Leik lokið!
0-4 fyrir Ísland!
95. mín
Katla tók hornið, Glódís skallaði hann áfram og Arna heldur betur skorar af alvöru harðfylgi og hreinlega hleypur á boltann inn í baráttu við Bacic

MAAAARK!
Arna Eiríksdóttir (stoðsending: Glódís Perla Viggósdóttir)
Arna ætlar greinilega að sigra systur sína hér í kvöld!Katla tók hornið, Glódís skallaði hann áfram og Arna heldur betur skorar af alvöru harðfylgi og hreinlega hleypur á boltann inn í baráttu við Bacic

94. mín
Katla!
Fær frábæran bolta frá Glódísi og lætur vaða, fast niðri sem Bacic þarf að hafa sig alla við til að verja út fyrir endalínu horn!
91. mín
Hææææætttulegt!
Kukavica í Dauuuuuuðafæriiii en skýtur sem betur fer framhjá!
90. mín
A.m.k. 6 mínútum bætt við!
88. mín
Fínasta sókn hjá stelpunum, María gerir vel á kantinum, kemur boltanum fyrir, Ída María hittir hann ekki nægilega vel, Emilía þarf að teygja sig svo Bacic nær þessu
87. mín
InnLana Kukavica
Út Leonarda Balog
86. mín
Emilía að gera vel inn á miðjunni, reynir að finna ídu en boltinn berst hins vegar til Diljá sem á fyrirgjöf en þær ná að skalla þetta frá
84. mín
Frábær snúningur hjá Kötlu sem platar króata úr skónum! en aðeins of föst sending á Hlín sem nær ekki til boltans
80. mín
Cecilía og Glódís!!!!
Ana Maria Markovic er allt í einu sloppin ein í gegn, Cecilía kemur vel út á móti en boltinn til hliðar, Markovic keyrir á eftir boltanum en hver önnur en Glódís er þar mætt í HÖRKU tæklingu og kemur í veg fyrir mark!
79. mín
InnDiljá Ýr Zomers
ÚtSveindís Jane Jónsdóttir
76. mín
InnErika Zschuppe
ÚtMartina Cavar
76. mín
InnAna Maria Markovic
ÚtKarla Kurkutovic
76. mín
InnPetra Pezelj
ÚtLucia Orkic
76. mín
InnMaría Catharina Ólafsd. Gros
ÚtHafrún Rakel Halldórsdóttir
75. mín
Hlín gat auðvitað ekki verið minni en systir sín í dag! 2 mörk hjá systrunum

MAAAARK!
Hlín Eiríksdóttir (stoðsending: Emilía Kiær Ásgeirsdóttir)
Emilía gerir virkilega vel inn á miðjunni vinnur boltann og tekur hann með sér, finnur svo Hlín vinstra megin við sig sem lætur vaða í nær hornið!Hlín gat auðvitað ekki verið minni en systir sín í dag! 2 mörk hjá systrunum

74. mín
Sveindís Jane er rifin niður, aukaspyrna á fínum stað sem Katla lætur vaða á markið en það er hátt yfir
72. mín
Sveindís Jane með fyrirgjöf en þar er engin blá treyja, er svo með langt innkast sem veldur usla í teignum eins og alltaf
71. mín
Ída Marín fær að spreyta sig frammi, hún hefur yfirleitt verið í meira varnarhlutverki með landsliðinu en kominn tími til að hún fái að spreyta sig fram á við með landsliðinu
68. mín
InnÍda Marín Hermannsdóttir
ÚtThelma Karen Pálmadóttir
68. mín
InnKatla Tryggvadóttir
ÚtHildur Antonsdóttir
68. mín
InnEmilía Kiær Ásgeirsdóttir
ÚtKarólína Lea Vilhjálmsdóttir
67. mín
Föst spyrna hjá fyrirliðanum sem Bacic ver inn í fjærhornið 0-2!

Mark úr víti!
Glódís Perla Viggósdóttir
JÁ JÁ JÁ!Föst spyrna hjá fyrirliðanum sem Bacic ver inn í fjærhornið 0-2!

66. mín
VÍTI!!!!!
Glódís á punktinn
64. mín
ER þetta víti?!?!
Thelma Karen gerir vel, á frábæra fyrirgjöf sem þær skalla upp í loftið, þar fær Spajic boltann í HENDINA! það er verið að skoða í VAR!
62. mín
Barbara Zivkovic með fyrsta skotið á markið hreinlega en Ceilía á ekki í neinum vandræðum með það
61. mín
Króatarnir fá hornspyrnu, Kurkutovic með spyrnuna en Glósdís Perla skallar þetta frá
60. mín
Sveindís er staðin upp og bíður eftir að komast aftur inn á
58. mín
Vunic tæklar Sveindísi sem lendir illa á öxlinni, þetta lítur ekki vel út, en vonandi ekkert alvarlegt samt
57. mín
Balog stígur á Hildi, aukaspyrna sem Karólína setur á fjærstöngina, þar er Glódís mætt en nær ekki krafti í skallann og Bacic grípur þetta
54. mín
Hafrún gerir vel, truflar Kurkutovic og nælir innkast
53. mín
Skemmtileg staðreynd
Markmaður Króata hún Doris Bacic spilaði 16 leiki í 2. deildinni með Einherja árið 2017 og fór þaðan beint til Anderlecht í Belgíu, líklega fáir leikmenn sem taka svona stórt stökk úr 2. deildinni! Hún hefur svo einnig spilað með Juvenus á Ítalíu
50. mín
Sveindís með langt innkast, Glódís nær að flikka honum aftur fyrir sig en beint í hendurnar á Bacic í þetta skiptið
47. mín
Karólína Lea á skalla rétt fram hjá, Króatar ósáttar með Örnu Eiríks sem gerði nákvæmlega ekkert af sér... var fyrst í boltann
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Heimakonur sparka þessu af stað
45. mín
Tölfræðin úr fyrri hálfleik
Marktilraunir: 2-9
Á markið: 0-2
Í stöng eða slá: 0-1
Hornspyrnur: 2-5
Á markið: 0-2
Í stöng eða slá: 0-1
Hornspyrnur: 2-5
45. mín
Hálfleikur
Ísland leiðir 1-0 í hálfleik, sanngjörn staða og við ættum að vera búin að skora meira.
45. mín
Einni mínútu bætt við fyrri hálfleik
43. mín
Smá pressa frá Króötunum núna. ,,Við verðum að halda áfram," segir Steini. Boltinn kemur inn á teiginn hjá okkur og Guðrún missir hann yfir sig en Glódís hreinsar frá.
41. mín
Ég hélt að Ísland væri að fá víti en það er dæmd rangstaða í staðinn.
39. mín
Þetta var geggjaður spilkafli hjá Íslandi, meira svona!
38. mín
Stöngin!
Hrikalega flott spil hjá íslenska liðinu endar með því að Karólína er komin í góða stöðu hægra megin í teignum. Hún reynir skot eða fyrirgjöf, annað hvort, sem fer í stöngina.
35. mín
Skapast smá hætta eftir seinni hornspyrnuna en þær setja boltann yfir á nærstönginni. Klappað í stúkunni.
34. mín
Langur bolti inn á teiginn sem Hildur dílar við, en hún setur boltann aftur fyrir endamörk og önnur hornspyrna.
33. mín
Jæja, þá fær Króatía hornspyrnu. Ná þær að gera eitthvað við þetta?
31. mín
Sveindís með enn eitt langa innkastið en brot dæmt í teignum.
30. mín
Króatíska liðið er í þessum frægu köðlum.
30. mín
Glódís!
Karólína með hornspyrnu á nærstöngina og þar kemur Glódís á mikilli ferð, en skalli hennar fer rétt fram hjá markinu!
29. mín
Sveindís vinnur skallaboltann á teignum en Karólína rétt missir af boltanum.
28. mín
Mark Íslands
Þetta er fyrsta landsliðsmark Örnu.
27. mín
Thelma Karen fer illa með varnarmenn Króatíu en sendingin er alltof föst.
26. mín
Aftur Hlín!
Núna er hún í fínu færi í teignum, en hittir boltann ekki vel og setur hann yfir. Það væri gaman ef hún nær að skora eins og yngri systir sín.
26. mín
Miðað við hvernig leikurinn er að spilast er bara tímarspursmál hvenær Ísland bætir við.
25. mín
Hann kom á fjær!
Hornspyrnan kemur á fjær og þar er stórhætta! En Hlín nær ekki að stýra boltanum á markið.
25. mín
Ísland fær hornspyrnu og svo aðra hornspyrnu. Amir Mehica, markvarðarþjálfari landsliðsins, kallar fyrirmæli inn á völlinn. ,,Fjær, fjær," segir hann við Guðrúnu Arnardóttur.
24. mín
Hlín!
Hin systirin að hóta. Sending í gegn og Hlín kemst fram hjá markverðinum en er í þröngri stöðu. Hún reynir að koma boltanum á markið en hann fer í leikmann Króatíu.
23. mín
Karólína tekur aukaspyrnuna en hún fer beint í hendurnar á Bacic.
22. mín
Gult spjald
Barbara Zivkovic
Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika.19. mín
Sveindís vinnur boltann hátt á vellinum og keyrir af stað, lítur svo yfir þar sem Thelma Karen er í góðri stöðu. Sendingin er góð en leikmaður Króatíu kemst rétt inn í hana og bjargar fyrir þær.
19. mín
Fólkið er mikið að reykja í stúkunni hér í Pula.
18. mín
Gott að ná þessu marki inn svona snemma, nú verðum við bara að halda áfram!
16. mín
Hættulegt!
Annað langt innkast, skallað áfram inn á teignum og Alexandra í góðu færi en skallar fram hjá! Þessi löngu innköst Sveindísar eru að skapa stórhættu.
14. mín
Arna kom Íslandi yfir!

13. mín
Sveindís tekur langt innkast inn á teiginn sem Glódís skallar áfram á Örnu Eiríks sem stýrir honum í netið.
Þetta var laglegt!
MARK!!!!!!
Arna Eiríksdóttir
Ísland er komið yfir!!Sveindís tekur langt innkast inn á teiginn sem Glódís skallar áfram á Örnu Eiríks sem stýrir honum í netið.
Þetta var laglegt!
10. mín
Sveindís komin í ágætis stöðu til að keyra á vörnina en nær ekki að temja boltann.
9. mín
Karólína með skot fyrir utan teig sem Bacic í marki Króatíu ver þægilega.
9. mín
Hornspyrnan fer í gegnum allan pakkann. Sókn Ísland heldur aðeins áfram en Króatar koma boltanum svo frá.
8. mín
Ísland fær fyrstu hornspyrnu leiksins. Karólína Lea tekur hana.
7. mín
Formaðurinn og framkvæmdastjórinn mættir
Sitja í heiðursstúkunni.

5. mín
Áhugaverð útfærsla í sóknaruppbyggingu hjá íslenska liðinu, ekki eitthvað sem við höfum séð mikið áður. Arna Eiríks, sem er hægri bakvörður, dregur sig inn og Hafrún Rakel, sem er vinstri bakvörður, fer ofar á völlinn og dregur sig þar inn.
Verður eins konar 3-2-4-1 í sóknaruppbyggingu sem er skemmtilegt.
Verður eins konar 3-2-4-1 í sóknaruppbyggingu sem er skemmtilegt.
2. mín
Markvörður Króatíu með hræðilega markspyrnu beint á Thelmu en hún nær ekki að taka nægilega vel á móti boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
Farið af stað! ÁFRAM ÍSLAND!
Fyrir leik
Það er svona smá Covid stemning hérna. Það mun heyrast allt sem leikmenn segja inn á vellinum því það eru svo fáir í stúkunni.
Fyrir leik
Þjóðsöngvar að baki og leikurinn fer að hefjast. Það er kviknað í einhverju hérna nálægt, mikill reykur og heyrist vel í slökkviliðsbílum.
Fyrir leik
Liðin hafa núna lokið upphitun og eru farin inn í klefa. Það styttist í þetta!
Fyrir leik
Króatarnir eru búnir að spila sama lagið aftur, aftur og aftur í hátalarkerfinu. Stuð.
Fyrir leik
Við eigum að klára þetta
Fyrirfram er búist við mjög þægilegum sigri Íslands í dag þar sem við Íslendingar erum langt fyrir ofan Króatíu á heimslistanum. Þetta á í raun að vera skyldusigur fyrir okkar stelpur.

Fyrir leik
Hitinn er um 20 gráður í Pula, sem er góð tilbreyting frá íslenska haustinu. Aðstæður eru bara sem bestar, það er sól á lofti og völlurinn lítur ágætlega út. Dómari hér í dag er Frida Klarlund frá Danmörku en hún þykir nokkuð öflugur dómari. Hér á Stadion Aldo Drosina er verið að spila króatíska þjóðlagatónlist fyrir leik. Mikil stemning.

Fyrir leik
Systur byrja fyrir Ísland
Frá líklegu byrjunarliði Fótbolta.net í gær er ein breyting.

Frá líklega byrjunarliðinu sem kemur Hafrún Rakel Halldórsdóttir inn í vinstri bakvörðinn.
Það er athyglisvert að systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur byrja báðar fyrir Ísland í þessum leik.
Linda Líf Boama, Sandra María Jessen og Sædís Rún Heiðarsdóttir eru allar á meiðslalistanum og þá á Ingibjörg Sigurðardóttir von á sínu fyrsta barni. Þær eru því ekki með í þessu verkefni.

BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS

Fyrir leik
Svona er staðan á stelpunum okkar
Fyrir leik
Viðtöl fyrir leik
Fyrir leik
Spilað í Pula
Leikurinn fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula, heimavelli NK Istra 1961. Stadion Aldo Drosina er flottur fótboltaleikvangur sem tekur um 10.000 áhorfendur í sæti og er nefndur eftir Aldo Drosina, fyrrum leikmanni og þjálfara frá Pula.
Leikvangurinn tilheyrir NK Istra 1961, sem leikur í efstu deild Króatíu.
Þar eru íslenskar tengingar því Danijel Dejan Djuric og Logi Hrafn Róbertsson hafa báðir klæðst treyju Istra. Báðir fóru þeir til Istra í fyrra en eru komnir annað núna eftir að hafa fengið fá tækifæri í króatíska fótboltanum. Danijel fór í KA og Logi er í dag leikmaður Varnamo í Svíþjóð.
Nú mætir íslenska landsliðið á völlinn og eru okkar stelpur í leit að góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Króatíu heima á Laugardalsvelli.
Fótbolti.net er í Króatíu og tók meðfylgjandi myndir af vellinum í gær.

Hvernig virkar þetta umspil fyrir HM?
Þetta er fyrra einvígið af tveimur sem Ísland þarf að komast í gegnum til að komast á HM í fyrsta sinn.
Voru nálægt því síðast
Ísland var mjög nálægt því að komast á HM fyrir fjórum árum síðan. Þá var liðið hársbreidd frá því að vinna riðil sinn í undankeppninni en endaði tveimur stigum á eftir Hollandi.
Ísland og Holland mættust í Utrecht í lokaleik riðilsins og dugði Íslandi jafntefli. Sandra Sigurðardóttir átti þá leik lífs síns í marki Íslands en það dugði ekki til því Esmee Brugts, sem spilar í dag fyrir Barcelona, gerði sigurmarkið undir blálokin.
Því þurfti Ísland að fara í umspil. Fyrirkomulagið á því var skrítið þar sem um var að ræða bara einn úrslitaleik og var dregið um hvar hann var. Ísland dróst gegn Portúgal á útivelli og tapaði þeim leik í framlengingu.
„Hann hefur setið svolítið lengi í manni þessi leikur á móti Portúgal þegar við vorum seinast í gríðarlega góðum séns. Það er rosalega gott að vera komin aftur í umspil um að komast á HM og eiga séns aftur. Ég er gríðarlega spennt að taka þátt í þessu verkefni og fyrsta skrefið er hér í Króatíu," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, við Fótbolta.net í dag.

Svona virkar umspilið núna
Breytingar voru gerðar á fyrirkomulaginu fyrir þessa undankeppni. Leikið var í riðlum og voru þeir tengdir við Þjóðadeildina. Ísland er í A-deild Þjóðadeildarinnar og var því búið að tryggja sér sæti í umspili áður en undankeppnin hófst.
Ísland var í riðli með Spáni, Englandi og Úkraínu í undankeppninni og endaði í þriðja sæti riðilsins með sex stig. Efsta liðið í hverjum riðli í A-deild komst beint inn á mótið en hin liðin í riðlinum fóru í umspil. Það var mikilvægt að enda í þriðja sæti riðilsins því þá myndum við fá lið úr C-deild í fyrra einvíginu og sleppa við lið úr A-deild í seinna einvíginu.
Ísland dróst gegn Króatíu, liði sem endaði í öðru sæti í sínum riðli í C-deild undankeppninnar, í fyrra einvíginu og það er bara einvígi sem við eigum að klára þægilega yfir tvo leiki. Króatía er í 63. sæti heimslistans og við erum í 17. sæti heimslistans.
Ef við komumst áfram, þá mætum við annað hvort Norður-Írlandi eða Portúgal í tveggja leikja einvígi um sæti á HM. Þetta er ekki bara einn úrslitaleikur eins og síðast. Portúgal er talsvert líklegra liðið fyrirfam í því einvígi.
Fyrri leikurinn gegn Króatíu er eins og áður segir á morgun og seinni leikurinn verður fjórum dögum síðar í Reykjavík. Seinna einvígið verður svo spilað um mánaðarmótin nóvember og desember. Þá ræðst hvaða lið komast úr umspilinu og inn á HM.

GÓÐAN DAGINN!
Og verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Króatíu og Ísland í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM. Hér munum við fylgjast með öllum því sem gerist í leiknum sem fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula í Króatíu.
Endilega fylgist með!

Endilega fylgist með!

Hvet alla til að kaupa sér miða á völlinn og styðja við stelpurnar okkar!
Annars er okkar allra besti Gummi á vellinum í Pula svo einkunnir og viðtöl koma inn von bráðar.