Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Besta kvenna - Efri hluti
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 4
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 119' Sæunn Björnsdóttir (víti)0 - 236' Sierra Marie Lelii0 - 390' Bríet Fjóla Bjarnadóttir0 - 493' Kayla Marie Rollins
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
+4
Þróttarar fara með sigur af hólmi. Virkilega sannfærandi sigur og Breiðablik með titilbaráttuna í sínum höndum.

Þróttur R.
93. mín
ÞÆR BÆTA BARA VIÐ!

Kayla Marie Rollins (stoðsending: Katherine Amanda Cousins)

Katie Cousins með magnaða sendingu í gegn á Kaylu. Katie fellur við í kjölfarið.

Kayla gerir virkilega vel, stingur Jónínu af, fer framhjá Aldísi og leggur boltann í autt markið.
Þróttur R.
90. mín
ÞRÓTTARAR ERU AÐ VALTA YFIR FH!

Bríet Fjóla Bjarnadóttir

Rollins er með boltann rétt fyrir utan vítateig heimakvenna. Hún missir boltann frá sér og boltinn dettur fyrir Bríeti Fjólu.

Bríet fer á hægri löppina og lætur vaða. Skotið er gott og það syngur í fjærhorninu.
88. mín
FH fær horn.

Þær taka þetta stutt og Hildur tekur síðan skot sem fer í varnarmann og afturfyrir.

Ekkert verður úr seinni hornspyrnunni.
Þróttur R.
85. mín
Gult spjald

Katherine Amanda Cousins

Stoppar skyndisókn.
Þróttur R.
83. mín
InnHekla Dögg Ingvarsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
FH
77. mín
InnEva Marín Sæþórsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
76. mín
Nia skallar boltann í gegn á Sæunni. Hún keyrir af stað og tekur skotið en það er afar slakt og Mollee ver auðveldlega.
Þróttur R.
76. mín
Gult spjald

Sæunn Björnsdóttir

75. mín
Hafrún fær boltann í ágætis stöðu en flaggið fer á loft.
74. mín
Ingibjörg reynir að þræða Niu í gegn en Mollee rýkur út úr markinu og er fyrri til í boltann.
Þróttur R.
71. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
Þróttur R.
71. mín
InnBjörgey Njála Andreudóttir
ÚtSierra Marie Lelii
71. mín
Björg æðir upp að endamörkum og kemur með fastan bolta fyrir en FH-ingar hreinsa frá.
FH
69. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
FH
69. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtHelena Maree Errington
62. mín
Ingibjörg er með boltann úti hægra megin. Hún leggur boltann út í teiginn en sendingin ratar ekki á samherja og Þróttarar hreinsa frá.
Þróttur R.
60. mín
Gult spjald

Unnur Dóra Bergsdóttir

Of sein í tæklinguna.
59. mín
Helena og Hafrún spila vel sín á milli og Hafrún fær boltann við endamörk. Hún kemur boltanum inn á teiginn en boltinn beint í hendurnar á Mollee.
FH
56. mín
InnHildur Katrín Snorradóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
FH
56. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
Þróttur R.
55. mín
InnMadison Jeanne Ditta
ÚtRósey Björgvinsdóttir
Jóhann gerir fyrstu breytingu leiksins.
48. mín
Thelma kemst upp að endamörkum og kemur með fastan bolta meðfram jörðinni inn á teiginn en Rósey nær að bægja hættunni frá.

Í kjölfarið tekur Deja skot rétt fyrir utan teig sem Mollee blakar yfir markið.

Ekkert verður úr hornspyrnunni.
46. mín
Við erum farin af stað á ný!
Gestirnir hefja seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
+1
Þróttarar leiða með tveimur mörkum í hálfleik.

FH-ingar hafa ógnað marki Þróttar nokkrum sinnum en boltinn vill ekki inn.

Þróttur hefur nýtt sín færi vel og leiðir nokkuð sanngjarnt í hálfleik
45. mín
Að minnsta kosti ein mínúta í uppbót.
43. mín
Nia lyftir boltanum í svæðið fyrir Ingibjörgu. Hún leggur boltann út í teiginn á Hrönn sem tekur skotið í fyrsta, en boltinn beint á Mollee í markinu.
41. mín
Thelma með fallega sendingu í gegn á Niu.

Nia fer inn á hægri löppina og reynir að smella boltanum í samskeytin, en boltinn fer rétt yfir slána
Þróttur R.
36. mín
ÞRÓTTARAR TVÖFALDA!

Sierra Marie Lelii (stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir)

Björg kemst upp að endamörkum og kemur boltanum fyrir á Sierra.

Sierra gerir virkilega vel með Jónínu í bakinu, nær að snúa hana af sér og kemur boltanum í netið.

Þróttur tvöfaldar forystuna og þetta lítur ekki vel út fyrir heimakonur í titilbaráttunni.
30. mín
Thelma Lóa skilur Rósey eftir í rykinu og æðir upp vinstri kantinn.

Hún finnur Niu í hlaupinu og Nia reynir að setja boltann á milli fóta Mollee en hún sér við henni.

FH að banka fast um þessar mundir.
27. mín
Unnur Dóra með skemmtilega tilraun við vítateigshornið en engin alvöru hætta í skotinu og markspyrna niðurstaðan.
24. mín
Nia kemst inn á vítateig gestanna og finnur Ingibjörgu. Hún nær að hleypa af en skotið yfir markið.
Þróttur R.
19. mín
ÖRUGGT VÍTI!

Sæunn Björnsdóttir

Frábær spyrna! Setur boltann í hægra hornið, Aldís fór í rétt horn en vítið lengst út við stöng

Þróttur leiðir!
19. mín
ÞRÓTTUR FÆR VÍTASPYRNU!
Virkilega furðulegur dómur. Thelma fer fyrst í boltann og tekur síðan Rósey niður.

Maður gat ekki séð betur en að þetta hafi verið fyrir utan teig. Stuðningsmenn FH öskureiðir með dóminn og ég skil það vel.
17. mín
Þróttarar fá sína fyrstu hornspyrnu.

Sæunn tekur hornið stutt en FH-ingar pressa vel og Þróttur fær innkast.
15. mín
Frábært færi!
Helena kemur með stórkostlega sendingu í svæðið fyrir Thelmu sem keyrir af stað.

Hún er aðeins of lengi að athafna sig og Mollee lokar á hana.
12. mín
Ingibjörg gerir vel og vinnur hornspyrnu fyrir FH.

Andrea kemur með boltann inn á teiginn en Katie Cousins skallar frá. Boltinn dettur fyrir Birnu sem tekur lúmskt skot en það fer rétt framhjá nærstönginni.
10. mín
Thelma kemst upp að endamörkum og kemur með boltann inn á teiginn en Jelena nær að hreinsa frá.
7. mín
FH fær aukaspyrnu á fínum stað.

Andrea lyftir boltanum inn á teiginn og Deja nær kröftugum skalla en hún nær ekki að stýra honum á markið.
5. mín
Þróttur fær fyrstu aukaspyrnu leiksins.

Boltinn kemur inn á teiginn og skoppar til Aldísar sem handsamar boltann.
2. mín
Cousins gerir vel á miðjunni og lætur síðan vaða en Aldís ver þægilega.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Heimakonur sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Allt að verða klárt!
Það eru tíu mínútur í að flautað verði til leiks. Liðin halda til búningsherbergja.
Fyrir leik
Katla spáir útisigri Þróttar
FH 2 - 3 Þróttur R.
Get ekki annað en spáð mínum konum í Þrótti sigurinn, FH eru búnar að vera flottar í sumar. Brynjar Sigþórs besti yngriflokkaþjálfari landsins að skila flottum stelpum upp í meistaraflokkinn. Þróttur vinnur 2-3, Sigga og Sierra setja eitt hvor allaveganna.

Fyrir leik
FH-ingar vilja að trúarleiðtogar fresti messum til að gera trúræknum stuðningsmönnum kleift að mæta á leikinn
FH-ingar vilja að trúarleiðtogar fresti messum og öðrum athöfnum til að gera trúræknum stuðningsmönnum kleift að mæta á Kaplakrika án þess að finna til sektarkenndar. Þá vilja þeir að bareigendur loki börunum snemma í kvöld til að forðast að stuðningsmenn mæti alltof ryðgaðir að styðja við FH í fyrramálið.

Fyrir leik
Spennan magnast í titilbaráttunni!
Það er mikil spenna í toppbaráttu Bestu deildar kvenna þar sem Breiðablik og FH berjast um Íslandsmeistaratitilinn.

FH er í 2. sæti með 43 stig en Breiðablik í 1. sæti með 46 stig. Markatala liðanna er mjög jöfn.

Ef FH mistekst að vinna Þrótt og Breiðablik vinnur Stjörnuna verða Blikar Íslandsmeistarar. Ef bæði lið vinna sína leiki ræðst Íslandsmeistaratitillinn hins vegar í hreinum úrslitaleik þann 23. október, þegar Breiðablik tekur á móti FH.

Fyrir leik
Þróttur
Þróttur heimsótti Breiðablik í síðustu umferð í ótrúlegum leik. Þróttarar voru þremur mörkum yfir í hálfleik en Blikar sneru leiknum við og unnu ótrúlegan 5-4 sigur. Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Sierra Marie Lelii voru báðar tvívegis á skotskónum fyrir Þrótt.

Þróttur er í 6. sæti og neðsta sæti efri hlutans með 26 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
FH fékk ÍBV í heimsókn í síðustu umferð. FH vann afar sannfærandi 5-0 sigur. Nia og Helena fóru á kostum í leiknum. Nia skoraði fjögur mörk og Helena lagði upp hvert einasta mark hennar. Helena skoraði einnig mark í leiknum.

FH er í 2. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Breiðabliki sem er með 46 stig.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Leiknum flýtt um þrjár klukkustundir
Búið er að flýta leik FH og Þróttar í Bestu deild kvenna um þrjár klukkustundir. Leikurinn mun hefjast 11:00 í stað 14:00 á sunnudag.

Fyrir leik
Arnar Ingi Ingvarsson dæmir leikinn
Arnar Ingi Ingvarsson er aðaldómari í dag. Honum til halds og traust eru Ingibjörg Garðarsdóttir Briem og Ásgeir Viktorsson.

Ásmundur Þór Sveinsson er fjórði dómari og Gunnar Helgason er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar!
Góðan dag lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kaplakrikavelli.

Í dag tekur FH á móti Þrótti í næst síðasta leik tímabilsins. Leikurinn hefst á slaginu 11:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.