að endamörkum og kemur með virkilega góða fyrirgjöf sem Líf nær ekki til. Sunna lúrir á fjær og setur boltann í autt markið.
21. mín
Rangstaða
Elísa finnur Úlfu en rangstaða dæmd.
18. mín
Blikar fá aukaspyrnu á ágætum stað
Agla kemur með boltann inn á teiginn en þær ná að hreinsa frá.
17. mín
Dauðafæri og horn
Agla þræðir Líf í gegn en Bettina sér við henni og Blikar fá horn. Ekkert varð úr þessari spyrnu.
15. mín
Gestirnir komast ekki yfir miðju
Blikar hafa svo sannarlega stjórnað þessum leik og gestirnir komast ekkert í boltann.
13. mín
Góð staða
Agla finnur Líf sem kemst í gegn með mann í sér. Hún reynir að senda boltann en sendingin er laus og Bettina grípur boltann.
11. mín
Skot og horn!
Líf spænir upp kantinn, kemst inn á teiginn en skotið í varnarmann og aftur fyrir. Elísa nær skalla eftir hornið en yfir fór hann.
Breiðablik
9. mín
ÞVÍLÍKT MARK!

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir

Hornspyrnan kemur inn á teiginn, þær ná að skalla frá en boltinn ratar beint á Úlfu Dís sem tekur boltann á lofti og upp í samskeytin fór hann.

Blikar með mikla yfirburði í byrjun leiks.
9. mín
Skot og horn!
Sunna Rún nær góðu skoti inni í vítateig sem er varið í horn.
Breiðablik
6. mín
Fullkomin fyrirgjöf og afgreiðslan góð!

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )

Agla fær boltann úti vinstra megin, hún tekur nokkrar snertingar í átt að endamörkum. Hún kemur með frábæra fyrirgjöf á Úlfu Dís sem er ein og óvölduð við markmannsteiginn og kemur boltanum í netið.
3. mín
Blikar fá fyrsta horn leiksins
Þær taka þetta stutt en gestirnir koma boltanum í innkast.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik
Jehovah sparkar þessu í gang.
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Það eru fimm mínútur í leik og það styttist verulega í að þessi veisla byrji. Blikar eru í sínum grænu búningum en FK Csíkszereda í hvítum.
Fyrir leik
Frábærar aðstæður
Vallaraðstæður dagsins eru úr efstu hillu. Sól, hlýtt og logn á Eikarvellinum í dag. Það er einnig búið að vökva gervigrasið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Liðin eru komin inn. Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar á sínu liði eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni.

Fyrir leik
Aðeins um gestina
FK Csíkszereda kemur frá Miercurea Ciuc í Rúmeníu og hafnaði í öðru sæti rúmensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Með þeim árangri tryggði liðið sér sæti í Evrópubikarnum og er þetta í fyrsta sinn sem kvennalið félagsins tekur þátt í Evrópukeppni.
Fyrir leik
Evrópuævintýri Blika
Blikar hófu Evrópuævintýrið sitt á tímabilinu í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, þar sem leikið var í Kasakstan. Fyrsti leikurinn var gegn heimakonum í FC Aktobe 4. ágúst. Katelyn Duong kom Blikum yfir á 16. mínútu en Aktobe jafnaði metin. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Þar hafði Aktobe betur, 2-0 í vítaspyrnukeppninni, og Blikar misstu þar með af möguleikanum á að komast áfram í úrslitaleik undankeppninnar.

Þremur dögum síðar mættu Blikar Dinamo-BSUPC frá Hvíta-Rússlandi í leik um þriðja sætið. Sá leikur varð heldur betur dramatískur. Dinamo komst yfir strax á 14. mínútu en missti leikmann af velli aðeins tveimur mínútum síðar. Karitas Tómasdóttir jafnaði fyrir Blika á 53. mínútu áður en Dinamo komst aftur yfir á 62. mínútu. Allt stefndi í 2-1 tap Blika en Agla María Albertsdóttir jafnaði í uppbótartíma og tryggði framlengingu. Agla María var síðan aftur á ferðinni á 102. mínútu og skoraði sigurmarkið í 3-2 sigri Breiðabliks.

Blikar enduðu því í þriðja sæti undankeppnismóts Meistaradeildarinnar og leið þeirra lá þaðan yfir í Evrópubikar UEFA, þar sem næsta verkefni er einvígi gegn FK Csíkszereda frá Rúmeníu. Fyrri leikurinn fer fram á heimavelli Blika 26. ágúst áður en liðin mætast aftur í Rúmeníu 2. september.

Þetta verður því þriðji Evrópuleikur Blika á tímabilinu, eftir grátlegt tap í vítaspyrnukeppni gegn Aktobe og dramatískan 3-2 sigur gegn Dinamo-BSUPC.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið kemur frá Úkraínu
Sofiya Prychyna er aðaldómari leiksins. Henni til aðstoðar eru Oleksandra Vdovina og Maryna Striletska. Fjórði dómari er Liudmyla Telbukh.
Fyrir leik
Evrópubikarinn heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Eikarvellinum þar sem Breiðablik og FK Csíkszereda eigast við í Evrópubikarnum. Flautað verður til leiks á slaginu 17:30.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.