Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Pétur Guðmundsson
Fyrir leik
Gylfi ætti að vera klár
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings, fór meiddur af velli í hálfleik gegn Fram en Sölvi segir að einungis hafi verið um stífleika að ræða.

"Hann stífnaði í vöðva, engin meiðsli þannig séð."

Fyrir leik
Spámaðurinn
Brynjar Bergsson leikmaður Selfossar spáir í leiki umferðarinnar. Hann spáir þægilegum 2-0 Víkingssigri í kvöld þar sem Hrannar Snær Magnússon skorar tvennu.

"Baxterinn farinn frá Keflavík og mér finnst lítið til þessa liðs koma þegar Baxterinn er farinn. Hrannar skorar bæði mörkin, en hann þróaði leik sinn á Selfossi."

Fyrir leik
Viðureignir liðanna
Víkingar hafa unnið báða leikina gegn Keflavík í sumar. 3-1 útisigur í 5. umferðinni og svo 5-1 heimasigur í 16. umferðinni. Leikirnir hafa verið stútfullir af mörkum svo ég býst við skemmtilegum leik í kvöld!

Samanlagt hafa leikirnir farið 8-2 fyrir Víkingi en í leikjunum tveimur hafa verið 10 mismunandi markaskorarar.

Sjáðu allt það helsta úr leikjunum.



Fyrir leik
Keflavík
Það er yfir höfuð magnað afrek að Keflavík endi í efri hlutanum í Bestu deildinni, lið sem endaði í neðsta umspilssæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð á markatölu.

Keflvíkingar enduðu í 6. sæti deildarinnar fyrir skiptingu með 28 stig, eins og Stjarnan sem var með verri markatölu og enduðu í neðri hlutanum. Í síðustu fimm hafa Keflvíkingar unnið tvo og tapað þremur, en núna þegar efri hlutinn er tryggður, eru þeir ekki að spila upp á neitt annað en sæti í deildinni og svo auðvitað heiðurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Það hefur hægst á stigasöfnun Víkinga undanfarnar vikur. Í síðustu sex hafa Víkingar unnið tvo og gert fjögur jafntefli. Evrópuleikirnir eiga líklega einhvern þátt í því. Í síðustu tveimur umferðum fyrir skiptingu skildu Víkingar jafnir við Fram og KR sem eiga enn raunhæfan möguleika á titlinum.

Þrátt fyrir höktið í Íslandsmeisturunum eru Víkingar í góðri stöðu á toppnum með 53 stig. Víkingar eru með 6 stiga forystu og leik inni á KR, og með 8 stiga forystu á Fram í þriðja sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Pétur Guðmundsson verður með flautuna í kvöld. Birkir Sigurðarson og Eysteinn Hrafnkelsson verða með flöggin á meðan Arnar Þór Stefánsson verður á milli varamannabekkjanna. Dómaraeftirlitsmaður leiksins verður Jón Magnús Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
1. umferð eftir skiptingu
Leikurinn er hluti af fyrstu umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu. Umferðin hófst í gær með fjórum leikjum og henni lýkur á morgun með leik Fram og Breiðabliks í efri hlutanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Umferðin:
Í gær
Stjarnan 2-0 ÍBV
FH 3-0 KA
Valur 4-1 Þór
KR 5-1 ÍA
Í dag
Víkingur - Keflavík (19:15)
Á morgun
Fram - Breiðablik (19:15)
Fyrir leik
Hamingjan heilsar!
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomnir í þessa þráðbeinu textalýsingu úr Fossvoginum þar sem Víkingur tekur á móti Keflavík. Flautað verður til leiks á slaginu 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.