Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Meistaravellir
Huggulegt septemberveður og krökkt í stúkunni
KR
KR
1 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 191' Ármann Ingi FinnbogasonArnór Ingvi Traustason 96'1 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Sannkallað flautumark!
Ívar Orri rétt leyfir Víkingum að taka miðjuna og flautar þá til leiksloka. Þvílíkur fótboltaleikur sem endar hér með jafntefli.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
KR
96. mín
DRAMATÍSKARA VERÐUR ÞAÐ EKKI!

Arnór Ingvi Traustason (stoðsending: Galdur Guðmundsson)

Ooog Meistaravellir tryllast!

Finnur Tómas með fyrirgjöf á Galdur. Hann á skalla á Arnór sem stangar hann í netið!

Þvílíkar lokamínútur hér á Meistaravöllum.
95. mín
KR fær hornspyrnu.
Víkingur R.
91. mín
ÁRMANN HETJAN!

Ármann Ingi Finnbogason (stoðsending: Nikolaj Andreas Hansen)

Úr efstu hillu!

Ármann fær boltann úti á hægri kanti, sker inn á vinstri fótinn og klínir honum í samskeytin!
90. mín
Fimm mínútum bætt við!
Víkingur R.
89. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtSveinn Gísli Þorkelsson
88. mín
Sveinn Gísli meiðist illa
Sveinn Gísli lendir illa á olnboganum eftir skallaeinvígi og fær aðhlynningu. Heldur utan um öxlina, þetta lítur ekki vel út.

Börurnar komnar inn á völlinn en hann getur nú gengið af velli.
86. mín
KR fær hornspyrnu sem Víkingar skalla frá.
84. mín
Rétt framhjá!
KR fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Aron Sig tekur og á fasta sendingu á hættusvæðið. Boltinn í gegnum alla þvöguna og rétt framhjá marki Víkings!
Víkingur R.
83. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtHrannar Snær Magnússon
Víkingur R.
83. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
KR
82. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtEiður Gauti Sæbjörnsson
78. mín
Luke Rae með stórhættulega fyrirgjöf sem Ekroth rétt nær að koma kollinum í. KR fær horn en ekkert kemur upp úr henni.
76. mín
4337 manns á vellinum!
Jahá!

Það er rúmlega 1500 fleiri en á mest sótta leiknum í ár og um 1300 fleiri en þegar mest lét í fyrra.

Þessir þrír leikir eiga það allir sameiginlegt að hafa farið fram á Meistaravöllum.
73. mín
Hrannar Snær með frábæra takta og á hættulega fyrirgjöf sem KR-ingar hreinsa í í horn.

Ekkert kemur upp úr hornspyrnu gestanna.
KR
71. mín
InnMichael Osei Akoto
ÚtHrafn Tómasson
71. mín
SLÁIN!
Orri Hrafn fyrir utan teig, leggur boltann fyrir sig og smellir boltanum í þverslána.

KR-ingar í stúkunni sáu þennan inni og voru margir hverjir byrjaðir að fagna!
Víkingur R.
68. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtAron Elís Þrándarson
Víkingur R.
68. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtDaníel Hafsteinsson
Pirringur í Daníel þegar hann gengur af velli.
Víkingur R.
68. mín
Peysutog

Aron Elís Þrándarson

Rífur í Finn Tómas og fær réttilega að líta gula spjaldið.
66. mín
Lítið búið að gerast síðustu mínútur - ekki sama orkustig og hefur verið. Spurning hvort að þreytan sé farin að segja til sín.
58. mín
Boltinn dettur fyrir Eið Gauta í teig Vikings og hann mættur í dauðafæri en flaggið fer réttilega á loft.
56. mín
„Engin Evrópa, þið kusuð allir nei“
Stuðningsmenn KR gera grín að Víkingum sem féllu úr leik í Evrópu á fimmtudaginn síðastliðinn og syngja; „Engin Evrópa, þið kusuð allir nei.“
55. mín
Stígur Diljan sker inn á hægri fótinn og lætur vaða en Halldór Snær í litlum vandræðum með að handsama boltann.
53. mín
Fleiri myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
52. mín
Ástbjörn með frábæra björgun!
Víkingar keyra hratt upp, Hrannar Snær á góða fyrirgjöf ætlaða Stígi Diljan en Ástbjörn bjargar á síðustu stundu og kemur boltanum aftur fyrir endalínu.
47. mín
Rangstöðumark Víkinga
Afar tæpt eins og sést á skjáskotinu hér að neðan. Stígur Diljan (ysti Víkingurinn í markteignum) var flaggaður rangstæður.

Mynd: Skjáskot

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
KR hefur leik og Krummi sparkar boltanum beint í innkast.
45. mín
Hálfleikur
Svipmyndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði!
KR 0 - 0 Víkingur R.
60% - Með bolta - 39%
11 - Skot - 11
2 - Skot á mark - 2
4 - Skot framhjá - 8
5 - Varin skot - 1
0 - Stór tækifæri - 1
17 - Snertingar í teig - 16
8 - Hornspyrnur - 3
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik!
Ívar Orri flautar til hálfleiks. Allt jafnt hér á Meistaravöllum en færin hafa aftur á móti ekki verið af skornum skammti.

Heilt á litið hefur verið mikið jafnræði með liðunum. Ég get svo gott sem fullyrt það að það verða einhver mörk hér í seinni hálfleik.
45. mín
Aftur er það Valdimar!
Á skalla rétt framhjá marki KR. Búinn að koma sér í þrjú góð færi á jafnmörgum mínútum.
44. mín
Valdimar aftur í færi!
Valdimar með skot við vítateig sem fer rétt framhjá marki KR. Víkingar með yfirhöndina síðustu mínútur.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
42. mín
Valdimar í dauðafæri!
Sleppur í gegn og tekur utanfótarskot sem fer rétt framhjá marki KR-inga.

Ef minnið svíkur mig ekki skoraði Valdimar huggulegt mark með utanfótar skoti á sama mark hér á Meistaravöllum í 7-0 sigri Víkings á síðasta ári.
KR
40. mín
Gult spjald

Ástbjörn Þórðarson

Stígur að hafa betur gegn Ástbirni í kapphlaupi og sá síðarnefndi of seinn í tæklingu. Fær í kjölfarið verðskuldað gult spjald að launum.
37. mín
Víkingar skora rangstöðumark!
Vel spilað hjá Víkingum. Fyrirgjöf í teiginn, Valdimar skallar á Stíg sem setur boltann í netið af stuttu færi.

Sýnist þetta vera rétt út frá sjónvarpsútsendingu.
35. mín
Hættuleg hornspyrna Helga!
Víkingar fá hornspyrnu, Helgi setur spyrnuna á nærsvæðið. Valdimar nær snertingu en nær ekki að stýra boltanum á markið!
30. mín
Víkingar bjarga á marklínu!
Boltinn dettur fyrir Arnór Ingva í markteignum sem nær að troða boltanum framhjá Aroni Snæ. Á ögurstundu kemur Sveinn Gísli Víkingum til bjargar og hreinsar af marklínu!
27. mín
Aðeins hægst á leiknum
Aron Sig með skot af löngu færi sem fer framhjá marki Víkings. Það hefur aðeins hægst á þessu eftir orkumiklar fyrstu 20 mínútur.
26. mín
Valdimar Þór með tilraun sem fer hátt yfir markið og yfir félagsheimili KR. Stuðningsmenn KR klappa fyrir tilraun Víkingsins.
25. mín
Krummi að sleppa í gegn eftir að hafa unnið boltann af Gylfa. Ívar Orri tekur sér tíma til að melta atvikið en dæmir aukaspyrnu að lokum við litla hrifningu KR-inga.
22. mín
Víkingar einum færri í eina mínútu eftir að Daníel Hafsteinsson fékk aðhlynningu.
18. mín
Snöggar hornspyrnur KR-inga
KR-ingar fá hornspyrnu og taka hana hratt. Finnur Tómas fær boltann og á tilraun sem Aron Snær ver í aðra hornspyrnu. Úr seinna horninu á Luke Rae fyrirgjöf sem fer aftur fyrir endalínu.

Greinilegt að KR-ingar vilja taka hornspyrnurnar hratt svo að Víkingar geti ekki stillt almennilega upp.
16. mín
Nú ógna Víkingar!
Boltinn dettur fyrir Aron Elís í teig KR. Hann lætur vaða en Halldór Snær vel. Því næst berst boltinn á Helga Guðjóns sem hleypir af en tilraun hans yfir markið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
16. mín
Gylfi gekk inn á í Everton treyju
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

15. mín
Áttu Víkingar að fá víti?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

14. mín
KR-ingar banka og banka!
Gabríel Hrannar með skot úr teignum sem Aron Snær ver vel.
13. mín
KR í færi!
Aron Sig vinnur boltann hátt uppi á vellinum. Þræðir boltann á Eið sem setur boltann í varnarmann og yfir mark Víkings.
Víkingur R.
11. mín
Fyrstur í bókina!

Karl Friðleifur Gunnarsson

Fer seint í Galdur sem var á fleygiferð og fær verðskuldað gult spjald að launum.
10. mín
KR fær hornspyrnu og taka hana stutt. Boltinn á Galdur sem á skot rétt framhjá marki gestanna.
9. mín
Orri Hrafn!
Með þrumufleyg sem fer yfir mark Víkings.
7. mín
Víkingar ógna!
Þvílík byrjun á þessum leik!

Stígur á skalla að marki, boltinn í Ástbjörn og þaðan rétt framhjá marki KR.
6. mín
Stórhætta!
Galdur sleppur í gegn, fjórir Víkingar fylgja honum í humátt. Galdur kemst í teiginn en þá nær Ekroth að stíga hann út og Aron Snær handsamar boltann!
4. mín
Víkingar vilja víti!
Hrannar Snær fær boltann í teignum, pikkar boltanum framhjá Gabríel Hrannari og fellur í kjölfarið við.

Greinileg snerting en ekkert dæmir Ívar Orri og stuðningsmenn Víkings reiðir. Dettur mögulega full auðveldlega.
3. mín
Klaufalegir Víkingar!
Galdur fær boltann við vítateig, Aron Snær mætir. Galdur nær að snúa á hann og tekur skot að auðu markinu en nær ekki að stýra boltanum á rammann.

Þetta var allt stórfurðulegt!
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er hafin
Gylfi sparkar þessu af stað!

Víkingar sækja í átt að félagsheimili KR.
Fyrir leik
Gylfi í Everton treyju!
Leikmenn og teymi beggja liða ganga til vallar í sínum uppáhalds treyjum til að vekja athygli á málefni krabbameinsveikra barna.

Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson eru sérfræðingar Sýnar á vellinum og skarta þeir sömuleiðis skemmtilegum treyjum.

Gylfi Þór Sigurðsson er í Everton treyju númer 10, ég sé ekki betur en það standi Rooney aftan á. Ég ætla að gefa Finni Tómasi einnig hrós en hann er í nýrri ÍK treyju sem HK mun klæðast gegn Fylki næstu helgi.
Fyrir leik
„Mála meira!“
„Þið eruð málaraklúbbur!“ og „Mála meira!“ syngja stuðningsmenn KR.

Eins og flestum er eflaust kunnugt tóku einhverjir stuðningsmenn Víkings sig saman í nótt og máluðu bæði stúku og varamannaskýli KR rauðum litum.

Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Miðjan lætur vel í sér heyra, frábær stemning hér á nýmáluðum Meistaravöllum.
Fyrir leik
Frægir á vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benni og Fannar úr Hlaðfréttum, Siggi Helga, Mikael Nikulásson, Helgi Bárðarson, Davíð Snorri aðstoðarlandsliðsþjálfari, Tómas Þór Þórðarson, Róbert Hauks og Vuk Framarar, Sigþór Júlíusson, Bóas og Valur Gunnarsson eru meðal fjölmargra frægra á vellinum í dag.
Fyrir leik
Spenna í loftinu!
Rúmar tuttugu mínútur í leik og stúkan að fyllast. Stúkan sjálf er öll að koma til eftir skemmdarverk næturinnar.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 3-5 sigri liðsins gegn KA í síðustu umferð Bestu deildarinnar.

KR endurheimtir þá Finn Tómas og Arnór Ingva aftur úr leikbanni og eru þeir í byrjunarliði liðsins á kostnað Michael Akoto og Sigurðar Breka.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir sömuleiðis tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-3 tapi gegn Borac Banja Luka í Bosníu og Hersegóvínu.

Gunnar Vatnhamar lék þar sinn síðasta leik fyrir Víking en hann er á förum frá félaginu og á leið til Vejle í dönsku B-deildinni. Í hans stað í vörninni kemur Sveinn Gísli Þorkelsson.

Þá víkur Viktor Örlygur Andrason sömuleiðis úr byrjunarliði Víkings og í hans stað kemur Daníel Hafsteinsson sem hefur verið frá vegna meiðsla undanfarinn mánuð.


Fyrir leik
Hnífjafnt í könnun Fótbolta.net
Fyrirfram má búast við mjög jöfnum leik en í skoðanakönnun á forsíðu Fótbolta.net spá 43% lesenda sigri KR en 44% sigri Víkings.

Ef sagan er skoðuð hefur Víkingur verið með tak á KR. KR hefur ekki unnið Víking í deildinni síðan 2020. Þá vann KR 0-2 sigur í Vikinni og hafði fyrr um sumarið unnið 2-0 í Vesturbænum í leiknum fræga þar sem þrír Víkingar sáu rautt.

Epicbet metur leikinn í dag þannig að Víkingar séu líklegri til sigurs en það er nokkuð mjótt á munum. Stuðullinn á sigri Víkings er 2,21, stuðullinn á jafntefli er 4,64 og stuðull á KR sigri er 2,69.

Fyrir leik
Epískar viðureignir á Meistaravöllum
Viðureignir KR og Víkings á Meistaravöllum eiga það til að vera eftirminnilegar.

Á síðasta ári vann Víkingur 7-0 sigur á Meistaravöllum og var það jöfnun á stærsta deildartapi KR í sögunni. Hitt mettapið kom eftirminnilega gegn FH í lokaumferðinni árið 2003, þegar KR-ingar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

Víkingum var heitt í hamsi er þeir heimsóttu Meistaravelli í miðjum heimsfaraldri, árið 2020. Leiknum lauk með 2-0 sigri KR en allir þrír hafsentar Víkings, Kári Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Halldór Smári Sigurðsson, voru reknir af velli og enduðu því átta Víkingar inni á vellinum.

Ári síðar fóru Víkingar langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Víkingar unnu þar hádramatískan sigur á KR á Meistaravöllum 2021. Víkingar komust þá upp fyrir Breiðablik sem höfðu verið í bílstjórasætinu í nokkurn tíma en þeir töpuðu gegn FH á sama tíma.

Hvað gerist í kvöld verður framtíðin ein að leiða í ljós.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Evrópan búin og einbeitingin á Bestu
Víkingur tapaði einvíginu gegn Borac Banja Luka á fimmtudag og því ljóst að liðið muni ekki leika frekar í Evrópukeppnum á tímabilinu. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir fulla einbeitingu setta á Bestu deildina eftir vonbrigðin síðastliðinn fimmtudag.

„Það er bara búið, Evrópan er búin. Við erum svekktir að hafa ekki náð markmiðunum okkar þar, en það er ekkert sem mun fylgja okkur inn í þennan leik. Þetta er bara nýtt verkefni og öll einbeitingin er á KR og Bestu deildina núna."

Fyrir leik
KR-ingar góðir í stærðfræði
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi við Sæbjörn Steinke, fréttamann Fótbolta.net, í aðdraganda leiksins.

Þar sagði hann KR hafa spilað vel í viðureign liðanna fyrr á tímabilinu en það hafi vantað drápseðlið í KR. Leiknum lauk með 2-0 sigri Víkings.

„Við spiluðum vel en það vantaði upp á drápseðlið hjá okkur, að taka sénsana okkar. Það er eitthvað sem Víkingur hefur sýnt að liðið er framúrskarandi í, þeir nýta tækifærin þegar þau gefast."

KR getur með sigri minnkað forskot Víking niður í fimm stig. Ræðir þú við strákana um það í aðdragandanum?

„Nei, ég held að flestir í hópnum séu nokkuð góðir í stærðfræði, vita hvernig staðan er. Við þurfum fyrst og fremst að einbeita okkur að þessum eina leik, ekki horfa í stöðuna í deildinni," segir þjálfari KR-inga.

Fyrir leik
Skemmdarverk á Meistaravöllum
Stuðningsmenn Víkings framkvæmdu skemmdarverk á Meistaravöllum í nótt og máluðu bæði stúku og varamannaskýli KR rauð.

„Það er búið að mála vegg í stúkunni og varamannaskýlin. Það er algjörlega óþolandi að þurfa að eyða deginum í að hreinsa upp eftir svona vitleysinga. Það er nóg af öðru að gera fyrir svona leik. Þetta er algjörlega ólíðandi og óþolandi,“ sagði Pálmi Rafn Pálmason í samtali við Fótbolta.net í morgun.



Mynd: Hilmar Þór

Fyrir leik
KR getur minnkað muninn í fimm stig
Íslandsmeistarar Víkings eru með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar og með átta stiga forskot á KR. Fram er í 2. sæti en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn KA á sunnudag.

Ef Vesturbæingar vilja halda spennu í mótinu er lykilatriði að liðið sæki góð úrslit hér í kvöld.

Sæti - Lið - Leikir - Markatala - Stig
1 - Víkingur R. - 20 - +46 - 51
2 - Fram - 21 - +14 - 44
3 - KR - 20 - +27 - 43

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Stór er hann!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Meistaravöllum þar sem KR tekur á móti Íslandsmeisturum Víkings í sankölluðum stórleik!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.