Fotbolti.net
Magnús Atlason
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Fullkomið fótboltaveður, 10°,logn og stemming!
Afturelding
Afturelding
2 - 0
Grótta
Grótta
Joacim Emil Godhei Holtan 30'1 - 0Joacim Emil Godhei Holtan 84'2 - 0
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Afturelding með 5 stiga forskot á toppnum
Twana flautar til leiksloka. Sanngjarn 2-0 sigur Mosfellinga staðreynd. Afturelding komnir í frábæra stöðu og hér er fagnað. Viðtöl og skýrsla koma inn í seinna í kvöld, ég þakka fyrir mig.
90. mín
Að lágmarki þremur mínútum bætt við.
Afturelding
85. mín
InnBirkir Már Sævarsson
ÚtÓðinn Bjarkason
Afturelding
84. mín
Aftur er það Joacim

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson)

Það hlaut að koma mark úr horni á endanum.

Hornspyrnan inn í teiginn og skotið er blokkað af Gróttumanni, frákastið er svo flikkað af Kristni Frey á Joacim sem skallar upp í þaknetið.

Orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með 15 mörk og Mosfellingar geta farið að finna lyktina Bestu Deildinni á ný.
Grótta
82. mín
Hiti í þessu

Viktor Orri Guðmundsson

79. mín
Bjartur Bjarmi reynir skot utan af velli en skotið framhjá.
Afturelding
79. mín
Heimamenn orðnir pirraðir

Enes Þór Enesson Cogic

Afturelding
77. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

76. mín
Aukaspyrna í fyrirgjafastöðu hjá Gróttu en Arnar gerir vel.

Grótta hefur haldið vel í boltann síðustu 10 mínútur en það er erfitt að brjóta niður vörn heimamanna.
Grótta
75. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtBjörgvin Brimi Andrésson
Þreföld skipting
Grótta
75. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtDagur Bjarkason
Grótta
75. mín
InnAndri Freyr Jónasson
ÚtAxel Sigurðarson
68. mín
Leikurinn hefur róast mikið undanfarnar mínútur, hvorugt liðið líklegt til þess að skora í augnablikinu.
Afturelding
66. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtSævar Atli Hugason
63. mín
Tristan tekur aukaspyrnuna sem er slök og hún fer vel framhjá markinu.
Afturelding
62. mín
Gult spjald

Sævar Atli Hugason

Peysutog sem stoppar skyndisókn.
60. mín
Mattías Kjeld vinnur boltann á miðjunni og fær flugbraut. Hann tekur á rás og kemur svo með sendinguna inn fyrir á Axel sem er einn á móti Arnari en rangstaða dæmd. Mögulega ekki réttur dómur.
Grótta
58. mín
InnTristan Freyr Ingólfsson
ÚtPatrik Orri Pétursson
Tvöföld skipting
Grótta
58. mín
InnHrannar Ingi Magnússon
ÚtEinar Tómas Sveinbjarnarson
56. mín
Er löngu búinn að missa tölu á hornspyrnum heimamanna. Þær eru orðnar margar.
55. mín
Enes tekur hornspyrnu sem fer beint á kollinn á Bart sem á skallann en aftur ver Guðmundur vel.
53. mín
Axel með langt innkast inn í teiginn. Bart flikkar honum áfram á Joacim sem tekur skotið á lofti í fyrsta en Guðmundur ver vel.
Afturelding
50. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtHaukur Örn Brink
49. mín
Heimamenn komnir upp að endamörkum, sendingin út í teiginn á Sævar sem á skotið beint í Gróttumann sem hendir sér fyrir skotið.
46. mín
Axel sparkar seinni hálfleiknum af stað.
45. mín
Hálfleikur
Twana flautar hér til hálfleiks. Afturelding hafa verið sterkari aðilinn í þessum fyrri hálfleik en Grótta hefur líka fengið sín færi. Tökum okkur korter.
45. mín
45+1
VÁ þetta hefði orðið flott mark. Sævar Atli með svakalegan sprett inn í teiginn, klobbar einn, kemst framhjá öðrum og ákveður að taka skotið sem fer rétt framhjá. Áhorfendur héldu að þessi hafi farið inn.
Afturelding
44. mín
Gult spjald

Axel Óskar Andrésson

Tekur niður nafna sinn í uppspili Gróttu. Óþarfa brot en Axel Óskar er pirraður. Klárt gult að mínu mati.
40. mín
Afturelding búnir að fá fjórar hornspyrnur á mjög stuttum tíma en þær hafa allar verið illa útfærðar.
36. mín
Það er allt annað að sjá til Mosfellinga eftir markið.
Afturelding
30. mín
MAARRKKKK

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Bjartur Bjarmi Barkarson)

Bjartur Bjarmi kemur með fyrirgjöf beint á kollinn á Joacim Holtan sem rís manna hæst ogstangar boltann framhjá Guðmundi.

Þetta var 14. mark Joacims í deildinni og hann er þá orðinn markahæstur ásamt Óðni og Dominik Radic.
24. mín
Færi
Boltinn kominn upp að endalínu og sendingin kemur út í teiginn þar sem Bart er óvaldaður. Hann hefði mögulega mátt vera fljótari að ná skotinu en það fer beint í Gróttumann. Óðinn nær frákastinu en aftur komast Gróttumenn fyrir. Illa farið með góða stöðu.
21. mín
Grótta fær aukaspyrnu á hættulegum stað.

Grímur Ingi með spyrnuna í markmannshornið en Arnar vissi alltaf að þetta væri á leiðinni yfir.
19. mín
Grótta í vandræðum með að koma boltanum frá og Óðinn nær valdi á honum í fínni stöðu en skotið yfir markið. Fyrsta almennilega skotfæri heimamanna.
18. mín
Mér finnst eitthvað vanta sóknarlega hjá Aftureldingu. Þeir hafa haldið vel í boltann og komist í ágætar stöður en um leið og boltinn nálgast teiginn verða þeir kærulausir.
15. mín
Óðinn reynir fyrirgjöfina inn í teiginn en boltinn beint í fangið á Guðmundi.
10. mín
Gestirnir hafa verið ívið sterkari þessar fyrstu mínútur en annars hefur lítið verið að frétta.
6. mín
Björgvin Brimi með hættulegan bolta inn í teiginn á Einar sem sendir fyrir en Afturelding hreinsar í horn.
4. mín
Kröftugur sprettur hjá Kristóferi Dan sem vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað fyrir gestina. Mattías Kjeld stendur yfir boltanum.

Hann vill líklega gleyma þessari spyrnu sem fyrst, hátt yfir markið.
1. mín
Leikurinn kominn í gang
Joacim Holtan sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Stemming í Mosó
Nóg af fólki í stúkunni á þessu fína þriðjudagskvöldi. Mosfellingar vita hvað er undir í dag. Heimasigur þýðir ekkert annað en að Afturelding verður með 9 fingur á Lengjudeildartitlinum fyrir síðustu tvær umferðirnar.
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Maggi gerir eina breytingu á sínu liði eftir slátrunina á Ægi í síðustu umferð. Óðinn Bjarkason kemur inn í liðið í stað Enes Cogic.

Rúnar gerir fimm breytingar frá tapinu gegn ÍR í síðustu umferð. Inn í liðið koma Jónatan Ari Bragason, Patrik Orri Pétursson, Axel Sigurðarson, Einar Tómas Sveinbjarnarson og Kristófer Dan Þórðarsson. Hrannar Ingi Magnússon, Andri Freyr Jónasson, Halldór Hilmir Þorsteinsson, Tristan Freyr Ingólfsson og Emil Skúli Einarsson eru teknir úr liðinu.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin mættust á Vivaldi-vellinum í fjórðu umferð deildarinnar. Leikurinn fór 3-1 fyrir Mosfellingum. Mark Gróttu skoraði Grímur Ingi Jakobsson en mörk Aftureldingar skoruðu Bart Kooistra, Elmar Cogic og Óðinn Bjarkason sem er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Dominik Radic í HK með 14 mörk hvor.

Hér má sjá allt það helsta úr leiknum.

Fyrir leik
Grótta
Gengi Gróttu í sumar hefur verið kaflaskipt. Þeir hafa náð að tengja saman sigra en svo hafa þeir lent í brekkum. Nú eru þeir í einni slíkri.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Þeir hafa ekki unnið í síðustu fjórum leikjum, tvö jafntefli og tvö töp. Í síðustu tveimur umferðum hafa þeir tapað 3-1 á heimavelli gegn ÍR og gert markalaust jafntefli við Grindavík, sem eru bæði lið fyrir neðan Gróttu á töflunni. Grótta situr í sjötta sæti deildarinnar með 27 stig og átta stigum frá umspilssæti svo að þeir þurfa sigur í dag til þess að eiga möguleika á umspilinu.
Fyrir leik
Afturelding
Heimamenn hafa átt góðu gengi að fagna í sumar. Þeir sitja á toppi deildarinnar með 39 stig, tveimur stigum á undan Þrótti og Fylki, eiga leik inni og eru komnir í bikarúrslit.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með sigri í dag kemst Afturelding í 5 stiga forystu í deildinni þegar tveir leikir verða óspilaðir. Afturelding er líka í góðum málum hvað markatöluna varðar, hún er 11 mörkum betri en markatala Þróttar sem eru þeim næstir.

Liðið er taplaust í síðustu fjórum leikjum með tveimur sigrum og tveimur jafnteflum. Mosfellingar sóttu 7-0 sigur til Þorlákshafnar í síðustu umferð gegn föllnum Ægismönnum.
Fyrir leik
Tríóið
Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Dómaraeftirlitsmaður kvöldsins verður Sigurður Hannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leikurinn sem vantar
Leikurinn hér í kvöld er lokaleikur 15. umferðar Lengjudeildarinnar en vegna undanúrslita Mjólkurbikarsins, þar sem Afturelding sigraði Fylki og komst þar af leiðandi í úrslit, var leiknum frestað. Liðin hafa því lengi átt leik inni.
Fyrir leik
Mosfellsbærinn heilsar
Góða kvöldið og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu á leik Aftureldingar og Gróttu í Lengjudeildinni frá Malbiksstöðinni að Varmá.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.