Fyrir leik
Plovdiv í dag
Fyrir leik
Florian Badstübner, 35 ára Þjóðverji, verður með flautuna en hann var gerður að alþjóðlegum dómara í upphafi síðasta árs. Badstübner hefur dæmt stóra leiki í þýsku Bundesligunni og þá hefur hann einnig verið að dæma í Sambandsdeildinni á þessu tímabili. Hann var fjórði dómari á Laugardalsvelli í fyrra, þegar Ísland tók á móti Úkraínu.
Bundesligudómari

Hristo Botev leikvangurinn í Plovdiv verður ansi tómlegur í kvöld. Hann tekur tæplega 19 þúsund áhorfendur en búlgarskur fótbolti er í djúpum dal og mætingin á heimaleiki búlgarska landsliðsins hefur verið sorglega lítil.
Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem Ísland vann 3-0. En þeir sýndu mun betri leik gegn Lúxemborg. Landslið þjóðarinnar er í mikilli lægð en bráðabirgðaþjálfairnn Atanas Ribarski, þjálfari U19-landsliðsins, er enn með stjórnartaumana og klárar þessa riðlakeppni.
Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.
Fámennt á pöllunum

Staðan

Fyrir leik
Framundan er leikur Búlgaríu og Íslands. Hann hefst 19:45 að íslenskum tíma, 21:45 hér að staðartíma.
Ísland er á toppi D-riðils C-deildarinnar með átta stig og getur styrkt stöðu sína enn frekar með sigri. Ef íslenska liðið vinnur sinn leik og Eistland tapar stigum gegn Lúxemborg verður Ísland komið í afar góða stöðu í baráttunni um umspilssæti á EM.
Velkomin til Plovdiv!

Plovdiv er næststærsta borg Búlgaríu og er ein elsta borg Evrópu. Upphaf hennar má rekja til 4.000 fyrir Krists burð. Í Búlgaríu er oft talað um hana sem 'borg hinna sjö hæða'. Plovdiv er nokkuð falleg borg við fyrstu kynni og hér má sjá ýmsar minjar frá fornöld.
Íslenska landsliðið flaug á miðvikudag frá Alicante þar sem fyrstu dagar undirbúningsins fyrir leikinn fóru fram.