Fotbolti.net
Magnús Atlason
Þjóðadeildin
Laugardalsvöllur
8° og lygnt. Varla hægt að biðja um betra haustveður.
Ísland
Ísland
1 - 1
Eistland
Eistland
Andri Lucas Guðjohnsen 45'1 - 052' Kevor Palumets (misnotað víti)1 - 164' Maksim Paskotsi
Dómari: Milos Milanovic (Serbía)
Áhorfendur: 5320
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Serbinn flautar til leiksloka hér. 1-1 jafntefli niðurstaðan í mjög slökum leik. Viðtöl koma inn seinna í kvöld.
Ég þakka fyrir mig.
90. mín
90+4
Sendingin inn í teiginn á Orra sem nær kraftlitlum skalla á markið.

Líklega síðasta tækifæri leiksins.
90. mín
90+2
Ísland liggur á gestunum í augnablikinu. Fáum við sigurmark?
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
FÆRI
Sending inn í teiginn sem Ísak leyfir að fara. Kristall bíður fyrir aftan hann og skýtur á markið en enn og aftur ver Karl Hein.
88. mín
Logi Tómasson með fínasta skot sem Karl blakar yfir þverslánna. Ísland fær horn en ekkert kemur úr því.
Eistland
86. mín
InnMarkus Soomets
ÚtMattias Käit
85. mín
Arnór með skot en beint á Karl sem ver örugglega.
Ísland
85. mín
InnLogi Tómasson
ÚtMikael Egill Ellertsson
Önnur tvöföld skipting
Ísland
85. mín
InnKristall Máni Ingason
ÚtAndri Lucas Guðjohnsen
Ísland
84. mín
Pirringsbrot

Stefán Teitur Þórðarson

Eistland
81. mín
Gult spjald

Rasmus Peetson

Brýtur á Ísaki sem er á ferðinni.
Eistland
78. mín
InnJoonas Tamm
ÚtKarel Mustmaa
78. mín
Brotið á Arnóri inn í teig og Ísland kallar eftir víti en Serbinn segir nei. Gylfi með skotið í kjölfarið en það er af varnarmanni og endar í hornspyrnu.

Guðlaugur Victor með skalla yfir markið úr horninu.
76. mín
Karel Mustmaa með skot en Hákon ver.
Ísland
75. mín
InnGylfi Þór Sigurðsson
ÚtÍsak Bergmann Jóhannesson
Arnar gerir tvær breytingar
Ísland
75. mín
InnArnór Sigurðsson
ÚtJón Dagur Þorsteinsson
73. mín
Vel unnið til baka hjá Daníel sem tæklar Mattias í skyndisókn. Ísland fær horn í kjölfarið.

Karl kýlir boltann frá og sóknin heldur áfram en rennur á endanum út í sandinn.
70. mín
Flott samspil hjá Ísaki Snæ og Andra Lucasi en sending Andra fyrir markið ætluð Hákoni er hreinsuð í horn.

Orri á skallan yfir markið í horninu.
67. mín
Daníel Leó kominn með höfuðband eftir að hafa reynt að dekka Paskotsi. Hefur fengið eitthvað högg. Leikurinn farinn af stað aftur.
Eistland
64. mín
USSSSS

Maksim Paskotsi (stoðsending: Rasmus Peetson)

Rasmus með góða fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Paskotsi skallar boltann framhjá Hákoni. Daníel Leó nær ekki átti að vera með hann en Paskotsi sterkari.

Allt orðið jafnt á ný.
63. mín
Vítavarslan
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistland
61. mín
InnPatrik Kristal
ÚtMihkel Ainsalu
60. mín
Fyrirgjöfin frá Jóni á hættulegan stað í teignum en rangstaða dæmd.
59. mín
Daníel Leó vinnur aukaspyrnu á hættulegum fyrirgjafastað.

Ísak Bergmann og Jón Dagur yfir boltanum.
58. mín
Orri Steinn með lúmska sendingu inn í teiginn á Andra sem nær ekki að taka boltann með sér.
57. mín
Andri Lucas með sendingu fyrir markið en skot Ísaks Snæs í varnarmann og í innkast.
55. mín
Jón Dagur með skot úr aukaspyrnu af tiltölulega löngu færi. Karl er á tánum og ver örugglega.
Eistland
52. mín
VARIÐ

Kevor Palumets

Vítið alveg úti við stöng og Hákon Rafn nær að slæma höndinni í boltann og ver í horn. Frábær varsla og þvílíkur leikur sem Hákon Rafn er að eiga.
51. mín
Eistar fá víti
Ísak Snær Þorvaldsson sparkar Eista niður innan teigs. Óheppni en klárt víti.
50. mín
HÁKON RAFN
Rasmus Peetson með pláss á kantinum og sendir inn í teiginn. Þar nær Eisti föstu skoti á markið en Hákon ver í horn. Alvöru markvarsla.
49. mín
Fínasta spil hjá Íslandi en skot Orra endar í innkasti.
48. mín
Markinu fagnað innilega
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

48. mín
Ísak Bergmann með sendinguna á Mikael Egil sem kemur sér í fína stöðu en sendingin fyrir markið yfir allann pakkann.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Ísak Bergmann sparkar síðari hálfleik af stað.
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks
Með bolta
Ísland 58% - 42% Eistland
Skot
Ísland 6 - 3 Eistland
Sendingar
Ísland 274 - 192 Eistland
Hornspyrnur
Ísland 3-1 Eistland
45. mín
Hálfleikur
Svipmyndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
45. mín
Hálfleikur
Sama uppskrift og gegn Aserum?
Ísland mætti Aserbaídsjan fyrir rúmu ári síðan í undankeppni HM. Leikar enduðu með 5-0 sigri Íslands en fyrsta mark liðsins kom undir lok fyrri hálfleiks, rétt eins og í dag.

Spurning hvort að íslenska liðið endurtaki leikinn aftur í dag og skori fjögur í síðari hálfleik.

Þess má geta að Aserbaídsjan er í 126. sæti á heimslista FIFA en Eistland er sæti neðar, í 127. sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
45. mín
Hálfleikur
Serbinn flautar til hálfleiks hér. Ísland búið að vera miklu sterkari aðilinn í þessum fyrri hálfleik. Eistarnir hafa fengið eitt dauðafæri en ekki meira en það. Tökum okkur korter.
45. mín
45+3
Rasmus Peetson með langt innkast inn í teiginn en innkastið dæmt af honum.

Kominn langt inn á völlinn þegar hann kastaði loksins boltanum.
45. mín
Þremur mínútum bætt við
Ísland
45. mín
ANDRI LUCAS BRÝTUR ÍSINN

Andri Lucas Guðjohnsen (stoðsending: Hákon Arnar Haraldsson)

Hákon Haraldsson með frábæra fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Andri Lucas rís manna hæst og nær kröftugum skalla á markið. Karl Hein var aldrei að fara að verja þennan!

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
42. mín
Ísak Snær með hættulega fyrirgjöf inn í teiginn. Andri Lucas rétt missir af boltanum.
41. mín
Daníel Leó með fína skiptingu á Jón Dag sem nær ekki að taka boltann með sér.
40. mín
Orri reynir bakfallsspyrnu eftir sendingu Jóns Dags en hann hittir boltann illa.
38. mín
Stórhætta
Eistarnir spila vel sín á milli og allt í einu er Kevor Palumets kominn einn í gegn en Hákon ver meistaralega frá honum.

Besta færi leiksins.
37. mín
Maksim Paskotsi skallar í horn. Hornið aftur tekið hratt. Hákon með nóg af plássi fyrir utan teig og lætur vaða. Skotið fast en beint á Karl sem ver örugglega.
35. mín
Kallaði samstundis eftir aðhlynningu
Albert kallaði samstundis eftir aðhlynningu í kjölfar samstuðsins, skelfileg tíðindi fyrir Ísland.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

34. mín
Hákon vinnur hornspyrnu. Hún er tekin hratt og stutt. Boltinn berst á Mikael sem reynir skotið fyrir utan teig en skotið í fyrsta varnarmann Eista.
32. mín
Orri Steinn í hlaupinu eftir frábæra sendingu inn fyrir hjá Hákoni. Orri reynir sendinguna fyrir markið á Ísak Snæ en sendingin of aftarlega.
30. mín
Nú ratar fyrirgjöf Jóns Daða beint á Karl. Ísland verður að skerpa upp á þessar fyrirgjafir.
Ísland
28. mín
InnÍsak Snær Þorvaldsson
ÚtAlbert Guðmundsson
Þetta er högg
Albert getur ekki haldið leik áfram.

Fyrsti keppnisleikur Ísaks fyrir Ísland.
26. mín
Albert lendir illa á öxlinni
Albert í hörðu samstuði við Eista og hann liggur eftir og kallar strax á teymið. Hann lenti ansi harkalega.

Þjálfarar ræða við liðin á meðan Albert fær aðhlyninngu.
25. mín
Andri með sendinguna fyrir markið en beint á Karl Hein sem grípur knöttinn örugglega.
23. mín
Mikael Egill með sendinguna á Albert sem er í hlaupinu en hún er of föst og Eistar fá markspyrnu.
21. mín
Haukur Gunnarsson er með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

20. mín
Ísland búið að vera töluvert sterkari aðilinn þessar fyrstu 20 mínútur. Eistarnir hafa komist í eitt hálffæri en ekki meira en það.
18. mín
Mikael Egill vinnur aukaspyrnu á fyrirgjafastað.

Ísak Bergmann með spyrnuna sem ratar á kollinn á Orra sem skallar upp í loftið. Sóknin rennur að lokum út í sandinn án almennilegs færis.
14. mín
Jón Dagur með lúmska fyrirgjöf inn í teiginn en Eistar hreinsa í horn.

Karl grípur boltann úr horninu í annarri tilraun.
13. mín
Hákon reynir sendinguna inn fyrir á Orra en sendingin örlítið of föst og Karl í markinu á undan Orra í boltann.

Fínasta hugmynd.
10. mín
Orri tekur boltann í fyrsta inn í teig með hælnum á Hákon sem kemur honum á Albert en skot hans fer aftur fyrir endamörk.

Skemmtileg sókn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
7. mín
Markus Poom með skot af löngu færi en það er víðsfjarri markinu.
3. mín
FÆRI
Jón Dagur gerir mjög vel á kantinum og kemur sér upp að hornfána. Sendir svo fyrir markið þar sem Andri Lucas lúrir á nærsvæðinu en skotið í hliðarnetið.

Fínasta byrjun á þessum leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
1. mín
Eistarnir hefja leik. Áfram Ísland!
Markus Poom kemur leiknum í gang.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Og þá er það þjóðsöngur Íslands
Stúkan tekur undir. Þetta fer að bresta á!
Fyrir leik
Liðin gengin inn á völlinn
Fáum að heyra þjóðsöng Eista.
Fyrir leik
Myndir frá upphitun
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Leikurinn í sjónlýsingu
KSÍ, Blindrafélagið og Samtök íþróttafréttamanna standa fyrir lýsingu á leiknum. Til að hlusta á sjónlýsingu á heimaleikjum A landsliða Íslands þarf að sækja appið Raydio - Audio Inklusion

Hér má finna lýsinguna og nánari upplýsingar
Fyrir leik
Eistarnir í fimm manna vörn
Mynd: UEFA

Fyrir leik
Stefán Teitur í hjarta varnarinnar
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari opinberað byrjunarlið sitt og er ein breyting frá líklegu byrjunarliði sem Fótbolti.net setti saman í gær.

Hákon Rafn Valdimarsson er á milli stanganna í fjarveru Elías Rafns Ólafssonar sem dró sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla.

Þá byrjar Stefán Teitur Þórðarson í hafsentinum en við hlið hans er Daníel Leó Grétarsson. Mikael Egill Ellertsson byrjar í vinstri bakverði og hægra megin er Guðlaugur Victor Pálsson.

Á miðjunni eru Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson.

Albert Guðmundsson og Jón Dagur Þorsteinsson eru á sitthvorum köntunum og leiða Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson línuna.
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands (Staðfest)
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Íslands
Fótbolti.net hefur sett saman líklegt byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi en einnig draumabyrjunarlið.

Fyrir leik
Okkur ber skylda til að taka leikinn til þeirra
„Við erum mikið ofar á FIFA listanum og okkur ber skylda til að taka leikinn til þeirra, halda háu orkustigi. Aserbaísjan er einu sæti neðar en Eistland svo fólk getur kannski haft smá hugmyndir um það hvernig leikurinn mun þróast," sagði Arnar.

Fyrir leik
Þarf ekki fyrirliðabandið til að vera hluti af leiðtogahópnum
„Hann er að koma inn með mikla reynslu og þekkingu. Hann er einn af þeim leikmönnum sem eru með stórmótareynslu. Þetta verður erfiður gluggi. Hann hefur verið leiðtogi hópsins í mörg ár. Hann þarf ekki fyrirliðabandið til að vera hluti af leiðtogahópnum," sagði Arnar Gunnlaugsson um Aron Einar Gunnarsson en Þjóðadeildin verður hans síðasta keppni fyrir landsliðið.

Fyrir leik
Ég styð þá í því að tjá sig
„Þegar ég er spurður spurninga þá vil ég tjá mig af hreinskilni og ég fagna því að leikmenn geti tjáð sig. Ég styð þá í því að tjá sig. Mér fannst það flott hjá honum að tjá sig og vera ekkert að fela sig með það," sagði Arnar Gunnlaugsson um Albert Guðmundsson sem tjáði sig um samband sitt við Arnar Þór Viðarsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara.

Fyrir leik
Tólfan hefur talað - "Ekki bíða eftir stemningunni. Búum hana til."
Formaður Tólfunnar hvetur þjóðina að fjölmenna á völlinn í pistli sem birtur var á Facebook-síðu Tólfunnar.

Fyrir leik
Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Deildunum í Þjóðadeildinni verður fækkað úr fjórum í þremur frá og með 2028. Nýtt fyrirkomulag verður tekið í notkun sem líkist Meistaradeildarfyrirkomulaginu svo þú ert ekki að mæta sömu þjóð heima og úti.

Til að vera öruggt með að komast upp í B-deildina og forðast það að leika í neðstu deild í næstu útgáfu verður íslenska liðið því að vinna riðilinn sem það er að fara í núna.

Ef annað sætið verður niðurstaðan mun Ísland fara í umspil gegn liði úr B-deild um hvort liðið verði í B-deildinni.
Fyrir leik
Getum sjálfum okkur um kennt
„Nei, ég held að það sé okkur að kenna. Við höfum ekki unnið nægilega marga leiki og veðrið er kannski ekki frábært. Á meðan við vinnum ekki leiki og veðrið er ekki betra þá getum við bara sjálfum okkur um kennt,“ segir Jón Dagur Þorsteinsson um dræma miðasölu.

Fyrir leik
Ætlum að vinna þennan riðil
„Auðvitað ætlum við að vinna þennan riðil en það er rosalega auðvelt að standa hérna og segja það. Við höfum tapað áður fyrir Lúxemborg, það er ekki eins og við séum að fara labba yfir þessi lið. Við þurfum að hafa fyrir því og sýna alvöru frammistöðu í þessum leikjum til þess að ná í sigur,“ segir Stefán Teitur Þórðarson.

Fyrir leik
Síðasta keppni Arons Einars
Aron Einar Gunnarsson tilkynnti í vikunni að Þjóðadeildin verði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu. Aron Einar var fyrirliði liðsins til fjölda ára og er næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, þremur leikjum á eftir Birki Bjarnasyni.

Guðlaugur segir það verða mikla eftirsjá að Aroni. „Maður gæti ekki hrósað honum nóg fyrir hvað hann hefur lagt í allt þegar kemur að íslenska landsliðinu – hvernig hann er búinn að fórna sér fyrir land og þjóð. Hann er rosalega mikilvægur innan sem utan vallar. Hans verður sárt saknað,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson.

Fyrir leik
Margir leikir á stuttum tíma
„Spennandi. Þetta er langt og mikið ferðalag en við þurfum að gera þetta vel. Það hefur væntanlega verið stillt upp góðu prógrammi, hvernig menn æfa og hvernig er með hvíld og annað. Það verður bara gaman að spila svona marga leiki á stuttum tíma," segir markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson um gluggan.

Fyrir leik
Verðum að sýna að við eigum heima ofar
„Við erum hæstir á heimslistanum af liðum riðilsins. Við verðum að sýna það að við eigum heima ofar. Taflan lýgur ekkert og við þurfum að fá úrslitin," segir Daníel Leó Grétarsson, varnarmaður Íslands.

Fyrir leik
Kristall: Ætlum að vinna þetta lið og skapa stemningu
Það er óvanalegt að hafa svona langan glugga en Kristall Máni Ingason, sem kemur fullur sjálfstrausts í þennan leik eftir gott gengi með félagsliði sínu Brann í Noregi, er fullur eftirvæntingar.

„Ég hef yfir engu að kvarta, að fá að vera með strákunum yfir svona langan tíma. Þetta er smá ferðalag og við getum dílað við það, við erum að fljúga í alla leiki með okkar félagsliðum. Þetta er ekki eitthvað sem við könnumst ekki við."

„Menn þurfa að vera faglegir og hugsa um sig á milli leikja. Vera klárir í hvern einasta leik og hverja einustu æfingu."

„Ég myndi segja það. Við erum með sterkt lið og eigum að gera þá kröfu að vinna þetta lið og skapa stemningu á vellinum. Ég hvet alla til að mæta, við ætlum að búa til stemningu."

Fyrir leik
Serbneskir dómarar
Serbneskir dómarar sjá um að dæma leikinn. Aðaldómarinn heitir Milos Milanovic og er fæddur 1993. Hann hefur dæmt leiki í efstu deild í Serbíu síðan 2022.

Milan Pasajlic og Svetozar Zivin verða aðstoðardómarar á leiknum og Milan Ilic fjórði dómari. VAR myndbandsdómari er Aleksandar Zivkovic og VAR aðstoðardómari Pavle Tomic.
Fyrir leik
Velkomin til leiks í Þjóðadeildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli klukkan 16 en þá hefja strákarnir okkar leik í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.

Ísland er í 74. sæti á styrkleikalista FIFA en Eistland í 127. sæti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.