Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Undankeppni EM U21
PEPSI völlurinn
Ísland U21
Ísland U21
1 - 1
Frakkland U21
Frakkland U21
0 - 131' Mathys TelDaníel Tristan Guðjohnsen 52'1 - 1
Dómari: Luca Zufferli (Ítalía)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Ísland sótti dýrmætt stig gegn Frökkum

Hvað réði úrslitum?

Frakkar komust verðskuldað yfir og gerðu sig líklega til að bæta marki við. Þeir fóru þó aðeins einu marki yfir inn í hálfleik. Ísland var sterkari aðilinn í seinni hálfleik og þegar Daníel Tristan skoraði þetta gullfallega aukaspyrnumark breyttist leikurinn. Heilt yfir sanngjörn niðurstaða.

Bestu leikmenn

1. Daníel Tristan Guðjohnsen

Frábær frammistaða í dag. Daníel skoraði auðvitað þetta stórkostlega mark úr aukaspyrnu sem breytti leiknum. Hann hélt oft vel í boltann og skapaði mikinn usla.

2. Eggert Aron Guðmundsson

Fyrirliðinn var magnaður í dag. Hann átti margar frábærar sendingar, sýndi oft lipra takta og var einnig góður varnarlega.

Atvikið

Þetta er aldrei spurning. Hið stórkostlega aukaspyrnumark sem Daníel Tristan skoraði. Frábær aukaspyrna sem jafnaði leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland fær dýrmætt stig í baráttunni um annað sæti riðilsins. Liðið er nú með 12 stig, fimm stigum á eftir Sviss, sem kemur í heimsókn á þriðjudaginn í gríðarlega mikilvægum leik. Frakkar eru með 17 stig á toppi riðilsins.

Vondur dagur

Það var enginn sem átti vondan dag.

Dómarinn - 7

Ítalinn flottur ásamt línuvörðunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.