Fyrir leik
Brekka fyrir Val
Fyrir leik
Fram með öruggt sæti á næsta ári í Bestu Deildinni
Fram sigraði Þór/KA 2–1 á útivelli í síðasta leik liðanna. Með sigrinum tryggði Fram sér áframhaldandi sæti í deildinni og situr nú í efsta sæti neðri hlutans með 26 stig.
Fram komst snemma yfir þegar Sara Svanhildur og Young skoruðu mörk liðsins. Margrét Árnadóttir, leikmaður Þór/KA, minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 36. mínútu, en lengra komust heimakonur ekki.

Alda Ólafs og Hamlett hafa verið afar öflugar saman sem fremstu sóknarmenn liðsins. Alda hefur skorað 11 mörk í sumar og Hamlett 12, eða samtals 23 mörk. Til samanburðar hefur Fram skorað 32 mörk í deildinni í heild. Það má segja að samstarf þeirra sé afar mikilvægt og hafi verið einn af lykilþáttunum í góðu gengi Fram að undanförnu.

Þriðja liðið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson dæmir leikinn. Kristofer Bergmann og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage eru með flöggin. Brynjar Þór Elvarsson verður með skiltið.

Fyrir leik
Besta Heilsar!
Það er komið að síðustu umferð neðri hluta Bestu Deildar kvenna. Fram tekur á móti Val á Lambhagavellinum.

Valur situr á botni neðri hluta Bestu deildarinnar með 21 stig. Þær þurfa sigur í dag til þess að halda í vonina um að halda sér í deild þeirra bestu, en sigur einn og sér dugar ekki. Víkingur fær Þór/KA í heimsókn og eru bæði liðin með 22 stig. Valur þarf því að treysta á jafntefli í þeim leik.
Þetta er ansi brött brekka fyrir Val, en maður hefur nú séð svona „miracle“ áður.
Valur hefur aðeins skorað eitt mark í neðri hlutanum og kom það gegn Víkingi í síðasta leik, þegar Emma Hawkins skoraði. Hawkins kom til Vals í sumarglugganum og hefur hún skorað fjögur mörk í sumar. Tvö gegn Grindavík/Njarðvík og eitt annað mark gegn Víkingi fyrr í sumar.
Hún hefur því verið mikilvægur hlekkur í sóknarleik Vals í sumar og verður án efa horft til hennar þegar liðið leitar að mörkum í dag.