Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM umspil kvenna
Stadion Aldo Drosina
Króatía
Króatía
0 - 0
Ísland
Ísland
Dómari: Frida Klarlund (DEN)
Fyrir leik
Spilað í Pula
Leikurinn fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula, heimavelli NK Istra 1961. Stadion Aldo Drosina er flottur fótboltaleikvangur sem tekur um 10.000 áhorfendur í sæti og er nefndur eftir Aldo Drosina, fyrrum leikmanni og þjálfara frá Pula.

Leikvangurinn tilheyrir NK Istra 1961, sem leikur í efstu deild Króatíu.

Þar eru íslenskar tengingar því Danijel Dejan Djuric og Logi Hrafn Róbertsson hafa báðir klæðst treyju Istra. Báðir fóru þeir til Istra í fyrra en eru komnir annað núna eftir að hafa fengið fá tækifæri í króatíska fótboltanum. Danijel fór í KA og Logi er í dag leikmaður Varnamo í Svíþjóð.

Nú mætir íslenska landsliðið á völlinn og eru okkar stelpur í leit að góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Króatíu heima á Laugardalsvelli.

Fótbolti.net er í Króatíu og tók meðfylgjandi myndir af vellinum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Hvernig virkar þetta umspil fyrir HM?
Þetta er fyrra einvígið af tveimur sem Ísland þarf að komast í gegnum til að komast á HM í fyrsta sinn.

Voru nálægt því síðast
Ísland var mjög nálægt því að komast á HM fyrir fjórum árum síðan. Þá var liðið hársbreidd frá því að vinna riðil sinn í undankeppninni en endaði tveimur stigum á eftir Hollandi.

Ísland og Holland mættust í Utrecht í lokaleik riðilsins og dugði Íslandi jafntefli. Sandra Sigurðardóttir átti þá leik lífs síns í marki Íslands en það dugði ekki til því Esmee Brugts, sem spilar í dag fyrir Barcelona, gerði sigurmarkið undir blálokin.

Því þurfti Ísland að fara í umspil. Fyrirkomulagið á því var skrítið þar sem um var að ræða bara einn úrslitaleik og var dregið um hvar hann var. Ísland dróst gegn Portúgal á útivelli og tapaði þeim leik í framlengingu.

„Hann hefur setið svolítið lengi í manni þessi leikur á móti Portúgal þegar við vorum seinast í gríðarlega góðum séns. Það er rosalega gott að vera komin aftur í umspil um að komast á HM og eiga séns aftur. Ég er gríðarlega spennt að taka þátt í þessu verkefni og fyrsta skrefið er hér í Króatíu," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, við Fótbolta.net í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Svona virkar umspilið núna
Breytingar voru gerðar á fyrirkomulaginu fyrir þessa undankeppni. Leikið var í riðlum og voru þeir tengdir við Þjóðadeildina. Ísland er í A-deild Þjóðadeildarinnar og var því búið að tryggja sér sæti í umspili áður en undankeppnin hófst.

Ísland var í riðli með Spáni, Englandi og Úkraínu í undankeppninni og endaði í þriðja sæti riðilsins með sex stig. Efsta liðið í hverjum riðli í A-deild komst beint inn á mótið en hin liðin í riðlinum fóru í umspil. Það var mikilvægt að enda í þriðja sæti riðilsins því þá myndum við fá lið úr C-deild í fyrra einvíginu og sleppa við lið úr A-deild í seinna einvíginu.

Ísland dróst gegn Króatíu, liði sem endaði í öðru sæti í sínum riðli í C-deild undankeppninnar, í fyrra einvíginu og það er bara einvígi sem við eigum að klára þægilega yfir tvo leiki. Króatía er í 63. sæti heimslistans og við erum í 17. sæti heimslistans.

Ef við komumst áfram, þá mætum við annað hvort Norður-Írlandi eða Portúgal í tveggja leikja einvígi um sæti á HM. Þetta er ekki bara einn úrslitaleikur eins og síðast. Portúgal er talsvert líklegra liðið fyrirfam í því einvígi.

Fyrri leikurinn gegn Króatíu er eins og áður segir á morgun og seinni leikurinn verður fjórum dögum síðar í Reykjavík. Seinna einvígið verður svo spilað um mánaðarmótin nóvember og desember. Þá ræðst hvaða lið komast úr umspilinu og inn á HM.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
GÓÐAN DAGINN!
Og verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Króatíu og Ísland í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM. Hér munum við fylgjast með öllum því sem gerist í leiknum sem fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula í Króatíu.

Endilega fylgist með!

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.