Leik lokið!
5-0 sigur Íslands staðreynd
90. mín
5-0, samtals 9-0!
HVAR ENDAR ÞETTA
Diljá Ýr Zomers (stoðsending: Birta Georgsdóttir)
Gæti næstum því gert CTRL C + CTRL V. En nú var það Birta sem fann Diljá á fjærstönginni og kláraði í autt markið.5-0, samtals 9-0!
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
InnPetra Pezelj
ÚtKarla Kurkutovic
88. mín
Líf sem er nýkomin inná finnur Diljá á fjærstönginni sem klárar í autt markið, flaggið strax á loft en er svo á endanum snúið við.
VAR DÆMIR MARK
Diljá Ýr Zomers (stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel)
Mjög spes. Leikurinn farinn af stað aftur þegar Spánverjinn stoppar leikinn og lætur vita að VAR-dómararnir séu að líta á markið og loks bendir hún á miðjupunktinn.Líf sem er nýkomin inná finnur Diljá á fjærstönginni sem klárar í autt markið, flaggið strax á loft en er svo á endanum snúið við.
87. mín
Diljá kemur boltanum í netið en rangstaða dæmd.
80. mín
InnLíf Joostdóttir van Bemmel
ÚtArna Eiríksdóttir
Nýliðaskiptingar
Og einnig fyrsti A-landsleikur Lífar!
80. mín
InnEmelía Óskarsdóttir
ÚtSveindís Jane Jónsdóttir
Fyrsti A-landsleikur Emelíu!
76. mín
Stórhættuleg sókn Íslands gestirnir eiga í basli með að koma frá. Þær koma boltanum á endanum úr teignum en þar bíður Karólína en skot hennar hátt yfir markið.
74. mín
InnDiljá Ýr Zomers
ÚtHlín Eiríksdóttir
Allir markaskorararnir farnir af velli.
68. mín
Glódís með hörkuskot en Doris ver. Emilía hársbreidd frá því að ná frákastinu en Króatar hreinsa í innkast.
66. mín
Birta gerir mjög vel og er kominn upp að endalínu. Hún gefur boltann svo út í teiginn á Karólínu en skotið rétt framhjá.
65. mín
InnAna Bakalar
ÚtTea Krznaric
Tea liggur eftir og er borin út á börum. Lítur ekki vel út.
63. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtÍda Marín Hermannsdóttir
Tvöföld breyting
Tveir af þremur markaskorurum fá heiðursskiptingu og stúkan tekur við sér.
Þeirra fyrstu landsliðsmörk!
Þeirra fyrstu landsliðsmörk!
63. mín
InnEmilía Kiær Ásgeirsdóttir
ÚtKatla Tryggvadóttir
56. mín
Frábær einna snertinga fótbolti sprengir upp vörn gestanna og boltinn endar í netinu. 3-0!
MAAARKKKKK
Katla Tryggvadóttir (stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir)
Hlín vinnur boltann eftir misheppnaða sendingu Doris í uppspilinu. Hún er fljót að koma honum á Sveindísi sem kemur boltanum í fyrsta á Kötlu sem rennir boltanum á milli fóta Doris og skorar sitt fyrsta landsliðsmark.Frábær einna snertinga fótbolti sprengir upp vörn gestanna og boltinn endar í netinu. 3-0!
56. mín







Smá myndaveisla








55. mín
InnAna Maria Markovic
ÚtBarbara Zivkovic
Þreföld breyting
55. mín
InnErika Zschuppe
ÚtMartina Cavar
55. mín
InnTea Vracevic
ÚtHelena Spajic
51. mín
Katla með góða sendingu inn fyrir á Sveindísi en sending hennar fyrir markið beint á Króata sem hreinsar frá.
47. mín
Sveindís kemst inn í sendingu Króata og tekur á rás inn í teiginn og hristir Króata varnarmann frá sér í leiðinni en skotið beint á Doris sem ver í horn.
46. mín
Farið af stað að nýju
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks
Skot
Ísland 13-0 Króatía
Skot á mark
Ísland 6-0 Króatía
Hornspyrnur
Ísland 7-0 Króatía
Ísland 13-0 Króatía
Skot á mark
Ísland 6-0 Króatía
Hornspyrnur
Ísland 7-0 Króatía
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við
Spánverjinn flautar til hálfleiks hér. Afar sannfærandi fyrri hálfleikur að baki. Króatar hafa ekki komist í færi og hafa varla náð að tengja saman sendingar. Forystan gæti hæglega verið stærri.
Tökum okkur korter.
Tökum okkur korter.
42. mín
Ída tekur hann á lofti í fyrsta fyrir utan teig og en boltinn beint á Doris sem ver.
Alvöru skotkraftur sem Ída ber yfir.
Alvöru skotkraftur sem Ída ber yfir.
40. mín
Hörkuskot og Ída tvöfaldar forystuna með sínu fyrsta landsliðsmarki.
STÍFLAN ER BROSTIN
Ída Marín Hermannsdóttir (stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir)
Arna gerir vel og sér til þess að boltinn berst á Sveindísi. Hún tekur þríhyrning með Ídu og er komin í gegn. Sveindís leggur hann svo aftur út á Ídu sem er inn í teignum. Ída hamrar boltanum á markið í fyrsta, rétt fyrir ofan Doris sem nær ekki að bregðast nægilega hratt við.Hörkuskot og Ída tvöfaldar forystuna með sínu fyrsta landsliðsmarki.
35. mín
Ída fær boltann við D-bogann frá Örnu og kemur með snyrtilega vipp-sendingu inn fyrir á Hlín sem tekur eina snertingu og rúllar svo boltanum hnitmiðað framhjá Doris.
1-0! Eða ætti maður að segja 5-0?
MAAARKKKKK
Hlín Eiríksdóttir (stoðsending: Ída Marín Hermannsdóttir)
Hlaut að koma að því!Ída fær boltann við D-bogann frá Örnu og kemur með snyrtilega vipp-sendingu inn fyrir á Hlín sem tekur eina snertingu og rúllar svo boltanum hnitmiðað framhjá Doris.
1-0! Eða ætti maður að segja 5-0?
34. mín
Íslenska liðið reynir hornspyrnuútfærslu af æfingasvæðinu en Króatar koma boltanum frá.
32. mín
Þær Króatísku þora ekki að halda í boltann, eru byrjaðar að sparka boltanum aftur til Fanneyjar þegar þær fá hann. Annars ná þær í mesta lagi 2-3 sendingum áður en Íslenska pressan vinnur boltann að nýju.
29. mín
Karólína og Ída leysa vel úr pressu við hornfánann og vinna á endanum horn.
Boltinn á fjærstöngina þar sem Alexandra skallar í Króata. Boltinn endar hjá Daris í markinu.
Boltinn á fjærstöngina þar sem Alexandra skallar í Króata. Boltinn endar hjá Daris í markinu.
25. mín
Hafrún Rakel Halldórsdóttir

24. mín
Alexandra vinnur boltann með flottri tæklingu. Boltinn berst til Karólínu sem hefur pláss og nægan tíma til þess að hlaða í hörkuskot fyrir utan teig. Skotið rétt yfir markið, Doris ekki nálægt honum.
20. mín
Hafrún dansar við vítateigshornið og lætur svo vaða en boltinn rétt framhjá nærstönginni.
19. mín
Langt innkast Sveindísar verður að hornspyrnu, Karólína stillir sér upp.
Enginn nær að koma hausnum í boltann en sóknin heldur áfram.
Enginn nær að koma hausnum í boltann en sóknin heldur áfram.
16. mín
Karólína fær boltann inn í teignum frá Sveindísi og leikur frábærlega á tvo varnarmenn. Hún ætlaði leggja hann í fjærhornið en skotið örfáum sentimetrum framhjá.
15. mín
Góð sending til hægri á Karólínu sem leggur hann á Sveindísi en skotið í Króata.
Færi eftir færi þessar mínúturnar. Það liggur mark í loftinu.
Færi eftir færi þessar mínúturnar. Það liggur mark í loftinu.
14. mín
Ísland ógnar stöðugt
Frábær sending yfir línunna á Sveindísi sem hleður í skot. Doris ver en missir boltann óþægilega frá sér en nær að handsama hann á endanum.
13. mín
Sveindís með góða fyrirgjöf á Hlín en skallinn beint á Doris.
12. mín
DAUÐAFÆRI
Hlín með sendingu inn fyrir á Ídu sem þarf að hafa fyrir því að ná boltanum. Ída er frekari og nær skoti úr dauðafæri en boltinn yfir markið.
10. mín
Aftur ná Karólína og Sveindís vel saman. Karólína finnur Sveindísi í svæði en sending Sveindísar inn í teiginn ónákvæm.
5. mín
VARSLA
Karólína með annan stórhættulegan bolta inn á teiginn, nú á fjærstöngina. Þar lúrir Glódís sem nær skallanum en Doris Bacic blakar honum yfir markið. Mjög sterk varsla.
Ekkert kom úr næsta horni.
Ekkert kom úr næsta horni.
4. mín
Króatar í basli í uppspilinu og Ísland fær innkast. Sveindís tekur að sjálfsögðu langt innkast inn í teiginn sem er hreinsað í horn...
3. mín
Hættulegur bolti inn á teiginn en enginn ræðst á boltann og hann skoppar út úr teignum hinum megin frá.
2. mín
Karólína með góðan bolta inn fyrir á Sveindísi. Króatar bjarga í horn.
1. mín
Farið af stað!
Karólína Lea sparkar leiknum af stað.
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir
Þjóðsöngvar landanna hafa verið spilaðir og sungnir. Nú er ekkert eftir annað en að hefja leik!


Fyrir leik
Glódís heiðruð
150. landsleikur Glódísar og stúkan tekur við sér. Magnaður áfangi frá mögnuðum leikmanni.
Fyrir leik


Myndir úr upphitun



Fyrir leik
Byrjunarliðið
Þorsteinn gerir þrjár breytingar frá fyrri leiknum. Fanney Inga Birkisdóttir, Katla Tryggvadóttir og Ída Marín Hermansdóttir koma inn í liðið í stað Cecilíu Ránar Rúnarsdóttur, Hildar Antonsdóttur og Thelmu Karenar Pálmadóttur sem verða á bekknum.


Fyrir leik
Sterk Íslandstenging í Króatíska liðinu
Doris Bacic, markvörður Króata, var valin í lið ársins í 2. deildinni á Íslandi árið 2017 þegar hún spilaði fyrir Einherja. Þaðan lá leiðinn meðal annars til Englands og Ítalíu.
Fyrir leik
Viðtöl fyrir leik
Fyrir leik
Glódís og Eiríksdættur stálu senunni
Fyrirliðinn og systurnar Hlín og Arna áttu frábæran leik í sigrunum í Króatíu.
Glódís skoraði af punktinum og var auk þess með tvær stoðsendingar í leiknum. Arna Eiríksdóttir skoraði tvö og systir hennar, Hlín Eiríksdóttir skoraði eitt.
Glódís skoraði af punktinum og var auk þess með tvær stoðsendingar í leiknum. Arna Eiríksdóttir skoraði tvö og systir hennar, Hlín Eiríksdóttir skoraði eitt.
Fyrir leik
Umspilið
Ísland, Króatía, Portúgal og Norður Írland. Eitt af þessum liðum keppir í lokakeppni HM í Brasilíu 2027. En Króatía og Norður Írland eiga lítinn séns þar sem bæði liðin töpuðu 4-0 á heimavelli í fyrri leik einvígisins.
Sigurvegarar einvíganna mætast svo í umspili um eitt laust sæti. Það er einnig tveggja leikja einvígi þar sem spilað verður á heimavelli og útivelli. Að öllum líkindum verður það Ísland gegn Portúgal.

Sigurvegarar einvíganna mætast svo í umspili um eitt laust sæti. Það er einnig tveggja leikja einvígi þar sem spilað verður á heimavelli og útivelli. Að öllum líkindum verður það Ísland gegn Portúgal.

Fyrir leik
Umspilið heldur áfram!
Verið velkomnir kæru lesendur í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Laugardalsvelli þar sem Ísland tekur á móti Króatíu. Leikurinn er seinni leikur fyrra einvígisins um laust sæti á HM sem haldið verður í Brasilíu næsta sumar.
Ísland sótti afar þægilegan 4-0 sigur til Pula í Króatíu á föstudaginn og fer því með gott forskot á Laugardalsvöll.

Ísland sótti afar þægilegan 4-0 sigur til Pula í Króatíu á föstudaginn og fer því með gott forskot á Laugardalsvöll.















Viðtöl og umfjallanir birtast seinna í kvöld. Ég þakka fyrir mig.