Fotbolti.net
Magnús Atlason
U21 landslið karla - Umspil EM
PEPSI völlurinn
Hvítur völlur, létt snjókoma og við frostmark. Grikkirnir hafa líklega ekki spilað í þessum aðstæðum áður.
Ísland U21
Ísland U21
1 - 1
Grikkland U21
Grikkland U21
Daníel Tristan Guðjohnsen (misnotað víti) 62'Hilmir Rafn Mikaelsson 88'1 - 01 - 190' Hilmir Rafn Mikaelsson (sjm)
Dómari: Nathan Verboomen (Belgía)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
90+6
Gríðarlega svekkjandi jafntefli staðreynd eftir magnaðar lokamínútur. Ísland var töluvert sterkari aðilinn í dag en það nægði ekki. 1-1 er niðustaðan og hreinn úrslitaleikur framundan í Grikklandi.

Viðtöl og umfjallanir detta inn seinna í dag, ég þakka fyrir mig.
Grikkland U21
90. mín
90+3

Lampros Smyrlis

Fyrir fagnið.
Grikkland U21
90. mín
Grátlegt

Hilmir Rafn Mikaelsson (sjm)

Grikkir með aukaspyrnu inn í teiginn og boltinn skoppar óþægilega fyrir Hilmi Rafn sem fær hann í sig og þaðan lekur hann í markið.
90. mín
6 mínútum bætt við.
Ísland U21
88. mín
LOKSINS

Hilmir Rafn Mikaelsson (stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson)

Ágúst Orri er enn og aftur öflugur á teignum og kemur með frábæra fyrirgjöf af endalínunni beint á kollinn á Hilmi sem á fastan skalla upp í skeytin.

Ísland komið í verðskuldaða forystu.
86. mín
Hilmir Rafn með lélegt skot beint á Botis í markinu.
84. mín
Grikkir sækja hratt og senda fyrir markið. Hlynur Þórhalls kemst í boltann með einhverri sporðdrekatæklingu og bjargar.
84. mín
Hættulegur bolti frá Daníel en Grikki skallar frá. Mjög mikilvægur skalli því fyrir aftan hann voru tveir bláklæddir.
Grikkland U21
83. mín
Gult spjald

Christos Alexiou

Vegna barnings í teignum fyrir aukaspyrnuna.
82. mín
Ágúst Orri keyrir upp kantinn en það er ýtt við honum og aukaspyrna dæmd.
Grikkland U21
80. mín
Inn Georgios Kyriopoulos
Út Christos Almyras
Grikkland U21
80. mín
Inn Anestis Mythou
ÚtGeorgios Koutsias
Ísland U21
78. mín
InnAmin Cosic
ÚtGaldur Guðmundsson
Tvöföld breyting
Ísland U21
78. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtDaníel Tristan Guðjohnsen
77. mín
Hættuleg Grísk sókn sem endar með lúmsku skoti Almyras. Lúkas hendir sér niður og ver vel.
75. mín
Daníel Tristan vinnur hornspyrnu.

Botis grípur þægilega frá Daníel Frey.
73. mín
Línurnar orðnar grænar og leikurinn kominn í gang aftur.
Ísland U21
70. mín
InnBenoný Breki Andrésson
ÚtViktor Bjarki Daðason
Og snjópása
69. mín
Dauðafæri
Frábær hornspyrna frá Daníel Frey á fjær. Davíð Helgi rífur sig lausan og hann verður að gera betur. Boltinn í hliðarnetið af mjög stuttu færi.
69. mín
Flott samspil Freys og Hlyns sem vinnur enn eina hornspyrnuna.
65. mín
Hættulegur bolti inn í teiginn úr hornspyrnu Íslands en enginn kemst í boltann sem fer í gegnum allan pakkann.
Ísland U21
63. mín
Gult spjald

Daníel Tristan Guðjohnsen

Ekki góðar mínútur fyrir Daníel.
Ísland U21
62. mín
Örugg varsla

Daníel Tristan Guðjohnsen

Daníel gengur hægt að boltanum og tekur svo laust skot í þægilegri hæð fyrir Botis sem fær draumainnkomu.

Mjög slappt víti og ennþá er markalaust en þarna var gullið tækifæri til þess að komast yfir.
61. mín
ÍSLAND FÆR VÍTI
Christos Alexiou tekur Ágúst Orra klaufalega niður við vítateigslínuna og Belginn bendir á punktinn.

Daníel Tristan yfir boltanum.
Grikkland U21
59. mín
InnLampros Smyrlis
Út Stavros Pnevmonidis
Þá getur leikurinn farið af stað aftur.
Grikkland U21
59. mín
Inn Nikolaos Botis
ÚtDimitrios Monastirlis
Markmannsskipting
56. mín
Myndaveisla
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

55. mín
Hlynur finnur Ágúst Orra í hlaupinu sem sendir svo stórhættulegan bolta fyrir markið. Snjórinn hefur eitthvað ruglað Viktor Bjarka sem skóflar boltanum framhjá markinu. Stórhættulegt færi engu að síður.

Monastirlis liggur eftir og markmannsskipting líklega á leiðinni.
53. mín
Hnitmiðuð tækling hjá Hlyni Þórhalls á Papakanellos sem var í ágætri stöðu. Boltinn af grikkanum og út í íslenskt innkast.
51. mín
Sending inn fyrir á Koutsias en hann er ekki nógu snöggur. Júlíus og Davíð ná að trufla hann og hann nær ekki nema slöku skoti á markið.
51. mín
Seinni hálfleikur hefur farið rólega af stað. Liðin að læra upp á nýtt á nýskafaðan völl.
46. mín
Farið af stað aftur
Ísland kemur seinni hálfleik af stað.
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði frá UEFA
Skot
Ísland 5-3 Grikkland
Hornspyrnur
Ísland 4-2 Grikkland
Gul spjöld
Ísland 0-2 Grikkland
45. mín
Hálfleikur
45+3
Belginn flautar til hálfleiks hér. Markalaus fyrri hálfleikur að baki en bæði lið hafa fengið sín færi. Galdur Guðmundsson átti hættulegasta færi leiksins en skotið í slánna. Tökum okkur korter.
Grikkland U21
45. mín
45+1

Antonios Papakanellos

Brýtur á Júlíusi.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
45. mín
Galdur vinnur aukaspyrnu við hornfánann.

Daníel Freyr yfir boltanum en Grikkir koma boltanum út úr teignum. En þar er Galdur sem tekur skotið í fyrsta en skotið framhjá markinu.
42. mín
Ísland fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Daníel Freyr yfir boltanum en fyrirgjöfin beint í fangið á Monastirlis sem grípur hann þægilega. Daníel setti ekki nægilegan snúning á boltann.
40. mín
Galdur kemur honum á Frey inn í teignum en Grikkirnir lesa hann og hefja sókn. Snjórinn þvælist eitthvað fyrir Kontouris sem var kominn í hættulega stöðu og Ísland vinnur boltann aftur.
38. mín
Hornspyrna hinum megin frá en spyrna Galdurs yfir allan pakkann.
37. mín
Hætta í Íslenska teignum
Lúkas hugrakkur og kemur út á móti Kostoulas og er á undan í boltann. Sóknin heldur samt áfram og endar með skoti frá Almyras sem Lúkas ver vel í horn.

Grikkir ná ekki að skapa hættu úr horninu.
35. mín
Galdur lyftir boltanum út úr teignum þar sem Daníel Tristan tekur hann á lofti. Honum tekst að halda boltanum niðri en skotið framhjá markinu. Íslendingar eru líklegri þessa stundina.
32. mín
Davíð Helgi með frábæra sendingu, sem leit fyrst út fyrir að vera hreinsun, á Viktor Bjarka. Viktor kemur honum á Ágúst sem flækist um sjálfan sig inn í teignum og Grikkir ná valdi á boltanum.

Hættuleg sókn.
28. mín
Viktor Bjarki gerir vel og vinnur hornspyrnu.

Galdur með hornspyrnuna á Daníel Tristan inn í teignum en tilraunin veik og markspyrna er niðurstaðan.
25. mín
Farið af stað aftur
Þetta tók ekki langan tíma. Vítateigslínurnar eru orðnar grænar aftur.
23. mín
Pása
Belgarnir stöðva leikinn og völlurinn verður skafaður.
Grikkland U21
23. mín
InnGeorgios Katris
ÚtNoa Alen
Alen fékk högg á sig í síðustu sókn Grikklands og getur ekki haldið leik áfram.
21. mín
Fyrirgjöf inn í teiginn á Kostolous sem enginn setti pressu á en skallinn framhjá markinu.
19. mín
SLÁIN
Galdur fær boltann og keyrir inn á teiginn. Hann vippar svo boltanum og kemst framhjá tveimur áður en hann hamrar boltanum en boltinn smellur í slánni.

Monastirlis hreyfði sig ekki. Þarna munaði litlu.
18. mín
Freyr með frábæra sendingu inn á Ágúst sem var aðeins of lengi að athafna sig og Grikkir komast í boltann.
Grikkland U21
15. mín
Peysutog

Noa Alen

Ágúst Orri tekur á rás og Noa Alen rífur í hann. Alltaf gult.
14. mín
Grikkir keyra upp vinstri kantinn og sendingin út í teiginn. Þar lúrir Pnevmonidis en skotið í íslensku vörnina.

Besta færi Grikkja hingað til.
9. mín
Hætta
Daníel Freyr með stórhættulegan bolta sem Monastirlis á í erfiðleikum með. Grikkir ná að hreinsa í horn, hinum megin frá. Úr því nær Viktor Bjarki skallinn yfir markið.
9. mín
Freyr gerir mjög vel og Ísland kemst í álitlega sókn. Grikkir komast í boltann og hreinsa í horn...
7. mín
Galdur kominn í góða stöðu en belginn dæmir brot í aðdragandanum.
3. mín
Kostoulas með hættulegan bolta inn á Pnevmonidis en Lúkas er fyrri til og kemur boltanum frá.
1. mín
Grikkir hefja leik
Grkkir koma þessu af stað.

Áfram Ísland!
Fyrir leik
Ísland bláklæddir að vana en Grikkir eru hvítklæddir. Ekki hentugasti liturinn í þessum aðstæðum, það gæti orðið erfitt að sjá þá.
Fyrir leik
Liðin gengin inn á og þjóðsöngvarnir eru framundan. Mokstur hófst klukkan 11 en ég sé ennþá meira í hvítt heldur en grænt. Þetta verður áhugavert.
Fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Byrjunarliðið komið í hús!
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Búið að skafa snjóinn af vellinum!
Mynd: Fótbolti.net - GÞ

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Íslands
Fyrir leik
Grikkland
Að fá Grikkland í umspilinu var ekki draumadrátturinn. Grikkirnir voru jafnir að stigum við Þjóðverja, með 27 stig, sem tryggðu sér á EM á markatölu.

En veðbækurnar eru óvissar en samkvæmt þeim gæti leikurinn farið á hvorn veginn sem er, þó að Grikkirnir séu taldir aðeins líklegri.
Fyrir leik
Ísland
Eftir nær fullkomnan landsliðsglugga í lok september/byrjun október tryggði Ísland sér 2. sæti riðilsins á lokadegi gluggans. Glugginn hófst á sterku 1-1 jafntefli gegn Frakklandi á heimavelli áður en Svisslendingar komu í heimsókn. Sá leikur fór 5-1 Íslandi í vil.

Þá þurfti Ísland að vinna Færeyjar í lokaleiknum og að treysta á að Frakkar tækju stig af Sviss til þess að komast upp fyrir þá. Ísland vann 2-0 sigur í Þórshöfn á meðan Frakkar unnu stórsigur á Sviss, 7-1. Þannig var umspilið tryggt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómarar leiksins koma allir frá Belgíu. Nathan Verboomen verður með flautuna, Mathias Hillaert og Maarten Toeback verða með flöggin og Wesli De Cremer verður á milli varamannaskýlanna.

Mynd: EPA
Fyrir leik
Óvenjulegur leiktími - Frítt á völlinn
Flautað verður til leiks á Pepsi-vellinum klukkan 13:00. Flóðljós vallarins uppfylla ekki kröfur UEFA og þess vegna verður flautað til leiks þegar sólin er u.þ.b. hæst á lofti. Vegna þessa óvenjulega leiktíma verður ókeypis á völlinn í boði bakhjarla KSÍ.

Fyrir leik
EM undir
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu úr Laugardal þar sem Ísland tekur á móti Grikklandi í gríðarlega mikilvægum leik. Þetta er fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti á EM, sem haldið verður í Albaníu og Serbíu næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.