SKÝRSLAN: Þýski risinn þurfti vítapunktinn til að leggja FH í Krikanum
Hvað réði úrslitum?
Í dag var það eitt augnablik sem skildi liðin að. FH mætti stórliði Frankfurt af miklum krafti, var þétt til baka og gaf gestunum ekkert eftir í baráttunni. Aldís Guðlaugsdóttir varði allt sem kom á markið í opnum leik en á 59. mínútu varð Jónína Linnet fyrir því óláni að brjóta á Danique Tolhoek innan vítateigs. Rebecka Blomqvist skoraði af punktinum og tryggði Frankfurt nauman sigur. FH komst í álitlegar stöður og fékk nokkur föst leikatriði en lokahnykkinn vantaði til að reyna almennilega á Linu Altenburg í marki gestanna.
Bestu leikmenn
1. Aldís Guðlaugsdóttir
Frábær leikur hjá markverði FH. Aldís varði frábærlega frá Lauru Freigang og Paulinu Krumbiegel, var örugg í úthlaupum og gaf vörninni mikla ró. Hún fór í rétt horn í vítaspyrnunni en náði ekki fingurgómunum í boltann. Hélt FH inni í leiknum og var einfaldlega best á vellinum.
2. Ingibjörg Magnúsdóttir
Alveg margar sem gera tilkall hér í frábærum leik hjá FH liðinu en Ingibjörg var óhrædd gegn stórstjörnum Frankfurt og gerði gestunum ítrekað erfitt fyrir með hraða sínum og áræðni. Hún vann vel til baka, sótti aukaspyrnur og horn og var ein helsta ógn FH fram á við. Mjög þroskuð frammistaða hjá hinum unga leikmanni á stóra sviðinu.
Atvikið
Ekki hægt að velja neitt annað en vítaspyrnuna sem réð úrslitum. Danique Tolhoek var nýkomin inn á þegar hún fór niður í teignum eftir viðskipti við Jónínu Linnet. Karoline Marie Jensen benti réttilega á punktinn og Rebecka Blomqvist skoraði eina mark leiksins á 61. mínútu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslit dagsins þýða það einfaldlega að Frankfurt er komið 1-0 yfir í einvíginu en eitt mark er rosalega lítið í fótbolta og miðað við frammistöðu FH liðsins í dag þá geta þær vel náð í úrslit í Þýskalandi svo lengi sem þær mæta með sama fókus og í dag!
Vondur dagur
Það var nú enginn leikmaður sem átti lélegan leik í dag en það það er alltaf vont að gefa vítaspyrnu og hvað þá í svona jöfnum leik við jafn stórt lið, Jónína Linnet sem annars átti fínan leik í dag mun örugglega eiga erfitt með að sofna í kvöld.
Dómarinn - 4
Norska dómarateymið fær ekki góða einkunn frá mér í dag. Mér fannst hún Karoline einfaldlega ekki hafa nógu góða stjórn á leiknum, þetta var skrítin lína sem hún setti og stóð svo ekki við. Mörg brot FH megin sem ekki var dæmt á en var dæmt á fyrir Frankfurt. Hún má þó eiga það að hún dæmdi rétt í vítaspyrnunni sem var stærta mómentið í leiknum.


