Leik lokið!
90. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma settar á spjaldið í þann mund sem Arnór fer illa með upplagt færi eftir skyndisókn Íslands.
87. mín
Hristo Stoichkov, Dimitar Berbatov og Stiliyan Petrov.... litla fallið á fótbolta í Búlgaríu síðustu árin.
Þetta er í raun algjör harmleikur.
Þetta er í raun algjör harmleikur.
85. mín
InnDimitar Velkovski
ÚtLukas Petkov
85. mín
Inn Ivano Pankov
ÚtIlia Gruev
82. mín
Snörp sókn Íslands endar með skoti frá Brynjólfi sem Naumov ver.
81. mín
Letilegur varnarleikur hjá Herði gefur Georgi Lazarov færi í teignum. Hann setur boltann þó víðsfjarri markinu.
79. mín
Vinnum boltann á miðjum vellinum og sett í fluggír í átt að teiginum. Boltinn inn á teiginn þar sem Brynjólfur nær skoti sem markmaður Búlgara ver. Frákastið beint á Andra sem skilar boltanum af öryggi í netið.
Þessi leikur er búinn er það ekki?
Þrenna!
Andri Lucas Guðjohnsen

78. mín
Hætta eftir hornspyrnu frá Luigi. Heimamenn ná að koma sér fyrir þó á endanum.
75. mín
Brynjólfur í færi eftir góða sókn Íslands en setur boltann í varnarmann og afturfyrir.
Sennilega fengið boltann aftur í sig því ekki fengum við hornið.

73. mín
Þessir meistarar sjá um að styðja landsliðið í Plovdiv og láta vel í sér heyra. Stemningsmenn.

72. mín
Gylfi með skot úr þröngu færi eftir undirbúning Arnórs, boltinn af fæti markmanns Búlgara í stöngina og út.
72. mín
Rúmlega 200 landsleikir að mæta til leiks þarna.
71. mín
Sjáðu sprellimarkið
71. mín
InnAron Einar Gunnarsson
ÚtDaníel Leó Grétarsson
71. mín
InnGylfi Þór Sigurðsson
ÚtÍsak Bergmann Jóhannesson
68. mín
Ísland þrýstir og þrýstir. Boltinn á Hákon fyrir utan teig sem fær tíma til að horfa yfir svæðið og þræða Andra Lucas í gegn sem klárar af fagmennsku í markið úr miðjum teignum.
Mark!
Andri Lucas Guðjohnsen (stoðsending: Hákon Arnar Haraldsson)
Ísland þrýstir og þrýstir. Boltinn á Hákon fyrir utan teig sem fær tíma til að horfa yfir svæðið og þræða Andra Lucas í gegn sem klárar af fagmennsku í markið úr miðjum teignum.
65. mín
Get tekið undir að það sé gult.
Gult spjald
Hákon Arnar Haraldsson
Skellir sér á háhest á Andrian Kraev.Get tekið undir að það sé gult.
62. mín
Inn Ivaylo Chochev
ÚtGeorgi Rusev
62. mín
InnGeorgi Lazarov
ÚtAtanas Iliev
61. mín
Hákon þarf að verja!
Atanas Iliev með skot úr teignum eftir já ágæta sókn heimamanna. Skotið þægilegt fyrir Hákon.
59. mín
6.4 milljónir... íbúafjöldi Búlgaríu. Virðing fyrir andstæðingnum og allt það. En stærðfræðidæmið er ekki að ganga upp.
Við erum þó nokkrum klössum ofar en þeir í fótbolta.
Við erum þó nokkrum klössum ofar en þeir í fótbolta.
59. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Þetta hefur verið afskaplega sannfærandi hjá strákunum okkar. Þeir þurfa að hafa afskaplega lítið fyrir hlutunum því Búlgararnir eru sjokkerandi lélegir. Alveg ömurlegir.
56. mín
Búlgaría hlýtur að vera lélegasta lið sem Ísland hefur mætt í sögunni.
— Óskar G Óskarsson (@Oskarsson07) November 13, 2026
Færeyjar voru ekki einu sinni svona lélegir þegar þeir voru uppá sitt versta
55. mín
Gult spjald
Andrian Kraev
Slær Hákon Arnar á miðjum vellinum. Rétt gult55. mín
Rólegt í Búlgaríu sem stendur.. Við getum þá fært Elvari Geir Magnússyni gleðitíðindi sem harðasti stuðningsmaður Færeyja á Íslandi. Þeir eru komnir í 2-1 í Slóvakíu.
52. mín
Ísland vinnur boltann á miðjum vellinum. Ísak setur boltann út í breiddina til hægri á Brynjólf sem neglir boltanum inn á teiginn sem fer af Emil og í netið.
Náðarhöggið?
Emil Tsenov (sjm)
Ísland vinnur boltann á miðjum vellinum. Ísak setur boltann út í breiddina til hægri á Brynjólf sem neglir boltanum inn á teiginn sem fer af Emil og í netið.
50. mín
Guðlaugur Victor gefur ódýrt horn. Heimamenn reyna að taka það hratt með EINN mann í teignum. Hákon Rafn þakkar fyrir sig og hirðir upp boltann sem skilar sér inn á teiginn.
49. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Reykur berst yfir fréttamannastúkuna. Fyrir ofan okkur er VIP-stúka og þar sitja einhverjir kóngar með rettur og bjóra. Austur-Evrópa, aldrei breytast!
47. mín
Heimamenn að ógna
Yoan Stoyanov með boltann fyrir markið frá hægri en Guðlaugur Victor hreinsar frá.
46. mín
Hákon Arnar tekið við bandinu frá Orra.
Síðari hálfleikur hafinn
Hákon Arnar tekið við bandinu frá Orra.
46. mín
InnMarin Petkov
ÚtKristiyan Balov
46. mín
Inn Brynjólfur Willumsson
ÚtOrri Steinn Óskarsson (f)
45. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Hákon Arnar Haraldsson varafyrirliði er tekinn við fyrirliðabandinu þar sem Orri er tekinn útaf.
45. mín
Hálfleikur
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Brynjólfur Willumsson er kominn í treyjuna og er í ákafri upphitun með Arnóri styrktarþjálfara. Líklegt að hann sé að mæta til leiks strax í seinni hálfleik. Meðal markahæstu manna Hollands. Erum að heyra að Orri Steinn Óskarsson verði tekinn af velli. Skiptigluggarnir að klárast svo Arnar Gunnlaugs nýtir hálfleikinn. Engin meiðsli eða neitt svoleiðis varðandi Orra.
45. mín
Þetta slútt hjá Orra. Jesús Kristur. Djöfulsins gæði í öllu múvinu
— Hörður (@horduragustsson) November 13, 2026
45. mín
Arnar Gunnlaugs hef ekki gert annað en suit up eftir þetta tweet frá Fræsarnum.
— The Tam (@TamArnarson) November 13, 2026
Enda sést það á spilamennskunni
#lookgoodplaygood #fotboltinet https://t.co/MLTpzYjIbk
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði:
Með boltann: 48% - 52%
Marktilraunir: 5-6
Skot á mark: 0-2
Heppnaðar sendingar: 211-211
Hornspyrnur: 1-0
Marktilraunir: 5-6
Skot á mark: 0-2
Heppnaðar sendingar: 211-211
Hornspyrnur: 1-0
45. mín
Sjáðu mörk Íslands úr fyrri hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Sanngjörn staða? Já það er vægast sagt. Við erum einfaldlega 10x betra lið og erum sanngjarnt yfir þrátt fyrir það að hafa ekkert endilega sýnt okkar bestu hliðar.
Tökum okkur korter og snúum aftur með síðari hálfleik.
Tökum okkur korter og snúum aftur með síðari hálfleik.
45. mín
+4
Kristiyan Balov
Hefnir sín.... á röngum manni reyndar og brýtur á Daníel Leó þeim þýska til engrar gleði.45. mín
+3
Guðlaugur Victor tekur Balov í eina netta kennslustund og slátrar honum út við hliðarlínu. Fær innkastið svo í þokkabót.
45. mín
Hálfleikur: Lúxemborg 0-1 Eistland
Maksim Paskotsi skoraði á 42. mínútu. Ef Eistar vinna ekki í kvöld þá mun Ísland innsigla toppsætið með sigri.
45. mín
FIMM mínútur í uppbótartíma hér.
Við það má bæta að Eistar eru komnir yfir gegn Lúx
Meiðslin telja drjúgt
FIMM mínútur í uppbótartíma hér.
Við það má bæta að Eistar eru komnir yfir gegn Lúx
44. mín
Hætta eftir hornið en Hákon Rafn kýlir boltann frá.
43. mín
Fyrsta horn leiksins er heimamanna
43 mínútur tók það. Iliev með skot sem fer af Daníel Leó og afturfyrir.
40. mín
Georgi Rusev..... þú ert engin Messi eða Ronaldo. Leikur inn völlinn frá hægri og á vægast sagt skelfilegt skot sem fer laaaaaangt framhjá.
40. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Enn þynnist í varnarmannaúrvalinu okkar. Stefán Teitur á meiðslalistanum og Hörður Björgvin í banni gegn Lúxemborg. Fróðlegt að sjá hvern Arnar kallar inn í hópinn. Eins og frægt er þá eigum við ekki varnarmenn á færibandi.
39. mín
Verra að það þýðir leikbann gegn Lúx
Gult spjald
Hörður Björgvin Magnússon
Hörður tekur á sig gula spjaldið og stöðvar sókn heimamanna.Verra að það þýðir leikbann gegn Lúx
36. mín
Fær hnéð á Loga í hausinn í baráttu um boltann., rangstæður í þokkabót.
Atanas Iliev blóðgaður
Fær hnéð á Loga í hausinn í baráttu um boltann., rangstæður í þokkabót.
34. mín
Boltinn fyrir markið frá hægri berst á Loga sem lætur vaða en skotið smellur í stönginni og út.
Varnarleikur Búlgara vægast sagt sérstakur.
Stangarskot!

33. mín
Andri Lucas og Orri að tengja vel við teig heimamanna. Orri finnur Andra í teignum sem setur boltann vel yfir úr hálf-færi,
31. mín
Ódýrasta aukaspyrna dagsins.
Velkov í liði heimamanna fer niður án snertingar og sá þýski aumkar sér yfir hann og flautar.

29. mín
InnArnór Sigurðsson
ÚtKristall Máni Ingason
Anna stop Íslands í leiknum. Aðeins eitt eftir + hálfleikurinn.
29. mín
Heimamenn í færi
Atanas Iliev fær boltann við markteigshorn en nær ekki að stýra honum í átt að marki.
28. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Arnór Sigurðsson er að búa sig undir að koma inn fyrir meiddan Kristal. Siggi Dúlla er kominn með appelsínugula spjaldið og ræðir við þýska fjórða dómarann.
27. mín
Kristall stendur í fæturnar utan vallar en Arnór Sig er að gera sig til á bekknum.
25. mín
Nei nei nei Kristall Máni liggur eftir á vellinum og heldur um hnéð.
Andskotinn, virðist festast í grasinu og "hyperextenda" hnéð.
Þetta lítur alls ekki vel út.
Andskotinn, virðist festast í grasinu og "hyperextenda" hnéð.
Þetta lítur alls ekki vel út.
25. mín
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Íslenska liðið hefur átt þennan leik með húð og hári og búlgarskir kollegar okkar hér í fréttamannastúkunni hrista hausinn.
Ég tel okkur þó ansi lánsama að hafa fengið þetta víti. Þegar ég sá fyrstu endursýninguna bjóst ég við því að VAR tæki dóminn til baka! En ekki ætla ég að kvarta.
Það er enn markalaust hjá Lúxemborg og Eistlandi svo við erum að tryggja okkur sigur í riðlinum eins og staðan er núna.

21. mín
Arnar hvetur menn til að halda áfram og drepa þennan leik.

Uppskrift númer eitt
Orri Steinn Óskarsson (f) (stoðsending: Hörður Björgvin Magnússon)
Hörður Björgvin hreinsar boltann af eigin vallarhelmingi sem fellur líka svona rosalega þægilega fyrir Orra sem sleppur einn í gegn og leggur boltann af öryggi í markið.Arnar hvetur menn til að halda áfram og drepa þennan leik.

20. mín
Florian Badstübner langar heim held ég. Er nánast farinn að telja innkastið inn áður en boltinn fer útaf.
Gulli Victor flýtir sér og það sleppur til.

18. mín
Það segir margt um mætingu heimamanna á leikinn að það heyrist svona 50x hærra í vallarþul þeirra en áhorfendum.
17. mín

Feikilega öruggt!
Andri Lucas Guðjohnsen
Markmaður Búlgara í rangt horn og Andri setur hann fast niður í gagnstætt horn.
16. mín
Ísland er að fá vítaspyrnu!
Orri sparkaður niður í teignum eftir fínasta spil Íslands við teig Búlgaríu.
Ódýrt en ég tek því.
Ódýrt en ég tek því.
16. mín
Fyrsta korterið nokkuð jákvætt, Ísland við stjórn í leiknum og í hvert sinn sem inngjöfin er stigin ýtum við heimamönnum fast að eigin teig. Það þarf að láta það telja.
14. mín
Mikael Egill dettur óvænt í gegn og er að komast í færi. Reynir skotið en setur boltann vel yfir með mann í bakinu,
13. mín
Kristiyan Balov með eitt stk sorglega dýfu á vellinum sá þýski lítur ekki við honum
11. mín
Mætingin er svo slöpp i Bulgariu að þeir eru með sorgarbönd. Held að við ættum ekki að kvarta.
— Hannes Friðbjarnarso (@nesirokk) November 13, 2026
10. mín
Sá þýski á flautunni ansi málglaður í upphafi leiks. Talar við menn í hverju stoppi. Nýlokið enskunámskeiði líklega.
9. mín
InnHörður Björgvin Magnússon
ÚtStefán Teitur Þórðarson
Örvfætt dúó í miðverðinum. Daníel Leó tekur sér stöðu hægra megin í varnarlínunni,
9. mín
Leikurinn af stað á ný. Stefán Teitur utan vallar og verður þar skipting á leiðinni.
7. mín
Stefán Teitur sestur á völlinn og heldur um lærið.
F*** það eru ekki góðar fréttir.
Hörður Björgvin er að gera sig kláran við bekkina.

5. mín
Fyrsta skot leiksins er heimamanna.... af svona 55 metrum. Nei það fór ekki á markið.
3. mín
Virkilega fallegt spil Íslands á hægri vængnum setur Hákon í gott svæði til fyrirgjafar. Hann reynir að koma boltanum fyrir markið en mistekst allsvakalega og setur boltann afturfyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Boltinn rúllar í Búlgaríu Það eru heimamenn sem rúlla okkur af stað fyrir ansi tómlegum velli.
Eða nei það þarf að endurtaka upphafsspyrnu leiksins. Menn full bráðir

Fyrir leik
Elvar Geir skrifar frá Plovdiv:
Er Covid komið aftur?
Vandræðalega léleg mæting á leikinn. Áhuginn á búlgarska landsliðinu er í sögulegu lágmarki og maður fann það svo sannarlega þegar maður spjallaði við heimamenn í gær. Ég talaði við mikinn fótboltaáhugamann sem vissi ekki einu sinni af þessum leik. Hann var þó mikið til í að spjalla um búlgarska liðið frá 1994.
Það eru einhverjir Íslendingar hér á vellinum og þeir létu aðeins í sér heyra áðan og hrópuðu Áfram Ísland!

Andri Lucas fyrir ofan risanöfn á lista
Andri Lucas Guðjohnsen hefur nýtt færi sín afskaplega vel á þessu tímabili. Hann hefur skorað tíu mörk úr 20 skotum á tímabilinu.
Hann er með bestu nýtingu sóknarmanna í álfunni og eru því stór nöfn fyrir neðan hann á lista. Þar á meðal eru menn eins og Raphinha og Erling Braut Haaland.
Andri, sem er í byrjunarliðinu gegn Búlgaríu í kvöld, var spurður út í nýtinguna í viðtali í vikunni.
Er tilfinningin alltaf þannig að þú sért að fara skora?
„Ég reyni alltaf að vera inni í boxinu og er klár þegar boltinn kemur. Það eru náttúrulega stórir og sterkir hafsentar í þessari deild ég reyni að vinna mig inn 2-3 metra og svæði í boxinu til að koma mér í færi. Þegar boltinn dettur fyrir mig þá er einhver tilfinning að ég sé að fara þruma honum í markið. Þannig vonandi heldur það bara áfram."

Spámenn fréttamannastúkunnar í Plovdiv
Elvar Geir Magnússon
Hendum 1-3 á þetta. Orri Steinn Óskarsson með þrennu.
Sæbjörn Steinke
Íslenskur sigur og fagmannlegur 0-2. Orri og Andri eru funheitir og fara ekki úr markaskónum.
Valur Páll Eiríksson
Þægilegt 0-3. Andri og Orri skora sitthvort markið og svo kemur eitt lúmskt bakvarðarmark frá Loga Tómassyni.

Logi klár í slaginn

Fyrir leik
Sex leikmenn Íslands á hættusvæði
Sex leikmenn í íslenska landsliðshópnum eiga á hættu að vera í banni gegn Lúxemborg á mánudag vegna uppsafnaðra áminninga.
Fjórir af þeim eru í byrjunarliðinu gegn Búlgaríu í kvöld og verða í banni á mánudag fái þeir gult í Plovdiv.
Það eru markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson, varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson og miðjumennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson.
Ísak Snær Þorvaldsson og Hörður Björgvin Magnússon sem byrja meðal varamanna eru einnig á hættusvæði.

Strákarnir okkar mættir á leikvanginn
Fyrir leik
Þrjár breytingar
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska liðsins, gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Eistlandi í síðasta mánuði.
Kristall Máni Ingason kemur inn fyrir Mikael Neville Anderson og Mikael Egill Ellertsson kemur inn fyrir Gylfa Þór Sigurðsson. Við það færist Hákon Arnar Haraldsson inn á miðsvæðið með Ísaki Bergmanni Jóhannessyni og Mikael er úti hægra megin.
Kristall er að spila sinn ellefta landsleik og þann fyrsta í byrjunarliði í keppnisleik.
Þá kemur Logi Tómasson inn fyrir Hörð Björgvin Magnússon í varnarlínu Íslands. Logi er í vinstri bakverði, þeir Daníel Leó Grétarsson og Stefán Teitur Þórðarson eru í hjarta varnarinnar og Guðlaugur Victor Pálsson er í hægri bakverði.
Hákon Rafn Valdimarsson er á sínum stað í markinu og þeir Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson eru frammi.

Svona er byrjunarlið Íslands

Fyrir leik
„Hann er eini leikmaðurinn sem er ekki alveg 100% klár“
Mikael Anderson er tæpur fyrir leik. Mikael hefur ekki spilað með félagsliði sínu, AGF, síðustu vikur. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðuna á Mikael á fréttamannafundi í dag.
„Það er dagamunur. Hann var varkár og tók ekki fullan þátt í æfingu í dag. Hann er eini leikmaðurinn sem er ekki alveg hundrað prósent klár, hann hefur ekkert spilað síðan við komum síðast saman. Annars er ástandið horfið bara mjög gott," sagði Arnar um stöðuna á hópnum.
„Það eru margir að koma inn í þennan glugga með blússandi sjálfstraust og líður vel. Ég man ekki eftir að hafa verið með hópinn áður í svona góðum gír."
Leikur Búlgaríu og Íslands verður 19:45 á morgun, 21:45 að staðartíma.
Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

Vill að liðið taki skref inn í fullorðinsheiminn - „Auðvitað slekkur það á ýmsum röddum líka"
Íslenska landsliðið ætlar sér að enda í efsta sæti riðilsins í Þjóðadeildinni. Fyrir leik kvöldsins gegn Búlgaríu er íslenska liðið á toppi riðilsins og getur farið mjög langt með að tryggja toppsætið með sigri á Hristo Botev leikvanginum í kvöld.
Sigur í riðlinum kæmi Íslandi upp í B-deild Þjóðadeildarinnar. Ísensk liðið er líka að spila um sæti í þriðja styrkleikaflokki í komandi drætti fyrir undankeppni EM 2028 og einnig aukna möguleika á umspilssæti fyrir næsta Evrópumót. Því fleiri stig úr leikjunum gegn Búlgaríu og Lúxemborg, því betra.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Plovdiv í gær.
Býst við því að Lúxemborg fái stig gegn Eistlandi
„Markmiðið er að vinna riðilinn. Við þurfum að passa upp á að eiga mjög góðan leik á morgun, þurfum að sinna okkar vinnu. Tilfinning mín er að Lúxemborg fái stig gegn Eistlandi og það væri súrt ef við klárum ekki okkar. Við erum að spila gegn búlgörsku liði sem kemur inn í leikinn með mikið sjálfstraust, unnu Lúxemborg sannfærandi í síðasta leik. Ég býst við erfiðum leik, eins og í öllum útileikjum í landsliðsfótbolta. Við þurfum því að vera upp á okkar besta til að geta fengið þrjú stig sem markmiðið er í leiknum," sagði Arnar á fundinum.
Sér jákvæða þróun á liði Búlgaríu eftir þjálfarabreytingu
Ef Ísland vinnur Búlgaríu og Lúxemborg nær í úrslit gegn Eistlandi þá mun Ísland tryggja sér toppsætið í kvöld.
Fyrir síðasta leik gegn Íslandi gerðu Búlgarar þjálfarabreytingu, Atanas Ribarski tók við af Aleksandar Dimitrov í miðri landsleikjatörn.
„Við unnum 3-0 heima, en ef ég á að vera hreinskilinn þá vorum við heppnir að fá ekki á okkur fyrsta markið í Reykjavík, Búlgaría fékk 1-2 góð færi áður en við skoruðum. Ég veit að allir horfa á úrslitin og dæma út frá því, en ég var ekki ánægður með fyrstu 20-25 mínúturnar í þeim leik."
„Stundum veistu ekki hvernig leikstíl nýr þjálfari kemur með, núna þekkjum við hann aðeins betur. Ég sé góða þróun á liðinu, liðið átti góðan leik gegn Lúxemborg og partur gegn okkur var góður. Það er jákvæð þróun milli leikja, en vonandi höldum við þeim hljóðlátum í leiknum."
„Sem fyrrum leikmaður þekki ég að þegar sigur næst þá líður þér eins og þú sért tíu kílóum léttari, þú færð sjálfstraust og við þurfum að passa upp á að það sjálfstraust verði ekki blússandi í byrjun leiks."
Eins og að koma heim fyrir Skagamennina
Leikvangurinn í Plovdiv er með gulu og svörtu þema. Sem Skagamaður, er gaman að sjá þetta?
„Já. Við erum líka með nokkra Skagamenn í liðinu sjálfu, manni líður eins og heima hjá sér. Völlurinn er flottur, ég var smá hræddur við að koma hingað bara út af ástandinu sem við fengum að kynnast úti í Eistlandi. Völlurinn er virkilega góður og því engar afsakanir að eiga ekki góðan leik á morgun."
Myndi slökkva í ýmsum röddum
Finnur þú aukna pressu á þér út frá því hvernig þú ákvaðst að höndla agamálið í síðasta glugga?
„Nei, mér finnst alltaf geggjuð pressu á þessu starfi og það á alltaf að vera geggjuð pressa á þessu starfi. Pressan sem ég set á sjálfan mig er mikil, við þurfum að klára þetta verkefni núna."
„Ég var óánægður, og strákarnir örugglega líka, með Úkraínu leikinn í fyrra. Þá höfðum við tækifæri á að komast í umspil. Það er staðreynd að í okkar íþrótt, og öllum íþróttum, þá er erfiðasti hjallinn að fara úr sæti tvö í sæti eitt og klára málin; hvort sem það er að vinna bikara eða annað. Við þurfum að læra af biturri reynslu og eina leiðin til þess er að stíga skref inn í fullorðinsheiminn eins og liðið gerði svo eftirminnilega 2014 og 2015. Við þurfum að klára þetta á morgun og mánudaginn, loka þessum glugga."
„Það er pressa sem ég set á sjálfan mig og strákana, ég set gríðarlega ábyrgð á strákana að klára þessi mál. Mér finnst allt í lagi að tala bara íslensku hvað það varðar. Ef við værum að fegra hlutina og tala í kringum þá með að segjast gera sitt besta... nei nei, við erum að fara loka þessum glugga og auðvitað slekkur það á ýmsum röddum líka. Besta leiðin til að gera það er að vinna báða leikina og þá getum við verið mjög sáttir við þetta ár," sagði Arnar.

Garðar ræðir tímann í Búlgaríu
Til þess að hita upp fyrir leik kvöldsins sló Fótbolti.net á þráðinn til Garðars Gunnlaugssonar, en hann lék um skeið í Búlgaríu og er bróðir Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara.
Fyrir leik
Búlgarar leika með sorgarbönd
Mínútu þögn verður fyrir leikinn og leikmenn búlgarska liðsins spila með sorgarbönd.
Tólf létust og 50 slösuðust í fjöldaárekstrum á hraðbraut í suðausturhluta Búlgaríu á þriðjudag. Slysin urðu í mikilli þoku nærri borginni Jambol. Lýst var yfir þjóðarsorg í kjölfarið.

Mynd frá leik Íslands og Búlgaríu á Laugardalsvelli, leik sem Ísland vann 3-0.

Viðtöl í aðdraganda leiksins
Fyrir leik
Upphitunarþáttur í hlaðvarpi
Fótbolti.net hitaði upp fyrir leikinn í sérstökum hlaðvarpsþætti sem hægt er að nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Fyrir leik
Plovdiv er næststærsta borg Búlgaríu og er ein elsta borg Evrópu. Upphaf hennar má rekja til 4.000 fyrir Krists burð. Í Búlgaríu er oft talað um hana sem 'borg hinna sjö hæða'. Plovdiv er nokkuð falleg borg við fyrstu kynni og hér má sjá ýmsar minjar frá fornöld.
Íslenska landsliðið flaug á miðvikudag frá Alicante þar sem fyrstu dagar undirbúningsins fyrir leikinn fóru fram.
Plovdiv í dag

Florian Badstübner, 35 ára Þjóðverji, verður með flautuna en hann var gerður að alþjóðlegum dómara í upphafi síðasta árs. Badstübner hefur dæmt stóra leiki í þýsku Bundesligunni og þá hefur hann einnig verið að dæma í Sambandsdeildinni á þessu tímabili. Hann var fjórði dómari á Laugardalsvelli í fyrra, þegar Ísland tók á móti Úkraínu.
Bundesligudómari

Hristo Botev leikvangurinn í Plovdiv verður ansi tómlegur í kvöld. Hann tekur tæplega 19 þúsund áhorfendur en búlgarskur fótbolti er í djúpum dal og mætingin á heimaleiki búlgarska landsliðsins hefur verið sorglega lítil.
Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem Ísland vann 3-0. En þeir sýndu mun betri leik gegn Lúxemborg. Landslið þjóðarinnar er í mikilli lægð en bráðabirgðaþjálfairnn Atanas Ribarski, þjálfari U19-landsliðsins, er enn með stjórnartaumana og klárar þessa riðlakeppni.
Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.
Fámennt á pöllunum

Staðan

Fyrir leik
Framundan er leikur Búlgaríu og Íslands. Hann hefst 19:45 að íslenskum tíma, 21:45 hér að staðartíma.
Ísland er á toppi D-riðils C-deildarinnar með átta stig og getur styrkt stöðu sína enn frekar með sigri. Ef íslenska liðið vinnur sinn leik og Eistland tapar stigum gegn Lúxemborg verður Ísland komið í afar góða stöðu í baráttunni um umspilssæti á EM.
Velkomin til Plovdiv!

Viðtöl og frekari umfjöllun væntanleg.