Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Undankeppni EM U21
Tórsvöllur
8 gráður og skýjað í Gundadal
Færeyjar U21
Færeyjar U21
0 - 2
Ísland U21
Ísland U21
0 - 114' Benoný Breki Andrésson0 - 217' Daníel Tristan Guðjohnsen
Dómari: Matthew De Gabriele (MLT)
Leik lokið!
Miklir yfirburðir Íslands!
Íslenska liðið svo miklu miklu betra en það færeyska í kvöld og eiginlega furðulegt að sigurinn hafi ekki verið stærri. 16-4 í marktilraunum þegar tölfræðin er skoðuð.

En umspilið er (Staðfest)! Fögnum því. Hrós á liðið hvernig það kláraði þennan riðil eftir bratta byrjun.

Frakkland vann Sviss 7-1.
Ísland U21
93. mín
InnTómas Orri Róbertsson
ÚtEggert Aron Guðmundsson
92. mín
Hilmir Rafn Mikaelsson kemst í rosalega gott færi en á mjög lélegt og laflaust skot beint á markvörð heimamanna. Viktor Bjarki ósáttur við að fá ekki sendinguna.
91. mín
Höfum siglt inn í uppbótartímann...
87. mín
Mikilvægir punktar
Meðan leikurinn er að renna sitt skeið þá má minna á nokkra punkta.

- Ísland tryggir sér annað sætið í riðlinum og fer í umspil.
- Dregið verður á föstudag hver mótherjinn verður.
- Umspilið verður í nóvember, leikið heima og að heiman.
- Sigurliðið í einvíginu fer í lokakeppni EM sem verður á næsta ári í Albaníu og Serbíu.
Færeyjar U21
86. mín
Gult spjald

Árni Nóa Atlason

Teikaði Viktor niður á miðjum vellinum.
Ísland U21
85. mín
Gult spjald

Stígur Diljan Þórðarson

Pirringsbrot.
82. mín
Jæja leikurinn er aftur kominn í gang. Væri hressandi að slútta þessum leik með einu íslensku marki í lokin...
82. mín
Færeyjar vinna Ísland þegar kemur að þjóðarleikvangi
Meðan leikurinn er stopp þá má alveg eyða nokkrum orðum í Þórsvöll, og að Færeyjar eru með flottari þjóðarleikvang en Ísland. Flottur lítill leikvangur þar sem er stúka fyrir aftan annað markið og báðir endar lokaðir.
81. mín
Lúkas Petersson markvörður liggur eftir, lenti í samstuði við Bartal Pál Klein í baráttu um boltann. Lúkas fær aðhlynningu og leikurinn stopp.
Færeyjar U21
80. mín
Gult spjald

Bartal Páll Klein

80. mín
Heini Sörensen með skot af löngu færi en vel yfir markið. Sjaldgæf marktilraun hjá Færeyjum hinsvegar.
Færeyjar U21
79. mín
InnBartal Páll Klein
ÚtArnór Brandsson
Ísland U21
78. mín
InnFreyr Sigurðsson
ÚtAmin Cosic
Ísland U21
78. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtDaníel Tristan Guðjohnsen
75. mín
Seinni hálfleikurinn alls ekki verið mesta skemmtunin. Ísland með tökin og hefur stigið af bensíngjöfinni. Það er um stundarfjórðungur þar til sæti Íslands í umspilinu verður staðfest.
Færeyjar U21
72. mín
Gult spjald

Bjarti Thorleifsson

Brýtur af sér við hliðarlínuna. Fyrsta gula spjaldið í leiknum.
72. mín
Stutt í að flautað verði til leiks í Tallinn
A-landsliðið er að fara að mæta Eistlandi í leik sem hefst klukkan 18:45. Toppslagur í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Hér má nálgast beina textalýsingu beint frá Tallinn
Færeyjar U21
70. mín
InnHans Höjgaard
ÚtJógvan Gullfoss
Færeyjar U21
70. mín
InnDávid Andreasen
ÚtDávid Reynheim
69. mín
6-1 fyrir Frakkland...
Alvöru hrun hjá Sviss í lok þessa riðils!
68. mín
Eggert Aron gerir vel og Hlynur Freyr Karlsson á svo skot fyrir utan teig en boltinn beint á Hans Jákup í marki heimamanna.
Ísland U21
63. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtGaldur Guðmundsson
Ísland U21
63. mín
InnViktor Bjarki Daðason
ÚtBenoný Breki Andrésson
62. mín
Ísland hefur átt 12 marktilraunir gegn 1
Það segir alla söguna. Við höfum verið með þennan leik í teskeið. Leikurinn hefur hinsvegar hægst aðeins. Lítið tempó í þessu. Spurning hvort við förum að fá inn ferska fætur af bekknum bráðlega...
56. mín
Færeyjar áttu marktilraun!
Allt með nokkuð kyrrjum kjörum í leiknum en það dró hinsvegar til tíðinda áðan þegar Heini Sörensen átti fyrstu marktilraun heimamanna í Færeyjum!
Færeyjar U21
54. mín
InnJónas Prior
ÚtEjvind Mouritsen
49. mín
Frakkland 4-0 Sviss
Frakkarnir eru að leika sér að Svissurunum.
47. mín
Daníel Tristan með skot
Rétt framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn í gang
Engar breytingar í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Mínútu var bætt við fyrri hálfleik - Maltverjinn hefur flautað til hálfleiks
Frakkar 3-0 yfir gegn Svisslendingum svo það þarf eitthvað yfirnáttúrulegt að gerast til að strákarnir okkar tryggi sér ekki umspilssæti. Rosalegir yfirburðir íslenska liðsins í þessum fyrri hálfleik í Þórshöfn.
44. mín
Tölfræðin talar sínu máli
Síðustu mínútur hafa verið frekar rólegar. Tölfræðin í leiknum hingað til:

Marktilraunir: 0-8
Skot á mark: 0-6
Hornspyrnur: 0-4
42. mín
Er það frekja?
Væri alveg til í að sjá þriðja mark Íslands detta inn fyrir hálfleikinn. Yfirburðir okkar úti á vellinum hafa verið það miklir að við eigum að vera búnir að ná inn þriðja markinu.
40. mín
Frakkar 3-0 yfir...
Tel með annað mark sitt. Allt eins og það á að vera í Frakklandi.
37. mín
Stórhættuleg sókn Íslands
Þarna munaði litlu að þriðja markið kæmi, Daníel Tristan rennir boltanum út á Daníel Frey í teignum en Daníel Freyr skýtur yfir markið.
35. mín
Galdur með hættulega skottilraun en í varnarmann.
33. mín
Óvænt heimsókn fótboltans í vítateig Íslands! Engin hætta á ferðum þó en Lúkas Petersson handsamar knöttinn.
29. mín
Daníel Freyr Kristjánsson með flotta skottilraun af löngu færi. Hans Jákup ver í hornspyrnu. Einstefna íslenska liðsins heldur áfram.
27. mín
Stöngin kemur í veg fyrir þriðja mark Íslands
Kjartan Már með öflugt hlaup með boltann og fer með hann að vítateignum, sendir á Amin Cosic vinstra megin og fyrirgjöf hans fer af varnarmanni og í hornspyrnu.

Hættuleg hornspyrna sem fer á Daníel Tristan við fjærstöngina, hann kemur boltanum fyrir og á endanum á Davíð Helgi Aronsson skalla í stöngina.
24. mín
Algjörir yfirburðir Íslands
Eigum þennan leik með húð og hári, væri alveg til í að sjá 'Possession' tölfræðina. Færeyska liðið ekkert náð að ógna íslenska markinu.
21. mín
Stefnir allt í umspilið
Ísland 2-0 yfir og Frakkland 2-0 yfir. Allt útlit fyrir að Ísland muni ná öðru sæti riðilsins og komast í umspilið. Umspilsleikirnir verða spilaðir í næsta mánuði en eins og áður hefur komið fram verður dregið á föstudaginn. Leikið heima og að heima, sigurliðið kemst í lokakeppnina á næsta ári.
Ísland U21
17. mín
HANN SKORAR EINS OG ENGINN SÉ MORGUNDAGURINN!

Daníel Tristan Guðjohnsen (stoðsending: Daníel Freyr Kristjánsson)

Þetta var svo einfalt. Daníel Freyr með flottan sprett og rennir boltanum á nafna sinn sem getur ekki annað en skorað. Aleinn í teignum. Færeyski varnarleikurinn alls ekki til útflutnings.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland U21
14. mín
ÞAÐ VAR LAGIÐ!

Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Amin Cosic)

Allt eins og það á að vera! Beoný Breki skallar boltann inn af stuttu færi eftir geggjaðan undirbúning og fyrirgjöf frá Amin Cosic frá vinstri. Frábær móttaka hjá Amin áður en hann kom sér framhjá varnarmanni og átti hnitmiðaða fyrirgjöf!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
12. mín
Frakkar eru komnir 2-0 yfir gegn Sviss
Ljómandi gott... virðumst ekki þurfa að hafa nokkrar áhyggjur af hinum leiknum.
11. mín
Bara spilað á vallarhelmingi Færeyja
Einstefna hjá íslenska liðinu en komnar nokkrar mínútur síðan það náði að ógna markinu.
8. mín
Frakkar komnir yfir!
Frakkland 1-0 Sviss. Tel var að koma Frökkum yfir. Frábærar fréttir... en við verðum auðvitað fyrst og fremst að byrja á því að klára sigur í okkar leik.
7. mín
Markvörður Færeyja í yfirvinnu í upphafi leiks
Íslenska liðið ógnar mikið hér í byrjun leiks. Benoný Breki fékk stórhættulega sendingu en Hans Jákup vel á verði og mættur vel út úr markinu. Yfirvinna á markvörð færeyska liðsins.
5. mín
DAUÐAFÆRI!!!!
Eftir frábært spil íslenska liðsins kemur fyrirgjöf á Daníel Tristan í teignum en frábærlega lokað hjá Hans Jákup í marki heimamanna! Þarna átti Daníel að skora.
3. mín
Ísland á fyrstu marktilraunina
Færeyingar með fyrirgjöf sem Hlynur Freyr skallar í burtu og í kjölfarið er dæmd aukaspyrna á heimamenn.

Ísland fer upp í sókn hinumegin. Amin Cosic ógnar uppi vinstra megin og á fyrirgjöf á pönnuna á Daníel Tristan, hann á skalla sem Hans Jákup markvörður Færeyinga blakar yfir í hornspyrnu. Ekkert verður úr horninu.
1. mín
Leikur hafinn
Áfram Ísland!
Íslenska liðið í bláum treyjum, hvítum stuttbuxum og bláum sokkum. Íslenska liðið sækir í átt að hafnarsvæðinu í Þórshöfn í fyrri hálfleik. Færeyska liðið átti upphafsspyrnuna.
Fyrir leik
Jæja allt klárt! Liðin heilsast
Ef við komumst í umspilið góða um sæti á HM þá fylgjumst við vel með á föstudaginn en þá verður dregið í höfuðstöðvum UEFA í Sviss. Lokamót EM U21 á næsta ári verður haldið í Albaníu og Serbíu og þar viljum við svo sannarlega vera.
Fyrir leik
Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
Verið að spila þjóðsöngvana. Fámennt í stúkunni á hinum glæsilega og stórskemmtilega Þórsvelli, enda hefur færeyska liðið ekki að neinu að keppa. Strákarnir okkar þurfa hinsvegar á sigri að halda, og treysta á að Frakkar tapi ekki gegn Sviss.

Við eigum harma að hefna gegn Færeyjum enda töpuðum við fyrir þeim á Þróttarvelli 1-2 í september á síðasta ári.
Fyrir leik
Útsending hafin á Sýn Sport 2
Leikurinn er sýndur beint á Sýn Sport 2. Rikki Gje við hljóðnemann. Færeysku sjónvarpsmennirnir aðeins sofandi og á skilti með byrjunarliðunum stendur 'Meistaradeildin kvinnur'. Eitthvað gleymst að breyta gömlu skilti.
Fyrir leik
Jógvan Gullfoss
Okkar uppáhalds leikmaður í færeyska liðinu hlýtur að vera Jógvan Gullfoss sem spilar fyrir B36 í Þórshöfn. Hann er allavega með besta nafnið, blanda af því besta frá báðum löndum.

Mynd: Samsett

Byrjunarlið Færeyja:
1. Hans Jákup Armgrímsson (m)
2. Bjarti Thorleifsson
3. Ingi Arngrímsson
5. Jákup Vilhemsen
9. Heini Sörensen
14. Jógvan Gullfoss
15. Árni Nóa Atlason
17. Ejvind Mouritsen
6. Arnór Brandsson
10. Dávid Reynheim
13. Jósef Ólavsson

Byrjunarlið Íslands:
1. Lúkas Petersson (m)
2. Daníel Freyr Kristjánsson
3. Júlíus Mar Júlíusson
5. Hlynur Freyr Karlsson
9. Daníel Tristan Guðjohnsen
10. Eggert Aron Guðmundsson (f)
15. Amin Cosic
18. Kjartan Már Kjartansson
22. Benoný Breki Andrésson
4. Davíð Helgi Aronsson
8. Galdur Guðmundsson
Fyrir leik
Fylgjumst einnig með gangi mála í Orléans
Frakkland og Sviss mætast á sama tíma og þar þurfum við að halda með því að Frakkar vinni EKKI. Ef þau úrslit fara eftir bókinni þá er Ísland öruggt með umspilssæti með sigri í Þórshöfn.

Við munum í þessari textalýsingu auðvitað fylgjast líka með gangi mála í Frakklandi.
Fyrir leik
Sama byrjunarlið og rúllaði yfir Sviss

Fyrir leik
Lúlli einn við stýrið - Óli Kristjáns fór ekki með
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ólafur Kristjánsson og Lúðvík Gunnarsson hafa stýrt U21 landsliðinu í síðustu leikjum eftir að Ólafur Ingi Skúlason hætti til að taka við Breiðabliki.

Ólafur er þó aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins líka og þar er framundan mikilvægt verkefni gegn Króatíu í umspili fyrir HM. Ólafur fór því ekki með til Færeyja.

Fyrir leik
Nýja miðvarðaparið sem Arnar þarf að hafa augun á
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er miðvarðakrísa í íslenska A-landsliðinu en í U21 landsliðinu er að koma upp spennandi miðvarðapar, tveir leikmenn sem hafa tekið stór skref á skömmum tíma.

Davíð Helgi Aronsson og Júlíus Mar Júlíusson spiluðu saman með U21-landsliðinu bæði gegn Frakklandi og Sviss og gætu verið tveir af þeim leikmönnum sem Arnar Gunnlaugsson þarf að fylgjast sérstaklega með á næstu vikum og mánuðum.

Fyrir leik
Funheitur Daníel Guðjohnsen
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Daníel Tristan Guðjohnsen í undankeppninni fyrir Evrópumót U21 landsliða 2027.

Daníel Tristan er búinn að gera sér lítið fyrir og skora sex mörk í fjórum leikjum.

Þrjú af þessum mörkum hafa komið í tveimur leikjum í yfirstandandi verkefni; eitt mark beint úr aukaspyrnu gegn Frakklandi og svo tvö gegn Sviss.


Fyrir leik
Þórsvöllur í Þórshöfn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikurinn fer fram á Þórsvelli í Gundadal í Þórshöfn, þjóðarleikvangi Færeyja.

Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hafa flugsamgöngur verið óstabílar til Færeyja vegna veðurskilyrða. Upphaflega átti íslenska liðið að fljúga á sunnudag en fluginu var frestað. Liðið kom loks til Þórshafnar í gær.
Fyrir leik
Dómararnir koma frá Möltu
Dómari: Matthew De Gabriele MLT
Aðstoðardómari 1: Jurgen Spiteri MLT
Aðstoðardómari 2: Mitchell Scerri MLT
Fjórði dómari: Fyodor Zammit MLT
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn!
Framundan hjá U21 landsliðinu er gríðarlega mikilvægur leikur við Færeyja um annað sæti riðilsins í undankeppni EM en hann á að fara fram á morgun. Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland í leik sem fram fer á sama tíma.

Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.

- Ef Ísland vinnur sinn leik endar Ísland með 18 stig.
- Ef Sviss vinnur sinn leik gegn Frakklandi endar Sviss með 20 stig og endar í 2. sæti.
- Ef Sviss gerir jafntefli og Ísland vinnur enda bæði lið með 18 stig. Þá endar Ísland í 2. sæti og kemst í umspil því Ísland hafði betur í innbyrðis viðureignum gegn Sviss (sigur og jafntefli).

Mynd: Fótbolti.net

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.