Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta kvenna - Efri hluti
Eikarvöllurinn
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
FH
FH
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fyrir leik
Fyrri leikir liðanna
Liðin hafa mæst þrisvar á tímabilinu, Blikar hafa unnið tvo, og FH einn. Breiðablik, sem urðu Íslands -og Bikarmeistarar á síðasta tímabili urðu meistarar meistaranna í apríl með 3-1 sigri á FH sem fengu silfur í Bestu deildinni í fyrra.

FH sigraði svo 3-2 hér á Kópavogsvelli í 6. umferð deildarinnar áður en Breiðablik sótti 3-0 útisigur til Hafnarfjarðar í 15. umferð.



Fyrir leik
FH
FH mistókst að búa til úrslitaleik um titilinn í síðustu umferð þegar þær fengu 4-0 skell á heimavelli gegn bikarmeisturum Þróttar.

Hafnfirðingar hafa skipst á að vinna og tapa eftir skiptingu. Í síðustu umferðunum fyrir skiptingu voru þær heldur ekki sannfærandi en þá sóttu þær fjögur stig í síðustu fjórum leikjunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sterkum 1-0 útisigri á Stjörnunni í síðustu umferð. Skjöldurinn fer því á loft eftir leik í kvöld!

Annars hafa Blikar verið gríðarlega sannfærandi í efri hlutanum, þar hafa þær unnið alla leikina eftir að hafa klárað tímabilið fyrir skiptingu illa, með einu stigi í síðustu þremur leikjunum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna á Kópavogsvelli. Honum til aðstoðar verða þeir Breki Sigurðsson og Mikael Ívan Axelsson. Atli Björn Levy verður á milli skýlanna og Ólafur Ingi Guðmundsson verður dómarareftirlitsmaður kvöldsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Lokaumferðin
Deildin klárast í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 18:00.

23. október (18:00)
Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)
ÍBV - Stjarnan (Hásteinsvöllur)
Þróttur - Grindavík/Njarðvík (Pepsi - völlurinn)
Fyrir leik
Úrslitaleikurinn sem aldrei varð
Komiði sæl og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem verðandi Íslandsmeistarar Breiðablik, taka á móti FH. Flautað verður til leiks á slaginu 18:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.