SKÝRSLAN: Þrátt fyrir sigur, þá var það ekki nóg
Hvað réði úrslitum?
Það sást strax í leiknum hvort liðið þurfti að vinna og hvort liðið var þægilegra. Valur var betra liðið allan leikinn og stjórnaði honum að mestu. Bestu kaflar Fram komu fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik og svo aftur síðustu tíu mínúturnar. Það eina sem vantaði hjá Val var síðasta ákvarðanatakan. Þegar tækifæri gafst til að senda leikmann í gegn hikuðu leikmenn Vals of oft og enduðu í mörgum tilfellum á því að missa boltann frá sér og þannig skapaðist ekki mikið af dauðafærum.
Þú getur ekki spilað vel í einum leik heldur þarftu að spila vel í öllum leikjum og þetta var ekki nóg hjá Val.
Þú getur ekki spilað vel í einum leik heldur þarftu að spila vel í öllum leikjum og þetta var ekki nóg hjá Val.
Bestu leikmenn
1. Margrét Brynja Kristinsdóttir (Valur)
Hún var mjög góð í dagm, var allt í öllu. Hún sýndi mikla orku, lagði sig alltaf fram og var hættuleg á kantinum. Varnarmenn Fram áttu erfitt með að ráða við hana. Við sendum henni batakveðjur, en hún þurfti að fara með sjúkrabíl af vellinum eftir að hafa meiðst.
2. Lillý Rut Hlynsdóttir (Valur)
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig klaufalegt mark, sem var ekki henni að kenna, hélt hún áfram að leggja sig alla fram. Hún skallaði flesta bolta frá og stóð vaktina vel. Fram fékk engin almennileg færi fyrir utan eitt, sem þær skoruðu úr.
Atvikið
Þegar fyrsta mark Hawkins kom hélt Valur að þær væru að halda sér uppi og mikil fagnaðarlæti brutust út. Markið gaf leiknum meira líf. Valur hætti aldrei að sækja og hélt áfram að leita að öðru marki.
Hvað þýða úrslitin?
Valur fellur niður í Lengjudeildina á meðan Fram heldur sæti sínu í Bestu deildinni.
Vondur dagur
Ashley Orkus í marki Fram var tæp í dag. Seinna markið leit ekki vel út og hún var oft á tíðum að missa boltann frá sér þegar hún átti að grípa hann. Harpa mun líklega ekki vera sátt við sinn þátt í fyrsta markinu, en hún gaf Hawkins markið nánast á silfurfati með mjög slakri sendingu til baka.
Dómarinn - 5
Það er erfitt að segja. Valur vildi fá að minnsta kosti þrjú víti, en öll atvikin voru mjög tæp og erfitt að segja um þau. Sumir dómarar hefðu líklega dæmt víti, en ég held að Valur sé ekki að kvarta núna. Fyrir utan það þá fannst mér dómarinn sleppa nokkrum gulum spjöldum hér og þar.




