Fotbolti.net
Fótbolti.net
Fótbolti.net
Undankeppni EM U21
Tórsvöllur
Færeyjar U21
Færeyjar U21
0 - 0
Ísland U21
Ísland U21
Dómari: Matthew De Gabriele (Malta)
Fyrir leik
Lúlli einn við stýrið - Óli Kristjáns fór ekki með
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ólafur Kristjánsson og Lúðvík Gunnarsson hafa stýrt U21 landsliðinu í síðustu leikjum eftir að Ólafur Ingi Skúlason hætti til að taka við Breiðabliki.

Ólafur er þó aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins líka og þar er framundan mikilvægt verkefni gegn Króatíu í umspili fyrir HM. Ólafur fór því ekki með til Færeyja.

Fyrir leik
Nýja miðvarðaparið sem Arnar þarf að hafa augun á
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er miðvarðakrísa í íslenska A-landsliðinu en í U21 landsliðinu er að koma upp spennandi miðvarðapar, tveir leikmenn sem hafa tekið stór skref á skömmum tíma.

Davíð Helgi Aronsson og Júlíus Mar Júlíusson spiluðu saman með U21-landsliðinu bæði gegn Frakklandi og Sviss og gætu verið tveir af þeim leikmönnum sem Arnar Gunnlaugsson þarf að fylgjast sérstaklega með á næstu vikum og mánuðum.

Fyrir leik
Funheitur Daníel Guðjohnsen
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Daníel Tristan Guðjohnsen í undankeppninni fyrir Evrópumót U21 landsliða 2027.

Daníel Tristan er búinn að gera sér lítið fyrir og skora sex mörk í fjórum leikjum.

Þrjú af þessum mörkum hafa komið í tveimur leikjum í yfirstandandi verkefni; eitt mark beint úr aukaspyrnu gegn Frakklandi og svo tvö gegn Sviss.


Fyrir leik
Þórsvöllur í Þórshöfn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikurinn fer fram á Þórsvelli í Gundadal í Þórshöfn, þjóðarleikvangi Færeyja.

Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hafa flugsamgöngur verið óstabílar til Færeyja vegna veðurskilyrða. Upphaflega átti íslenska liðið að fljúga á sunnudag en fluginu var frestað. Liðið kom loks til Þórshafnar í gær.
Fyrir leik
Dómararnir koma frá Möltu
Dómari: Matthew De Gabriele MLT
Aðstoðardómari 1: Jurgen Spiteri MLT
Aðstoðardómari 2: Mitchell Scerri MLT
Fjórði dómari: Fyodor Zammit MLT
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn!
Framundan hjá U21 landsliðinu er gríðarlega mikilvægur leikur við Færeyja um annað sæti riðilsins í undankeppni EM en hann á að fara fram á morgun. Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland í leik sem fram fer á sama tíma.

Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.

- Ef Ísland vinnur sinn leik endar Ísland með 18 stig.
- Ef Sviss vinnur sinn leik gegn Frakklandi endar Sviss með 20 stig og endar í 2. sæti.
- Ef Sviss gerir jafntefli og Ísland vinnur enda bæði lið með 18 stig. Þá endar Ísland í 2. sæti og kemst í umspil því Ísland hafði betur í innbyrðis viðureignum gegn Sviss (sigur og jafntefli).

Mynd: Fótbolti.net

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.