Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna - Efri hluti
Eikarvöllurinn
Breiðablik
Breiðablik
4 - 1
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
Agla María Albertsdóttir 2'1 - 0Kristín Dís Árnadóttir 12'2 - 0Edith Kristín Kristjánsdóttir 45'3 - 051' Emma Nicole Phillips (misnotað víti)Þórdís Elva Ágústsdóttir 52'4 - 04 - 161' Júlía Ruth Thasaphong
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Blikasigur og pressan yfir á FH

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik nýtti sér mistök Grindavíkur/Njarðvíkur af mikilli hörku og lagði grunninn að sigrinum strax íá 2. mínútu með fyrsta marki leiksins frá fyrirliðanum Öglu Maríu. Þær náðu svo 3-0 forystu fyrir hlé en gestirnir fengu kjörið tækifæri til að hleypa spennu í leikinn úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik. Herdís Halla varði hins vegar og aðeins mínútu síðar skoraði Þórdís Elva fjórða mark Blika. Júlía Ruth náði inn einu sárabótamarki fyrir Grindavík/Njarðvík en lengra komust þær ekki.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Skoraði fyrsta markið, átti skotið sem Kristín Dís náði frákastinu af í seinna markinu og átti svo stoðsendingu í þriðja markinu sem Edith skoraði. Var stöðug ógn við vörn gestanna.

2. Þórdís Elva Ágústsdóttir

Átti góðan dag á miðjunni hjá Blikum og kórónaði svo góða frammistöðu með sínu fyrsta marki í grænu treyjunni. Aðrar sem fá shoutout er Herdís Halla fyrir varið vítið, Líf og Edith sem voru líflegar

Atvikið

Set þetta á vítaspyrnuna í upphafi síðari hálfleiks. Emma Nicole gat minnkað muninn í 3-1 en Herdís Halla varði frá henni. Nánast strax í kjölfarið skoraði Þórdís Elva fjórða mark Blika og þar með var leikurinn í raun úr sögunni.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik styrkir stöðu sína á toppi deildarinnar og eru tímabundið með allavega þriggja stiga forskot og +4 mörk í markatölu á FH. Blikar eru nú með 40 stig eftir 19 leiki en FH, sem á leik til góða gegn Stjörnunni, getur jafnað þær að stigum á morgun. Grindavík/Njarðvík er hins vegar áfram í 6. sæti með 22 stig.

Vondur dagur

Emma Nicole Phillips átti erfiðan dag í dag. Mistök í uppspili leiddu að fyrsta marki Breiðabliks og hún lét svo verja frá sér vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik.

Dómarinn - 5

Dómarateymið komst þokkalega frá þessum leik, dæmdu víti sem ég er þó ekki alveg viss um, fannst brotið hafa byrjað út fyrir teig. Það kom þó ekki að sök þar sem þær náðu ekki að nýta sér það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.