Leik lokið!
Flugeldar fara á loft
90. mín
90+2
Eva Marín Sæþórsdóttir
Brýtur á Elínu við vítateig Blika. Algjör óþarfi90. mín
Tveimur mínútum bætt við
87. mín
Frábær afgreiðsla.
VÁ!
Hafrún Birna Helgadóttir
Hafrún fær boltann í kjölfar seinni hornspyrnunnar. Hún krullar boltann alveg upp í skeytin fjær. Enginn markmaður á möguleika í þennan.Frábær afgreiðsla.
86. mín
Helena með skot sem Aldís ver í horn.
86. mín
Aukaspyrna dæmd á hættulegum stað þegar brotið er á Freyju.
Helena og Hrönn standa yfir boltanum.
Helena og Hrönn standa yfir boltanum.
85. mín
FH kallar eftir víti þegar Unnur fellur innan teigs. Gunnar segir nei.
83. mín
InnKristín Vala Stefánsdóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Önnur heiðursskipting
Fimm marka konan tekin af velli og stúkan tekur við sér.
83. mín
InnAlma Rós Magnúsdóttir
ÚtSunna Rún Sigurðardóttir
80. mín
MAAARKKKKK
Bryndís Arna Níelsdóttir (stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel)
Líf með fasta fyrirgjöf, beint á kollinn á Bryndísi sem skallar boltann örugglega í netið.77. mín
Helena með pláss og keyrir í átt að teignum. En aftur er skotið beint á Herdísi.
76. mín
Helena með skot af löngu færi sem Herdís grípur.
75. mín
Blikar koma boltanum í netið eftir barning í teignum en rangstaða dæmd.
74. mín
Hornspyrnan aðeins of innarlega og endar á þaknetinu.
73. mín
InnEva Marín Sæþórsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
Tvöfaldar skiptingar
73. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
73. mín
InnKatelyn Duong
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
73. mín
InnÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
72. mín
Agla með hættulegan bolta inn í teig. FH nær á endanum að hreinsa burt. Blikar uppskera svo aðra hornspyrnu í kjölfarið.
70. mín
Edith í góðri stöðu inn í teig en skotið beint á Aldísi sem ver.
62. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
Heiðursskipting
Elísa tekin af velli í síðasta sinn á ferlinum og stúkan tekur við sér.
Hún leggur skóna á hilluna með 54 A-landsleiki á bakinu og yfir 400 meistaraflokksleiki. Mögnuð.
Hún leggur skóna á hilluna með 54 A-landsleiki á bakinu og yfir 400 meistaraflokksleiki. Mögnuð.
61. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
Tvöföld skipting
61. mín
InnHelena Maree Errington
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
57. mín
Fimm mörk komin frá Hrafnhildi Ásu.
FIMM
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Fyrirgjöf inn í teiginn. Aldís kemst í boltann en ver hann beint í Ásu og af henni hrekkur boltinn í netið.Fimm mörk komin frá Hrafnhildi Ásu.
55. mín
FH í skyndisókn þar sem Hrönn keyrir upp völlinn. Hún er með Niu við hlið sér gegn tveimur grænklæddum. Hrönn köttar inn á völlinn og kemur svo með gott skot í fjærhornið sem Herdís grípur í annarri tilraun.
54. mín
Gult spjald
Jónína Linnet
Brýtur á Ásu.52. mín
FH nær enn og aftur ekki að skapa sér neitt úr horninu en þær hafa byrjað síðari hálfleikinn töluvert betur en heimakonur.
51. mín
Hrönn tekur skotið við D-bogann sem fer af varnarmanni og rétt framhjá markinu.
49. mín
Nia með hörkuskot sem Herdís nær að slá yfir. Hornspyrna niðurstaðan.
Gestirnir ná ekki að skapa sér neitt úr því né í sókninni á eftir.
Gestirnir ná ekki að skapa sér neitt úr því né í sókninni á eftir.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Stórkostlegum fyrri hálfleik lokið
Þórdís með skot yfir markið úr horninu og þá blæs Gunnar í flautuna. Blikar hafa verið töluvert sterkari aðilinn í þessum fyrri hálfleik. Hrafnhildur Ása á samt allar sögulínur og það er spurning hvort mörkin verða fleiri frá henni í seinni hálfleik.
Tökum okkur korter.
Tökum okkur korter.
45. mín
+2
Sunna með gott skot af löngu færi og Herdís slær boltann í horn.
Úr horninu fá þær annað horn hinum megin frá eftir annað hörkuskot.
Úr horninu fá þær annað horn hinum megin frá eftir annað hörkuskot.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
44. mín
Frábært mark og gestirnir laga aðeins stöðuna.
FH minnkar muninn
Hrönn Haraldsdóttir
Hrönn fær boltann og keyrir sjálf á vörn Blika og klárar framhjá Herdísi.Frábært mark og gestirnir laga aðeins stöðuna.
42. mín
Ferna í fyrri hálfleik! Þetta hlýtur að vera eitthvað met.
Jæja hvað er í gangi?
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Ása gabbar Önnu upp úr skónum og kemur sér í skotfæri. Þá lætur hún vaða niður í vinstra hornið og boltinn syngur í netinu.Ferna í fyrri hálfleik! Þetta hlýtur að vera eitthvað met.
37. mín
Ótrúlegt skot og Ása kominn með þrennu. Gullskórinn verður hennar, það er orðið nokkuð ljóst.
ÞRENNA OG MAGNAÐ MARK
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel)
Blikar hefja sókn og Líf finnur Hrafnhildi sem tekur skotið lengst utan af velli. Skotið er fast og Aldís er aldrei nálægt boltanum.Ótrúlegt skot og Ása kominn með þrennu. Gullskórinn verður hennar, það er orðið nokkuð ljóst.
36. mín
Thelma með fast skot í markmannshornið. Herdís ver vel í hornspyrnu.
35. mín
Aukaspyrna
Það er brotið á Hildi alveg við vítateigslínuna og aukaspyrna dæmd.
Þetta er á stórhættulegum stað.
Þetta er á stórhættulegum stað.
34. mín
FH fær horn en engin raunveruleg hætta skapast. Markspyrna niðurstaðan.
28. mín
Agla hleður í skot af löngu færi en boltinn yfir markið.
26. mín
Leikurinn hefur róast mikið eftir seinna markið.
23. mín
Sending inn fyrir á Niu sem er fljótari en Elín í vörninni. Nia er á undan í boltann og ætlaði að pota honum framhjá Herdísi en snertingin er of þung og boltinn fer afturfyrir.
19. mín
Elísa að spila sinn síðasta leik
18. mín
Edith með frábæra fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Ása er óvölduð og tekur hann í fyrsta niður í hægra hornið. Óverjandi.
FORYSTAN TVÖFÖLDUÐ
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Edith Kristín Kristjánsdóttir)
Þvílík afgreiðsla.Edith með frábæra fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Ása er óvölduð og tekur hann í fyrsta niður í hægra hornið. Óverjandi.
16. mín
Líf í færi eftir góða fyrirgjöf frá Elísu. En yfir fór boltinn.
14. mín
Agla og Karitas í góðum færum stuttu eftir markið. Breiðablik gæti hæglega verið komið í tveggja marka forystu.
12. mín
Blikar komnir yfir eftir 12 mínútur.
MAAARKKKKK
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Þórdís Elva Ágústsdóttir)
Þórdís Elva með mikið pláss en hún er fljót að koma auga á Hrafnhildi ódekkaða sem tímasetur hlaupið fullkomlega. Hún tekur svo skotið fyrir utan teig í hægra hornið og Aldís kemur engum vörnum við. Ég set stórt spurningamerki við varnarlínu gestanna.Blikar komnir yfir eftir 12 mínútur.
10. mín
Herdís með misheppnaða sendingu beint á FH sem getur sótt hratt en sóknin rennur út í sandinn.
9. mín
FH fær horn en Blikar skalla frá.
8. mín
Andrea með lúmska sendingu inn í teiginn úr aukaspsyrnu á miðjum vellinum. Nia kemst í boltann en missir hann svo frá sér.
6. mín
Góð sending inn fyrir á Hrafnhildi sem tekur skotið sem varið er afturfyrir.
Líf í góðu færi inn í teignum eftir hornið. Hún reynir erfitt skot í fyrstu snertingu en skotið framhjá.
Líf í góðu færi inn í teignum eftir hornið. Hún reynir erfitt skot í fyrstu snertingu en skotið framhjá.
4. mín
Nú er Aldís tæp
Boltinn berst til Aldísar og Líf pressar stíft. Hún nær í annari tilraun að pota í boltann en FH nær valdi á honum aftur.
1. mín
TÆP!
Blikar færa boltann til baka á Herdísi sem var næstum því búin að missa boltann frá sér. Nia engu frá því að ná boltanum frá Herdísi.
Gerðist eftir svona 7 sekúndur.
Gerðist eftir svona 7 sekúndur.
1. mín
Blikar hefja leik
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Fyrri leikir liðanna
Liðin hafa mæst þrisvar á tímabilinu, Blikar hafa unnið tvo, og FH einn. Breiðablik, sem urðu Íslands -og Bikarmeistarar á síðasta tímabili urðu meistarar meistaranna í apríl með 3-1 sigri á FH sem fengu silfur í Bestu deildinni í fyrra.
FH sigraði svo 3-2 hér á Kópavogsvelli í 6. umferð deildarinnar áður en Breiðablik sótti 3-0 útisigur til Hafnarfjarðar í 15. umferð.
FH sigraði svo 3-2 hér á Kópavogsvelli í 6. umferð deildarinnar áður en Breiðablik sótti 3-0 útisigur til Hafnarfjarðar í 15. umferð.
Fyrir leik
FH
FH mistókst að búa til úrslitaleik um titilinn í síðustu umferð þegar þær fengu 4-0 skell á heimavelli gegn bikarmeisturum Þróttar.
Hafnfirðingar hafa skipst á að vinna og tapa eftir skiptingu. Í síðustu umferðunum fyrir skiptingu voru þær heldur ekki sannfærandi en þá sóttu þær fjögur stig í síðustu fjórum leikjunum.

Hafnfirðingar hafa skipst á að vinna og tapa eftir skiptingu. Í síðustu umferðunum fyrir skiptingu voru þær heldur ekki sannfærandi en þá sóttu þær fjögur stig í síðustu fjórum leikjunum.

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sterkum 1-0 útisigri á Stjörnunni í síðustu umferð. Skjöldurinn fer því á loft eftir leik í kvöld!
Annars hafa Blikar verið gríðarlega sannfærandi í efri hlutanum, þar hafa þær unnið alla leikina eftir að hafa klárað tímabilið fyrir skiptingu illa, með einu stigi í síðustu þremur leikjunum.

Annars hafa Blikar verið gríðarlega sannfærandi í efri hlutanum, þar hafa þær unnið alla leikina eftir að hafa klárað tímabilið fyrir skiptingu illa, með einu stigi í síðustu þremur leikjunum.

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna á Kópavogsvelli. Honum til aðstoðar verða þeir Breki Sigurðsson og Mikael Ívan Axelsson. Atli Björn Levy verður á milli skýlanna og Ólafur Ingi Guðmundsson verður dómarareftirlitsmaður kvöldsins.


Fyrir leik
Lokaumferðin
Deildin klárast í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 18:00.
23. október (18:00)
Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)
ÍBV - Stjarnan (Hásteinsvöllur)
Þróttur - Grindavík/Njarðvík (Pepsi - völlurinn)
23. október (18:00)
Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)
ÍBV - Stjarnan (Hásteinsvöllur)
Þróttur - Grindavík/Njarðvík (Pepsi - völlurinn)
Fyrir leik
Úrslitaleikurinn sem aldrei varð
Komiði sæl og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem verðandi Íslandsmeistarar Breiðablik, taka á móti FH. Flautað verður til leiks á slaginu 18:00.







Stórskemmtilegum fótboltaleik lokið. Breiðablik eru Íslandsmeistarar árið 2026. Til hamingju Kópavogur.
Skýrsla og viðtöl koma detta inn síðar í kvöld, ég þakka fyrir mig.