SKÝRSLAN: Laufléttur sigur Blika-kvenna
Hvað réði úrslitum?
Þetta er einfalt. Breiðablik eru til muna betra lið en FK Csikszereda, þær eru betur spilandi, með betri leikmenn og einfaldlega miklu betri á öllum sviðum leiksins. Það sást vel í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Sunna Rún Sigurðardóttir
Mögnuð í dag. Skorar þrennu og leggur upp tvö. Hún var einnig oft á tíðum að leika sér að vinstri bakverðinum sem átti virkilega erfiðan dag.
2. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Hún spilaði aðeins hálfleik í kvöld en skoraði tvö góð mörk og skapaði mikinn usla. Seinna markið var úr efstu hillu og eftir það opnuðust flóðgáttirnar.
Atvikið
Þetta gullfallega annað mark sem Úlfa Dís skoraði. FK Csikszereda gáfust upp eftir það og mörkunum rigndi inn.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Blikar fara með 8-1 forystu í seinna einvígið, sem er í Rúmeníu. Það er óhætt að segja að þetta einvígi er svo gott sem búið.
Vondur dagur
Allar í FK Csikszereda áttu vondan dag. Þær voru engan veginn mættar til leiks. Þær voru aldrei nálægt mönnum, það var engin ákefð í liðinu og þær sköpuðu varla færi þangað til markið kom en það var heppnisstimpill yfir því.
Dómarinn - 7
Sofiya Prychyna dæmdi vel ásamt línuvörðunum.


