Fotbolti.net
Magnús Atlason
Mjólkurbikar karla
Laugardalsvöllur
7°, lygnt og heiðskírt.
Afturelding
Afturelding
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 14' Höskuldur Gunnlaugsson0 - 240' Kristófer Ingi KristinssonÓli Valur Ómarsson (sjm) 78'1 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 5630
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
BREIÐABLIK BIKARMEISTARAR
Breiðablik vinnur Mjólkurbikarinn í annað sinn.
Til hamingju Blikar!

90. mín
+4
Jónatan vinnur hornspyrnu eftir dans við hornfánann.
90. mín
+3
Sævar brýtur á Jónatan og Blikar hægja á leiknum.
90. mín
5630 áhorfendur
Alvöru mæting í kvöld!
90. mín
5 mínútum bætt við
Mosfellingar hafa fimm mínútur til þess að koma leiknum í framlengingu.
Afturelding
88. mín
Klaufi

Axel Óskar Andrésson

Móttakan svíkur Axel. Tekur svo Kristófer niður sem náði til boltans og hefði getað sótt hratt.
Breiðablik
87. mín
InnÍvar Örn Árnason
ÚtViktor Örn Margeirsson
87. mín
Joacim Holtan á skot framhjá markinu.
85. mín
Afturelding skorar eitt
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

84. mín
Snertingin of þung hjá Jónatani eftir frábæran bolta frá Davíð. Boltinn endar hjá Arnari.

Leikurinn er svakalega hraður þessa stundina.
Breiðablik
79. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtÞorleifur Úlfarsson
Afturelding
79. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
Afturelding
78. mín
MOSFELLINGAR MINNKA MUNINN

Óli Valur Ómarsson (sjm)

Afturelding heldur sinni endalausu sókn áfram. Aron Elí fær sendingu upp að endalínu, sendir svo boltann fyrir en þar er Óli Valur sem kassar boltann í eigið net.

Æsispennandi lokamínútur framundan.
77. mín
Blikar leyfa Aftureldingu að halda í boltann. Vilja sigla sigrinum heim.
Breiðablik
71. mín
InnKristinn Jónsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
Breiðablik
71. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtAron Bjarnason
Breiðablik
69. mín
Gult spjald

Haraldur Björnsson

Breiðablik
69. mín
Það ætlar allt að sjóða uppúr

Davíð Ingvarsson

Afturelding
69. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Ýtir Hlyni. Algjör óþarfi. Kristinn brjálaður í kjölfarið og heppinn að fá ekki rautt.
66. mín
Rautt spjald í fyrri hálfleik?
66. mín
Kristinn Freyr tekur hann á lofti fyrir utan teig og hamrar á markið. Anton ver vel í horn.

Mosfellingar hreinlega betri þessar síðustu mínútur.
Afturelding
65. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtÓðinn Bjarkason
Tvöföld skipting
Afturelding
65. mín
InnBirkir Már Sævarsson
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
62. mín
Rangstaða dæmd á Aron í skyndisókn Blika.
61. mín
Það fer að styttst í skiptingar hjá Aftureldingu.
58. mín
Joacim gerir mjög vel og vinnur boltann á vallarhelmingi Blika. Hann hægir hins vegar vel á sókninni. Blikar ná svo að komast fyrir skot Mosfellinga. Þarna var illa farið með góða stöðu.
56. mín
Anton Ari handsamar boltann úr horninu.
55. mín
Mosfellingar í langri sókn sem endar með hornspyrnu. Þeir þurfa að nýta sér svona augnablik ef þær ætla sér að búa til leik.
51. mín
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

51. mín
Afturelding fær horn en Blikar hreinsa frá.
50. mín
Höskuldur Gunnlaugs með fínan bolta inn í teiginn úr aukaspyrnu en skallinn frá Viktori yfir markið.
47. mín
Mörkin tvö


46. mín
Blikar fá hornspyrnu eftir 25 sekúndur. Hún var illa útfærð og engin hætta fyrir Aftureldingu.
46. mín
Anton Logi sparkar seinni hálfleiknum af stað!
45. mín
Hálfleikur
Ívar flautar til hálfleiks hér á Laugardalsvelli. Blikar fara inn til búningsherbergja með tveggja stiga marka forystu og það er líklegast sanngjarnt. Við tökum okkur korter.
45. mín
45+1
Elmar kemur með fyrirgjöfina úr spyrnunni sem ratar á kollinn á Axel en skallinn víðsfjarri markinu.
45. mín
Að lágmarki tveimur mínútum bætt við.
45. mín
Afturelding vinnur aukaspyrnu á álitlegum stað.
Breiðablik
40. mín
MAAARKKKKK

Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Davíð Ingvarsson )

Aftur er það úr horni.

Hornspyrnan frá Höskuldi inn á teiginn. Kristófer á skallann sem fer beint í kassann á Davíð. Hann kassar hann aftur á Kristófer sem klárar fagmannlega með föstu skoti meðfram jörðinni.

Óverjandi og farið að líta ágætlega út fyrir Blika.
38. mín
Afturelding hefja skyndisókn en Kristinn Freyr á mjög misheppnaða sendingu fram á við og Blikar halda sókn sinni áfram. Rauðklæddir hreinsa í annað horn.
37. mín
FÆRI
Höskuldur kemur boltanum á Þorleif sem er kominn að markteigshorninu og þar lætur hann vaða. Arnar Daði ver vel í horn.
36. mín
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

35. mín
Mosfellingar kalla eftir broti á Bjarti sem fellur við rétt fyrir utan teig. Ívar segir nei og ég er líklegast sammála honum. Það var ekki mikið í þessu.
32. mín
Leikurinn hefur eitthvað róast þessar síðustu mínútur.

Leikmenn virðast líka vera óvanir grasinu en þeir hafa verið duglegir að renna þennan fyrsta hálftíma.
Breiðablik
25. mín
Gerast ekki gulari

Anton Logi Lúðvíksson

Blikar vinna boltann og sækja hratt. Gunnar Bergmann gerir hins vegar vel og kemst í boltann en snertingin þung. Gunnar og Anton hefja þá kapphlaup um boltann sem Gunnar vinnur og Anton alltof seinn í tæklinguna.
24. mín
Damir ánægður
24. mín
Bart Kooistra með fínasta skot eftir gott samspil við Joacim Holtan. Skotið rétt yfir fjærstöngina.
21. mín
Afturelding finnst mér aðeins vera að vinna sig inn í leikinn eftir slæma byrjun.
16. mín
ÞVÍLÍK TÆKLING
Þorleifur vinnur boltann eftir misskilning í vörninni og er kominn einn í gegn. Hann reynir að leika á Arnar sem nær hönd á boltann. Boltinn berst aftur á Þorleif sem á bara eftir að renna honum í opið net þegar Andi Hoti tæklar boltann út af.

Því miður fyrir Andi var hendi dæmd í aðdragandanum á Þorleif. Þessi tækling á allt hrós skilið.
15. mín
Elmar vinnur boltann og kemur Aftureldingu í fína stöðu en sóknin endar aldrei með skoti áður en hún rennur út í sandinn.
11. mín
Óli Valur kemst inn í sendingu og tekur svo á rás upp allan völlinn með frábæru þríhyrningsspili við Þorleif en sendingin af endalínu ætlaðan Aroni fer beint í fangið á Arnari í markinu.
8. mín
Einhverjir að efast um markið
5. mín
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Breiðablik
4. mín
BLIKAR KOMNIR YFIR!!!!

Höskuldur Gunnlaugsson (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)

Hornspyrnan nær ekki yfir fyrsta mann en Blikar halda sókninni áfram. Óli Valur kemur svo með sendinguna á Höskuld sem gerir vel og tekur svo frábært skot niður í hægra hornið sem Arnar Daði ræður ekki við.

Blikar komnir með forystuna eftir aðeins fjórar mínútur.
3. mín
Blikar vinna hornspyrnu...
2. mín
Anton Ari með misheppnaða sendingu fram á við á Elmar og getur sótt hratt en Blikar vinna boltann aftur.
1. mín
Góða skemmtun!
Joacim Holtan sparkar úrslitum Mjólkurbikarsins 2026 í gang!

Blikar sækja í átt að sundlauginni og Afturelding í átt að Þróttaraheimilinu.

Afturelding í rauðu, Breiðablik í hvítu.
Fyrir leik
Bæði lið hafa selt upp sína aðalstúku. Mjög vel gert.
Fyrir leik
Hátíðlegt
Þjóðsöngurinn spilaður á Laugardalsvelli.

Nú styttist í þetta!
Fyrir leik
Leiknum verður seinkað um 10 mínútur
Stuðningsmenn bíða enn í löngum röðum fyrir utan völlinn. Nýr leiktími er því 19:10.
Fyrir leik
Byrjunarliðin dottin inn
Magnús Már gerir sjö breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Njarðvík í síðustu umferð. Ber þar hæst að Elmar Cogic er í byrjunarliðinu í dag og að Birkir Már Sævarsson byrjar á bekknum.

Ólafur Ingi gerir tvær breytingar á Blikum frá tapinu gegn KA. Höskuldur Gunnlaugsson og Aron Bjarnason koma inn í liðið í stað Jónatans Guðna og Gabríel Snæs sem byrja á bekknum.

Fyrir leik
Hátt í 5000 miðar seldir
Úrslitaleikurinn í ár verður töluvert fjölsóttari en í fyrra þegar Vestri og Valur áttust við. Þá voru 3979 miðar seldir en eins og staðan er núna hafa um 4800 miðar verið seldir á leikinn á eftir.

Mosfellingar hafa verið duglegri í miðakaupum en Kópavogsbúar, en sæti í aðalstúku Aftureldingar eru uppseld.

Fyrir leik
Ekki sjálfsagt að vera í bikarúrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eini titill Ólafs Inga Skúlasonar, þjálfara Breiðabliks, á leikmannaferlinum var bikarmeistaratitill með Fylki 2001.

„Það eru 25 ár síðan ég var 18 ára gamall og vann þennan bikar. Þá hugsaði ég að þetta væri einn af mörgum en svo líða árin, það er ekki sjálfsagt að vera í bikarúrslitum," segir Ólafur.

Fyrir leik
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
Mynd: Fótbolti.net

Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson eru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti sem sjá má hér:
Fyrir leik
Sterk tenging
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum búnir að ná stóra markmiðinu okkar með því að komast upp í Bestu deildina, við fáum svo þennan leik sem kirsuberið á toppinn," segir Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar.

Það eru ýmsar tengingar milli Afureldingar og Breiðabliks en sú sterkasta núna er að Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, er uppalinn hjá Aftureldingu og að auki bróðir þjálfara Mosfellinga, Magnúsar Más Einarssonar.

„Það er sterk tenging milli þessara félaga, fjölskyldubönd og margir leikmenn úr Mosó hafa spilað fyrir Breiðablik. Þetta verður mjög skemmtilegt einvígi."

Fyrir leik
Hvað segja tölurnar?
Það er erfitt að bera Breiðablik og Aftureldingu beint saman. Annars vegar er lið sem situr í fjórða sæti Bestu deildarinnar og hins vegar lið sem vann Lengjudeildina. Styrkleikamunurinn á deildunum er talsverður og því þarf að taka tölurnar með ákveðnum fyrirvara.
Mynd: Samsett - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hverjir úr Aftureldingu kæmust í lið Blika?
Mynd: KSÍ


Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson skrifar:
Ef við horfum á prófíl leikmanna í bland við frammistöðu þeirra í sumar, hversu margir leikmenn Aftureldingar kæmust þá inn í byrjunarlið Breiðabliks?

Afturelding hefur spilað í Lengjudeildinni í sumar en Breiðablik í Bestu deildinni og því ekki hægt að bera frammistöðu leikmannanna fullkomlega saman. Það er hægt að fara alls konar leiðir að þessu, en alveg hægt að færa rök fyrir því að einhverjir leikmanna Aftureldingar komast í sameiginlegt lið.
Mynd: FotMob

Það mætti færa góð rök fyrir öðrum leikmönnum á nokkrum stöðum. En þetta er kannski ágætis mælikvarði á hversu sterkt tímabil Mosfellingar hafa átt. Þeir eiga leikmenn sem eru raunverulega inni í umræðunni um sameiginlegt lið með Blikum.
Fyrir leik
Kryddbrauðið í Pizzabæ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sama hvert maður kemur í Mosfellsbæ er verið að tala um þennan leik. Við elskum úrslitaleiki og erum að koma hingað í þriðja sinn í fjórum árum í úrslitaleik. Við ætlum að skrifa annan kafla í fótboltasögu Mosó á föstudaginn," segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.

„Það hefur gengið frábærlega í miðasölunni hjá Mosfellingum og mér heyrist hálfur bærinn allar að fara á völlinn. Mér er sama hversu djúp tengingin er við Mosfellsbæ, hvort þú hafir verið að borða kryddbrauð með Svanþóri Einars á Pizzabæ fyrir 20 árum eða hvort þú sért nýfluttur í bæinn. Ég vil sjá alla hjálpa okkur í baráttunni."

Fyrir leik
Hungraðir Blikar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður fær ekki mörg svona tækifæri og við ætlum að skilja allt eftir á föstudeginum," segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.

„Það er engin værukærð eða vanmat hjá okkur. Við erum mjög hungraðir í þennan bikar, peppaðir og spenntir fyrir föstudeginum. Afturelding er afburðarlið í Lengjudeildinni og er á Bestu-deildar kaliberi."

Fyrir leik
Breiðablik tapaði í úrslitum í eina skiptið sem B-deildarlið hefur unnið bikarinn
„Það hefur gerst einu sinni að lið úr næstefstu deild hefur unnið bikarinn, það var 1971 (Víkingur). Átján árum áður en ég fæddist. Það segir sig sjálft á hverjum pressan er fyrir þennan leik," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, í viðtali í vikunni.

Fyrir leik
Líkleg byrjunarlið
Í liði Aftureldingar vantar einn þeirra hættulegasta mann, Elmar Kára Enesson Cogic, sem hefur verið mikið frá vegna meiðsla á tímabilinu.

Búist er við að Höskuldur Gunnlaugsson snúi aftur í lið Breiðabliks á kostnað Gabríels Snæs Hallssonar. Höskuldur hefur verið að glíma við krónísk bakmeiðsli síðastliðið ár og hefur því aðeins byrjað ellefu leiki í Bestu deildinni hingað til.
Fyrir leik
Ívar Orri með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma úrslitaleikinn. Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson verða aðstoðardómarar á úrslitaleik karla, varadómari er Gunnar Oddur Hafliðason, varaaðstoðardómari er Guðmundur Ingi Bjarnason, eftirlitsmaður dómara Oddur Helgi Guðmundsson og eftirlitsmaður leiks er Haraldur V. Haraldsson.
Fyrir leik
Úrslitastund á Laugardalsvelli
Mynd: Mjólkurbikarinn

Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli. Þó Afturelding sé deild neðar eru margir sem hafa tröllatrú á að liðið hampi bikarnum.

Í skoðanakönnun sem var á forsíðu spá 65% því að Afturelding hampi bikarnum en 35% því að Breiðablik vinni.

Breiðablik er án sigurs í sex leikjum í Bestu deildinni, vann síðast í júlí, og hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína. Afturelding vann Lengjudeildina en eru Mosfellingar virkilega sigurstranglegri fyrir þennan leik?

Mynd: Fótbolti.net

Ekki ef rýnt er í veðbanka. Epicbet er með stuðulinn 3,05 á að Afturelding vinni í venjulegum leiktíma. 2,18 er á að Breiðablik vinni í venjulegum leiktíma en 3,78 á að farið verði í framlengingu.

Þá er stuðullinn 2,40 á að Afturelding muni hampa bikarnum en 1,60 á að Breiðablik standi uppi sem sigurvegari.

„Það er engin værukærð eða vanmat hjá okkur. Við erum mjög hungraðir í þennan bikar, peppaðir og spenntir fyrir föstudeginum. Afturelding er afburðarlið í Lengjudeildinni og er á Bestu-deildar kaliberi," sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, í viðtali í gær.

„Við komum með mikið sjálfstraust inn í leikinn og höfum mikla trú á því sem við erum að gera. Þetta verður hörkuleikur, Blikar eru með gott lið, góðan þjálfara og góða leikmenn," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leið liðanna í úrslitaleikinn:

Afturelding
32 liða úrslit - Afturelding - Ýmir 6-1
16 liða úrslit - Afturelding - Njarðvík 5-2
8 liða úrslit - Afturelding - Stjarnan 3-1
Undanúrslit - Fylkir - Afturelding 1-1, 3-4 eftir vítaspyrnukeppni

Breiðablik
32 liða úrslit - Kormákur/Hvöt - Breiðablik 1-6
16 liða úrslit - Þróttur R. - Breiðablik 1-2
8 liða úrslit - Ægir - Breiðablik 0-3
Undanúrslit - Breiðablik - Víkingur R. 3-0
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.