Leik lokið!
Þá er þessu lokið!
93. mín
Gult spjald
Magnús Þórðarson
87. mín
Gult spjald
Baptiste Gateau
85. mín
InnLeó Hrafn Elmarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
85. mín
InnPétur Ingólfsson
ÚtBaldur Hannes Stefánsson
84. mín
Gult spjald
Benedikt Þór Viðarsson
83. mín
InnMarko Panic
ÚtBenedikt Darri Gunnarsson
83. mín
InnHilmar Óli Viggósson
ÚtJordan Adeyemo
83. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtHarley Bryn Willard
81. mín
Þróttur fær sína 18 hornspyrnu
76. mín
Þróttur leikur í rauðu og hvítu og Ægir í gulum búningum. Það var enginn leikmaður Ægis nálægt Sigurði Agli. Ég skil ekki hvernig Baptiste ruglaðist svona
Hvað var þetta? Sprenghlægilegt mark
Magnús Þórðarson (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)
Ægir á aukaspyrnu fyrir utan teig sinn. Þeir ætla að taka þetta stutt í stað þess að negla fram eins og liðið hefur gert allan leik. Þá ákveður Baptiste einfaldlega að senda á Sigurð Egil sem sendir fyrir á Magnús Inga sem klárar færið.Þróttur leikur í rauðu og hvítu og Ægir í gulum búningum. Það var enginn leikmaður Ægis nálægt Sigurði Agli. Ég skil ekki hvernig Baptiste ruglaðist svona
73. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtBjarki Rúnar Jónínuson
71. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtEiríkur Þorsteinsson Blöndal
71. mín
InnGabríel Ólafsson Long
ÚtBjörn Darri Oddgeirsson
70. mín
ÞRENNA!
Aron Snær Ingason
Aron er sloppinn einn í gegn á hægri kantinum. Ibrahima er með skrítna takta í markinu og ákveður að gefa Aroni Snæ nærhornið. Hann þiggur það og skorar af öryggi.68. mín
Gult spjald
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
67. mín
Skemmtikrafturinn Ibrahima Jallow er kominn í gang. Hann ver frábærlega frá Baldri Hannesi sem skallaði boltann að marki af stuttu færi.
66. mín
Ibrahima ver vel frá Magnúsi Inga
65. mín
Nýkominn inn á!
Jakob Ocares Kristjánsson (stoðsending: Baldur Hannes Stefánsson )
Baldur Hannes með frábæra fyrirgjöf inn á teig. Jakob er illa dekkaður og skallar boltann í netið64. mín
InnJakob Ocares Kristjánsson
ÚtKári Kristjánsson
63. mín
Ibrahima Jallow ver skot Magnúsar Inga en meiðist í leiðinni.
59. mín
Laglegt mark!
Magnús Þórðarson (stoðsending: Kári Kristjánsson)
Flott spil hjá heimamönnum fyrir utan teig Ægis. Kári finnur með Magnús með hælsendingu. Magnús Ingi lætur ríða af og skot hans er út við stöng55. mín
Einstefna
Þróttur liggur á Ægi og markið liggur í loftinu. Heimamenn eru þó ekki að skapa sér afgerandi færi þó pressan sé mjög mikil
50. mín
Skemmtilegt að sjá að Ibrahima Jallow, markvörður Ægis, er mjög greinilega að tefja og liðið er undir. Hann reynir ekki einu sinni að fela það, hann er lengi að taka útspörk og bíður eftir því að Þróttarar pressi hann áður en hann handsamar boltann.
48. mín
Eiríkur með misheppnaða skalla tilraun
46. mín
Adeyemo sparka seinni hálfleik af stað
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks. Fjörugum fyrri hálfleik lokið en heimamenn hafa verið töluvert betri. Það er spurning hvað xg Ægismanna sé, en það skiptir ekki máli. Það er spenna í þessu!
43. mín
Aron Snær með stórhættulegan bolta inn í teig en Ægismenn bjarga í horn
40. mín
Kári með laust skot yfir mark Ægis
33. mín
Þróttur ekki lengi að kvitta fyrir
Aron Snær Ingason (stoðsending: Kári Kristjánsson)
Þróttur vinnur boltann ofarlega á vellinum. Kári finnur Aron inn í teig sem klárar færið með prýði32. mín
Laglegt mark!
Þeir jafna!
Bjarki Rúnar Jónínuson
Bjarki keyrir upp allan völlinn og lætur vaða fyrir utan teig. Óverjandi fyrir Aron í markinu.Laglegt mark!
23. mín
Þetta var skrítið!
Stefan Dabetic (stoðsending: Harley Bryn Willard)
Harley Willard með hornspyrnu sem mér sýnist Stefan skalla inn. Línudómarinn veifar flagginu eitthvað og Jóhann Ingi bendir í átt að miðju. Enginn á vellinum veit hvort Jóhann sé að dæma mark eða ekki.22. mín
Ægir fær sína fyrstu hornspyrnu
19. mín
Lítið að frétta síðustu mínútur. Þróttarar bíða þolinmóðir eftir opnunum
11. mín
Fallegt er það
Aron Snær Ingason (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)
Sigurður Egill með magnaða sendingu inn fyrir vörnina. Boltinn skoppar þægilega fyrir fram Aron Snæ sem vippar honum yfir Ibrahima Jallow sem var kominn út úr markinu.4. mín
Þetta tók nú ekki langan tíma!
Björn Darri Oddgeirsson (stoðsending: Aron Snær Ingason)
Sigurður Egill með hornspyrnu á fjærstöng. Aron Snær skallar boltann niður í fætur á Birni sem klobbar Ibrahima Jallow af stuttu færi.2. mín
Þrótttur fær fyrstu hornspyrnu leiksins
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er hafið
Magnús Ingi sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Venni gerir fjórar breytingar á byrjunarliði Þróttar. Þórhallur Ísak Guðmundsson tekur sér sæti á bekknum en Aron Dagur Birnuson verður í rammanum hans í stað. Þeir Örn Bragi Hinriksson, Hlynur Þórhallsson og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson taka allir út leikbann í dag. Í þeirra stað koma Stefán Þórður Stefánsson, Björn Darri Oddgeirsson og Magnús Þórðarson.
Nenad gerir þrjár breytingar á Ægismönnum. Ibrahima Jallow byrjar sinn fyrsta leik í marki Ægis en hann kemur inn fyrir Gabriel Michael Thull. Þeir Paul Leonard Skoczylas JR og Dajan Ponjevic koma inn fyrir Kristinn Ásgeir Þorbergsson og Daníel Karl Þrastarson.
Nenad gerir þrjár breytingar á Ægismönnum. Ibrahima Jallow byrjar sinn fyrsta leik í marki Ægis en hann kemur inn fyrir Gabriel Michael Thull. Þeir Paul Leonard Skoczylas JR og Dajan Ponjevic koma inn fyrir Kristinn Ásgeir Þorbergsson og Daníel Karl Þrastarson.
Fyrir leik
Frábært framtak!
Leikmenn munu ganga inn á völl í sinni uppáhalds treyju til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Hægt er að lesa nánar um verkefnið á Treyjudagur.is
Fyrir leik
Spáir stórsigri
Guðbjörn Smári Birgisson, fyrirliði Hvíta riddarans og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Harkið, spáir í 21. umferðina sem er framundan.
Þróttur R. 5 - 0 Ægir
Öruggur sigur Þróttara sem reyna allt til þess að bæta í markatöluna sína og þetta endar með öruggum 5-0 sigri þar sem Kári Kristjáns verður atkvæðamestur með tvö mörk.
Þróttur R. 5 - 0 Ægir
Öruggur sigur Þróttara sem reyna allt til þess að bæta í markatöluna sína og þetta endar með öruggum 5-0 sigri þar sem Kári Kristjáns verður atkvæðamestur með tvö mörk.
Fyrir leik
21. umferðin um helgina
föstudagur
19:15 Þróttur R.-Ægir
19:15 Fylkir-Grótta
laugardagur
14:00 Grindavík-HK
14:00 Afturelding-Vestri
14:00 Leiknir R.-Njarðvík
16:00 Völsungur-ÍR
19:15 Þróttur R.-Ægir
19:15 Fylkir-Grótta
laugardagur
14:00 Grindavík-HK
14:00 Afturelding-Vestri
14:00 Leiknir R.-Njarðvík
16:00 Völsungur-ÍR
Fyrir leik
Lykilmenn í leikbanni
Þrír leikmenn Þróttar taka út leikbann í kvöld. Hlynur Þórhallsson fékk að líta tvö gul spjöld gegn HK og tekur því út leikbann í kvöld. Örn Bragi Hinriksson og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson fengu sitthvort spjaldið og taka því líka út leikbönn vegna uppsafnaðra gulra spjalda.


Fyrir leik
Þróttur enn í titilbaráttu
Þróttur situr í 2. sæti Lengjudeildarinnar þegar tveir leikir eru eftir af mótinu, áður en það kemur að umspilinu góða. Liðið er fimm stigum á eftir Aftureldingu og því er sigur í kvöld lífsnauðsynlegur, ætli liðið sér beint upp. Þróttur hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum, liðið mátti þola 3-0 tap gegn HK í Kórnum um helgina.


Fyrir leik
Gestirnir á leið í 2. deild
Ljóst er að Ægir er fallið úr Lengjudeildinni og mun leika í 2. deild næsta sumar. Stigasöfnun hefur gengið illa og er liðið með 8 stig og í neðsta sæti deildarinnar. Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, var til viðtals eftir slæmt 0-7 tap gegn Aftureldingu á heimavelli. Þar talaði hann m.a. um að hann vildi yfirgefa félagið á góðum tímapunkti en ekki eftir svona vonbrigðartímabil. Ægir hefur því miður ekki verið samkeppnishæft í sumum leikjum tímabilsins, og er fjárhagsrammi félagsins einfaldlega ekki nægilega stór fyrir þetta getustig að sögn Nenad.


Fyrir leik
Þriðja liðið
Jóhann Ingi Jónsson er á flautunni í kvöld. Tryggvi Elías Hermannsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson eru á flöggunum og Ingvar Örn Gíslason skrifar í blokkina.


Fyrir leik
Velkomin í Laugardalinn
Heil og sæl öllsömul og verið velkomin í þessa þráðbeina textalýsingu frá leik Þróttar og Ægis á Pepsi-vellinum í 21. umferð Lengjudeildarinnar.







Viðtöl og skýrsla væntanlega seinna í kvöld