Leik lokið!
Senur á Hlíðarenda
95. mín
ÞEIIRRRR JAFNA!!!!!
Baldvin Þór Berndsen
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á pönnuna á Baldvin. Hann stangar boltann í netið og jafnar leikinn fyrir gestina þegar 10 sekúndur eru eftir.95. mín
Sparkar í brúsasettið - Annað rauða spjaldið hans í sumar
Emil Alexander Larsen
Markmannsþjálfarinn rekinn í burt94. mín
Frederik lengur en 5 sek að taka markspyrnuna
Og Valsmenn fá horn!
94. mín
Flott sókn hjá Skagamönnum sem endar með skoti Matthíasar yfir markið.
92. mín
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem Kristófer Dagur skallar frá.
91. mín
Skaginn fær horn!
90. mín
+5 í uppbót
Fáum við meiri dramatík?!
87. mín
InnMatthías Daði Gunnarsson
ÚtStyrmir Jóhann Ellertsson
86. mín
MAAAARRR.... rangur!
Kristófer Dagur rúllar boltanum inn fyrir á Dag Orra sem er kominn einn gegn Árna og klárar huggulega en flaggið fór á loft.
83. mín
708 áhorfendur á Hlíðarenda í kvöld
81. mín
Alveg hægt að setja spurningamerki við Árna þarna en ég verð samt að bíða með það og hæla Jónatani frekar.
WOOOOOWWWWW!!
Jónatan Ingi Jónsson
Fær hann lengst úti vinstra meginn og sér að Árni Marinó stendur aðeins framarlega. Hann tekur bara skotið sem fer yfir Árna og í netið.Alveg hægt að setja spurningamerki við Árna þarna en ég verð samt að bíða með það og hæla Jónatani frekar.
79. mín
Frábært skot hjá Lúkasi sem skorar verðskuldað jöfnunarmark fyrir heimamenn!
Sá smellhitti hann!
Lúkas Logi Heimisson
Fær boltann fyrir utan teiginn og tekur hann í fyrsta innanfótar niðri í fjærhornið.Frábært skot hjá Lúkasi sem skorar verðskuldað jöfnunarmark fyrir heimamenn!
78. mín
Spyrnan fer yfir allan pakkann og aftur fyrir hinum meginn
77. mín
Valsmenn fá horn
74. mín
Stöngin!
Jónatan Ingi fær boltann á teignum og tekur skotið sem fer í stöngina. Þeir halda áfram að banka og banka!
72. mín
Gísli Eyjólfs með tilraun fyrir utan teig eftir fína skyndisókn.
67. mín
InnRúnar Már S Sigurjónsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
67. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
66. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtBirkir Heimisson
66. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtPatrick Pedersen
62. mín
DAUÐAFÆRI!
Kristófer Dagur sleppur einn í gegn á móti Árna sem kemur á móti og nær að verja. Boltinn hinsvegar er á leiðinni í markið áður en Baldvin mætir á svæðið og skallar hann í burtu.
62. mín
Valsmenn sækja!
Kristófer Dagur fær boltann inn á teignum eftir góðan undirbúning hjá Jakobi Franz en setur boltann beint á Árna sem kemur vörnum við.
61. mín
Valsmenn hafa verið ívið betri í þessum síðari hálfleik að mínu mati. Líklegri aðilinn þessa stundina að setja næsta mark leiksins.
58. mín
Gult spjald
Böðvar Böðvarsson
Stoppar skyndisókn Valsmanna við fæðingu og fær réttilega spjald frá Ella.57. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtRafael Máni Þrastarson
Fyrsta skipting leiksins
54. mín
11-6 Val í vil
Það hafa 17 hornspyrnur litið dagsins ljós í þessum leik í kvöld en staðan er 11-6 í þeim tölfræðiþætti, Valsmönnum í vil.
52. mín
Dómaraskipti - Elías Ingi mættur
Elías Ingi er nýr aðaldómari þessa leiks en Pétur tekur nú við hlutverki 4. dómarans.


51. mín
Stutt horn sem endar með að Valsmenn fá aðra hornspyrnu sem endar með skoti frá Valsmanni út á bílaplan.
50. mín
Aftur fá Valsmenn hornspyrnu
49. mín
Birkir Heimis tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer yfir allan pakkann og aftur fyrir hinum meginn í markspyrnu.
49. mín
Valsmenn fá fyrstu hornspyrnu síðari hálfleiksins
48. mín
Víti?!
Hörður Ingi fer niður í teignum eftir snertingu frá Skagamanni en Pétur hristir hausinn. Held að þetta sé hárrétt hjá Pétri að leyfa þessu að halda áfram og vera ekki að dæma á þetta.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Það eru Valsmenn sem sparka þessu aftur af stað fyrir okkur.
45. mín
Hálfleikur
+5 - Skaginn leiðir í hálfleik
Ágætis fyrri hálfleikur að baki. Tökum okkur korterspásu áður en við mætum svo með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
+5
Valsmenn gera vel í að hreinsa frá
45. mín
+5 - Skagamenn að fá enn einu hornspyrnuna
45. mín
+4 - Frábær varsla!
Jón Gísli með hörkuskot hægra meginn í vítateig Valsmanna sem Frederik Schram ver frábærlega í horn.
45. mín
+4
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn hreinsa frá.
45. mín
+3 - Skagamenn fá hornspyrnu eftir góða sókn
45. mín
+5 í uppbót
45. mín
Erik Tobias skallar boltann frá en sóknarpressa Valsmanna heldur áfram.
45. mín
Valsmenn fá enn einu hornspyrnuna
Fáum við jöfnunarmark fyrir hálfleik?
44. mín
Spyrnan kemur inn á teiginn en Pétur spottar sóknarbrot og Skagamenn geta andað léttar.
44. mín
Valsmenn fá horn
42. mín
Valsmenn koma boltanum inn á teiginn og á einhvern ótrúlegan hátt fer hann ekki inn eftir mikið klafs.
41. mín
Gult spjald
Baldvin Þór Berndsen
Stoppar skyndisókn Valsmanna við fæðingu. Rétt spjald að mínu mati.40. mín
Allt í lagi með Gísla og leikurinn heldur áfram.
39. mín
Fer allt of seint í Gísla Eyjólfs og fær réttilega spjald. Gísli þarf aðhlynningu og virkar sárþjáður.
38. mín
Valsmenn eru hægt og bítandi að vinna sig inn í leikinn. Eru líklegri þessa stundina að janfa frekar en Skagamenn að bæta við.
33. mín
Birkir Heimis tekur þá spyrnuna sem kemur inn á teiginn í pakkann í markmannsteignum en Markús Páll fær hann að lokum og hreinsar.
33. mín
Árni stendur upp og ætlar að halda hér leik áfram eftur að hafa fengið aðhlynninguna.
31. mín
Árni Marinó liggur niðri
Árni Marinó liggur niðri. Hann þarf að fá aðhlynningu. Árni hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu og aðeins kveinkað sér hérna í kvöld.
Spurning hvort við sjáum Jón Sölva koma í markið.
Spurning hvort við sjáum Jón Sölva koma í markið.
31. mín
Valsmenn fá horn
30. mín
Jón Gísli tekur spyrnuna, hún er góð og fer á Erik Tobias en hann skallar hann yfir markið.
30. mín
Skagamenn í færi!
Gísli Laxdal fær boltann úti hægra meginn og alveg eins og í markinu fær hann skuggalega mikinn tíma til að athafna sig nema núna lætur hann vaða á markið. Frederik ver í horn.
29. mín
Birkir Heimisson tekur spyrnuna inn á teiginn sem fyrsti varnarmaður Skagamanna skallar frá.
29. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
25. mín
Dagur Orri í dauðafæri!
Dagur Orri fær boltann við miðjan vítateig Skagamanna og fær nægan tíma til að láta vaða sem hann gerir en Árni Marinó kemur vörnum við.
23. mín
Jafnræði með þessu seinustu mínútur. Styttist í næsta mark öðru hvoru meginn.
17. mín
Markús að hóta aftur
Markús Páll fær boltann og keyrir með hann inn á teiginn í átt að marki en Jakob Franz gerir vel í að hægja á honum áður en Frederik Schram kemur út í þetta og tekur boltann.
14. mín
Hornspyrnu maraþon Valsmanna
Valsmenn að fá maraþon hornspyrnur. Sú þriðja er tekin stutt líkt og allar hinar. Nú endar þetta á skoti frá Jakobi Franz rétt framhjá.
13. mín
Heimamenn fá hornspyrnu
9. mín
Gísli Laxdal fær boltann úti hægra meginn og fær nægan tíma þar til að koma honum fyrir á Markús sem var með skuggalega mikinn tíma á boltanum til að athafna sig. Hann gerir það og tekur skotið beint á Frederik í markinu sem fær hann milli lappanna og inn.
Þessi varnarleikur Valsmanna var ekki upp á marga fiska en Skaginn leiðir!
Þetta var aðeins of auðvelt!
Markús Páll Ellertsson (stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson)
Markús brýtur ísinn!Gísli Laxdal fær boltann úti hægra meginn og fær nægan tíma þar til að koma honum fyrir á Markús sem var með skuggalega mikinn tíma á boltanum til að athafna sig. Hann gerir það og tekur skotið beint á Frederik í markinu sem fær hann milli lappanna og inn.
Þessi varnarleikur Valsmanna var ekki upp á marga fiska en Skaginn leiðir!
5. mín
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn verjast vel.
5. mín
Skagamenn að fá hornspyrnu
Önnur hornspyrnan þeirra í dag.
4. mín
Spyrnan kemur inn á teiginn og er góð en Baldvin skallar þetta frá. Lúkas Logi fær svo boltann og kemur með hann inn á teiginn þar sem Markus Nakkim er mættur en skallinn hans fer rétt yfir.
4. mín
Valsmenn fá sína fyrstu hornspyrnu
2. mín
Valsmenn ógna!
Kristófer dagur keyrir upp völlinn og kemur með sendingu fyrir markið á Dag Orra sem rennir sér á eftir boltanum en fær hann milli lappanna sinna og sóknin fjarar út í sandinn að mestu leyti.
1. mín
Skemmtileg útfærsla en Jón Gísli Eyland tekur spyrnuna inn á teiginn þar sem Steinar Þorsteins er mættur og setur hann framhjá.
1. mín
Skagamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins þegar minna en mínúta er liðin af leiknum.
1. mín
Leikur hafinn
Markús Páll á upphafssparkið
Gestirnir byrja þennan leik sem verður vonandi bráðskemmtilegur í alla staði.
Fyrir leik
Heiðursgestir Valsmanna
Valsmenn að heiðra gamla Íslandsmeistara fyrir leik sem fá gott lófaklapp og móttökur úr stúkunni. Þetta eru þeir Palli, Árni og Gunnar sem eru allir í flottum Vals treyjum merkt Henson.
Fyrir utan það er skemmtilegt að sjá þessa hefð þessa helgi að liðin ganga inn á í fótboltatreyjum. Fallegt að sjá.
Fyrir utan það er skemmtilegt að sjá þessa hefð þessa helgi að liðin ganga inn á í fótboltatreyjum. Fallegt að sjá.
Fyrir leik
Markaveisla á Hlíðarenda?
Valsarar munu leka mörkum án Hólmars en þeir munu skora sin 2-3 mörk á Heimavelli. Yfir 3,5 mörk er 1.7 á Epic, yfir 4 er 2.05. Mæli með.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 30, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Tryggvi Hrafn Haraldsson er í banni gegn sínum verðandi félögum. Hólmar Örn Eyjólfsson er fjarverandi og Shkelzen Veseli fær sér sæti á bekknum. Samúel Kári Friðjónsson, Patrick Pedersen og Birkir Heimisson koma inn frá 2-0 tapi gegn Víkingum.
Haukur Andri Haraldsson og Viktor Jónsson eru í banni hjá ÍA. Rafael Máni Þrastarson og Styrmir Jóhann Ellertsson koma inn frá 1-1 jafntefli gegn FH.
Haukur Andri Haraldsson og Viktor Jónsson eru í banni hjá ÍA. Rafael Máni Þrastarson og Styrmir Jóhann Ellertsson koma inn frá 1-1 jafntefli gegn FH.
Fyrir leik
Spáin
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson fékk það hlutverk að spá fyrir komandi leikjum í Bestu deildinni og svona spáir hann leik kvöldsins.
Valur 2 - 1 ÍA (19:15 í kvöld)
Patrick Pedersen er að hrökkva í gang og mun mjaka Valsmönnum upp fyrir strik. Kampakátur Brazell mun jafnvel gangast við því að vera þjálfari Valsliðsins. Týndi sonurinn, Markús Ellertsson, með mark Skagamanna sem þurfa að keyra Hvalfjörðinn heim eftir skyndilokun í göngunum.
Valur 2 - 1 ÍA (19:15 í kvöld)
Patrick Pedersen er að hrökkva í gang og mun mjaka Valsmönnum upp fyrir strik. Kampakátur Brazell mun jafnvel gangast við því að vera þjálfari Valsliðsins. Týndi sonurinn, Markús Ellertsson, með mark Skagamanna sem þurfa að keyra Hvalfjörðinn heim eftir skyndilokun í göngunum.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Pétur Guðmundsson er dómari þessa leiks en honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Elías Ingi Árnason er fjórði dómarinn í dag en eftirlitsmaður KSÍ er hann Þórður Georg Lárusson.


Fyrir leik
Mikilvægur leikur fyrir bæði lið
Valsmenn og Skagamenn hafa átt heldur betur kaflaskipt sumar. Skagamenn koma hins vegar heitari inn í þennan leik heldur en Valsmenn ef við skoðum seinustu 5 leiki í öllum keppnum. Þar eru heimamenn án sigurs en gestirnir með þrjá sigra og tvö jafntefli. Hins vegar hafa Skagamenn spilað fjóra heimaleiki af sínum seinustu 5 leikjum.


Fyrir leik
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og ÍA í Bestu deildinni að Hlíðarenda.








Áfram allir.