Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Þjóðadeildin
Laugardalsvöllur
Mjög kalt en fallegt veður
Ísland
Ísland
3 - 0
Lúxemborg
Lúxemborg
Brynjólfur Willumsson 25'1 - 0Andri Lucas Guðjohnsen (víti) 37'2 - 0Mikael Egill Ellertsson 50'3 - 0
Dómari: Marian Barbu (ROU)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Frábær gluggi hjá íslenska liðinu!!!
Vinnum þennan riðil og förum aftur upp í B-deildinni.

Það dælist inn efni frá Laugardalsvelli inná Fótbolta.net í allt kvöld. Einkunnagjöf, viðtöl og ýmislegt fleira. Þá kemur Innkast inn á hlaðvarpsveitur þar sem fréttamenn síðunnar gera gluggann upp.
90. mín
Grikkir voru að jafna gegn Íslandi í U21 landsleiknum... stefnir í framlengingu þar.
88. mín
Gylfi með skot í utanvert hliðarnetið úr aukaspyrnu
Góð tilraun.
87. mín
Hætta í teig Lúxara eftir sendingu frá Jóni Degi en Ísland nær ekki að gera sér mat úr henni. Ísland fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Gylfi og Aron standa yfir boltanum.
Lúxemborg
83. mín
InnAiman Dardari
ÚtEnzo Dos Santos
82. mín
Erum að tryggja okkur upp í B-deildina
Og einnig að tryggja okkur í þriðja styrkleikaflokk þegar dregið verður í undankeppni EM í desember.
Ísland
78. mín
InnÍsak Snær Þorvaldsson
ÚtOrri Steinn Óskarsson (f)
Aron Einar Gunnarsson tekur við fyrirliðabandinu
76. mín
Fleiri myndir frá Hauki
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lúxemborg
75. mín
InnHamza Kadamani
ÚtVincent Thill
Lúxemborg
75. mín
Inn Timothe Rupil
Út Jayson Videira
75. mín
Eistar eru að vinna Búlgaríu 2-1.
74. mín
Lúxarar fá sína fyrstu hornspyrnu
Skot frá Vincent Thill sem fer af varnarmanni og upp á þaknetið. Önnur hornspyrna.
72. mín
U21 LANDSLIÐIÐ KOMIÐ YFIR!
Strákarnir komast nær EM. Daníel Tristan Guðjohnsen skorar.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá þeim leik
71. mín
Aron var heiðraður fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
70. mín
Florian Bohnert með skot af löngu færi. Vel yfir. Hefur verið rólegur dagur fyrir Hákon Rafn í markinu.
69. mín
Sjáðu mark Mikaels Egils
68. mín
Ísak Bergmann með skottilraun af löngu færi en beint á Moris markvörð.
Lúxemborg
66. mín
Inn Eldin Dzogovic
Út Tomas Moreira
Lúxemborg
66. mín
Inn Miguel Goncalves
Út Laurent Jans (f)
Ísland
64. mín
InnJón Dagur Þorsteinsson
ÚtMikael Egill Ellertsson
Ísland
64. mín
InnAron Einar Gunnarsson
ÚtHjörtur Hermannsson
Söguleg skipting
Aron að leika sinn 113. og síðasta landsleik. Jafnar landsleikjamet Birkis Bjarnasonar. Leikur í treyju númer 14 í dag, en ekki 17, þar sem hann hóf landsliðsferil sinn í 14. Byrjar og endar í 14.
62. mín
Orri haltrar
Orri að ógna en nær ekki skoti á markið. Skaut yfir úr þröngu færi. Orri haltrar í kjölfarið.
60. mín
Aron Einar er að gera sig kláran á varamannabekknum... einnig er verið að kalla Jón Dag Þorsteinsson úr upphitun.
56. mín
Orri Steinn með marktilraun en var ekki í jafnvægi og skotið framhjá. Rétt á undan komst Mikael Egill í hættulega stöðu en rann á vellinum.
53. mín
Gylfi með skot sem fer af varnarmanni og framhjá. Ísland fær hornspyrnu. Logi með skot eftir hornið sem fer líka í varnarmann og framhjá. Annað horn.
52. mín
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland
50. mín
MIKAEL EGILL!!!

Mikael Egill Ellertsson (stoðsending: Orri Steinn Óskarsson (f))

Tekur skotið í fyrsta eftir frábæran undirbúning Orra Steins. Orri fer illa með varnarmann Lúxemborgara og sendir knöttinn á Mikael Egil sem er einn í teignum.

Orri svo sannarlega maðurinn á bak við mörkin þrjú. Átti sláarskotið, fékk vítið og lagði svo upp þetta mark.
50. mín
Logi Tómasson með skot úr teignum en boltinn beint á Moris sem tekur boltann í fangið.
48. mín
Var boltinn inni eftir skot Orra í fyrri hálfleik?
47. mín
Myndir: Andri Lucas skoraði úr víti í fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

46. mín
Seinni hálfleikur er kominn í gang
Kristian Hlynsson er kominn vinstra megin og Gylfi á miðsvæðið. Brynjólfur og Orri Steinn fremstu menn.
Ísland
46. mín
InnKristian Hlynsson
ÚtHákon Arnar Haraldsson
Tvöföld í hálfleik
Ísland
46. mín
InnGylfi Þór Sigurðsson
ÚtAndri Lucas Guðjohnsen
Það var eitthvað að angra Andra.
45. mín
Hálfleikur
Myndir: Brynjólfur skallaði boltann inn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

45. mín
Hálfleikur
Gullkynslóðin heiðruð
Hópurinn sem fór á EM 2016 er heiðraður í hálfleik. Gamla bandið að leika fyrir dansi í hálfleikssýningunni. Alvöru ævintýri á EM í Frakklandi þar sem við komumst alla leið í 8-liða úrslitin.
45. mín
Hálfleikur
Hversu stór verður sigur Íslands?
Við höfum ekki verið frábærir en verið góðir og fagmannlegir, segir Eiður Smári Guðjohnsen í hálfleik á Sýn Sport. Það sé bara spurning fyrir seinni hálfleikinn hversu stór sigur Íslands verður að lokum.

Kári Árnason segir Brynjólf Willumsson hafa verið frábæran og sé að spila sinn langbesta leik í bláu treyjunni.
45. mín
Hálfleikur
Eitthvað að trufla Andra Lucas?
Spurning hvort Andri Lucas verði tekinn af velli í hálfleik. Er eitthvað að ræða við sjúkraþjálfarana þegar gengið er til búningsklefa.
45. mín
Hálfleikur
HÁLFLEIKSTÖLFRÆÐI (Við erum svooo miklu betri)
Með boltann: 55% - 45%
Marktilraunir: 14-1
Skot á mark: 8-0
Sóknir: 25-4
Hornspyrnur: 4-0
Heppnaðar sendingar: 295-179
45. mín
Röddin tekur til máls
Páll Sævar Guðjónsson vallarþulur tilkynnir 1 mínútu í uppbótartíma. Þess má geta að Búlgarar voru að jafna gegn Eistum í 1-1. Breytir engu fyrir okkur því við erum alltaf að fara að klára okkar verkefni.
44. mín
Leikurinn róast mikið. Eins og bæði lið séu að bíða eftir því að rúmenski dómarinn flauti til hálfleiks og menn geti hlýjað sér.
42. mín
Gylfi Þór Sigurðsson er að hita upp með Arnóri styrktarþjálfara. Einhver á miðsvæðinu væntanlega eitthvað tæpur og Gylfi gerir sig kláran ef hann þarf að koma inná.
40. mín
Svo bregðast krosstré
Andri Lucas með vinstrifótarskot úr D-boganum en hittir boltann illa. Vel framhjá og yfir!
39. mín
Orri og Mahmutovic eitthvað að kýtast og Orri er ósáttur. Rúmenski dómarinn mætir og heldur fund. Stillir til friðar. Allir vinir að lokum.
Ísland
37. mín
Vítaskyttan Andri Lucas! Bogalistin 10/10

Andri Lucas Guðjohnsen

Andri Lucas skorar úr vítaspyrnunni. Setur boltann á mitt markið en markvörður Lúxara skutlar sér til hliðar.

Andri nálgast pabba sinn, Eið Smára, í markaskorun fyrir Ísland!
36. mín
VÍTI! ÍSLAND FÆR VÍTI!
Hendi á Florian Bohnert. Er með hendina úti og kemst í veg fyrir sendingu Orra í teignum.
35. mín
Algjörir yfirburðir
Orri Steinn Óskarsson svo nálægt því að skora eftir frábæra sókn en Moris nær að verja glæsilega! Í endursýningum frá sláarskotinu hans Orra áðan sést að Moris varði boltann upp í slána, náði að koma fingurgómunum í boltann.

Ísland er langbesta liðið í þessum riðli, leikur enginn vafi á því að við eigum ekki heima í þessari C-deild. Yfirburðirnir í þessum leik hafa verið algjörir. Við erum á leiðinni í B-deildina og förum vonandi aldrei aftur niður í C-draslið.
33. mín
Landsliðið spilar í ullarfatnaði frá 66°Norður
Íslenska landsliðið spilar í ullarfatnaði frá 66°Norður gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld.

„KSÍ leitaði til okkar í dag fyrir leikinn á Laugardalsvelli hvort mögulegt væri að landsliðsmenn fengu ullarnærföt til að spila í vegna mikils kulda. Við vorum fljót að græja ullarfatnað fyrir hópinn. Rétti fatnaðurinn gerir það mögulegt að spila fótbolta, jafnvel í svona frosti. Við höfum haldið hita á þjóðinni í 100 ár og það er gaman að fá að gera það líka fyrir landsliðið okkar. Áfram Ísland,“ segir Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi.

Landsliðið spilar landsleikinn í ljósum ullarnærfötum sem bera heitið Básar.


Landsliðsmenn ánægðir með sendinguna af ullarnærfötum frá 66°Norður. Myndin var tekin í dag á Hilton Nordica þar sem landsliðið dvelur.
31. mín
Mikið talað um Andra Lucas og Orra Stein. En við eigum svo sannarlega fleiri sjóðheita sóknarmenn. Brynjólfur er meðal þeirra leikmanna sem hafa skorað mest í hollensku úrvalsdeildinni. Ekki amalegt.
28. mín
BRYNJÓLFUR MEÐ STANGARSKOT!
Svo nálægt því að skora sitt annað mark og annað mark Íslands. Boltinn í stöngina.
Ísland
25. mín
ÍSINN ER BROTINN!!!!!

Brynjólfur Willumsson (stoðsending: Orri Steinn Óskarsson (f))

Eða var þetta mark Orra Steins???

Orri með HÖRKUSKOT sem fer í slána og niður, mögulega innfyrir línuna? Skiptir allavega ekki máli því Brynjólfur mætti eins og gammur og skallaði boltann inn.
24. mín
Mikael Egill flaggaður rangstæður
Gulli Victor með sendinguna upp hægra megin.
22. mín
Hákon með skot
Kemur sér rétt inn í vítateiginn og tekur skotið. Frekar máttlítið. Vantar aðeins meiri kraft í skottilraunirnar okkar og þá hafa öll skotin verið nánast beint á Moris markvörð.
21. mín
Völlurinn fær góða dóma frá UEFA
"The pitch is excellent" segir á vefsíðu evrópska fótboltasambandsins. Rós í hnappagat Kidda vallarstjóra og hans teymis. Hann tók á sig næturvakt og var með dýnu í Baldurshaga til að völlurinn yrði í eins góðu ástandi og mögulegt er.
19. mín
Eftir mikla ákefð og ógn í upphafi leiks hefur þetta aðeins dottið niður hjá íslenska liðinu. Eins og oft vill verða. Þessi leikur snýst líka um þolinmæði.
16. mín
Haukur Gunnarsson ljósmyndari er vel klæddur í Laugardalnum.
Klæddur í flís ofaná flís ofaná flís toppað með vetrarúlpunni hans. Keypti sér hitasokka og ‘hand-warmers’ til að lifa leikinn af. Fagmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

15. mín
Lúxarar í sjaldséðri sókn og allt galopnast. Logi Tómasson kemur boltanum í burtu. Lúxemborg hefur ekki skorað mark síðan í fyrstu umferð riðilsins.
14. mín
Leikræn tilþrif
Vincent Thill lætur sig falla með tilþrifum eftir viðskipti við Hjört Hermannsson. Rúmenski dómarinn fellur í gildruna og veitir Hirti tiltal.
13. mín
Eistar 1-0 yfir gegn Búlgörum
Patrik Kristal með markið á 8. mínútu. Eistar jafna okkur að stigum en við erum með miklu miklu betri markatölu svo jafntefli dugar alltaf Íslandi til að vinna riðilinn. En við viljum sigur.
12. mín
Hákon með hornspyrnuna en fyrirgjöfin fór yfir allt og alla. Enginn náði til boltans sem rúllaði síðan rólega útaf hinumegin við stöngina.
11. mín
Ísland fær fyrstu hornspyrnu leiksins
Ísland sækir og sækir og vinnur hornspyrnu. Okkar lið ræður lögum og lofum.
10. mín
Aukaspyrna Hákonar varin
Hákon Haralds tók aukaspyrnuna og náði skoti á rammann. Frekar máttlítið og beint á Moris markvörð.
9. mín
Kemur markið núna?
Brynjólfur Willumsson tekinn niður í D-boganum og Ísland fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
8. mín
Íslenskt mark liggur í loftinu
Ísland vill fá óbeina aukaspyrnu, markvörðurinn tekur boltann upp í teignum. Ekkert dæmt. Stuttu seinna á Ísland tvær marktilraunir með stuttu færi. Moris varði frá Mikael Agli og svo átti Hákon skot yfir.
5. mín
Fyrsta skotið
Brynjólfur Willumsson, markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar, tekur boltann á lofti eftir fyrirgjöf frá Orra en beint á Moris í marki Lúxemborgar. Ísland ógnar vel hér í upphafi leiks.
3. mín
Orri að ógna og á svo fyrirgjöf sem endar í höndunum á Anthony Moris, markverði Lúx. Ísland fer svo í aðra sókn strax á eftir en varnarmaður kemst fyrir sendingu Mikaels Egils.
2. mín
Hjörtur fær á sig aukaspyrnu
Fer aðeins í bakið á Jayson Videira og Lúx á aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Íslands. Barátta eftir aukaspyrnuna en Ísland fær á endanum aukaspyrnu rétt við eigið mark.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang!
Við segjum Áfram Ísland og það tvöfalt því U21 liðið er að keppa um EM sæti við Grikki á sama tima. Það voru gestirnir sem hófu leikinn.
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir að baki
En áfram heldur dagskráin áður en flautað verður til leiks. Næst er mínútu þögn til minningar um Guðjón Þórðarson sjálfan. Blessuð sé minning hans.
Fyrir leik
Aron heiðraður
Liðin ganga til vallar. Það er ekki mjög fjölmennt á pöllunum. Frost, -3 gráður. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, gengur inn ásamt fjölskyldu sinni og tekur á móti innrammaðri treyju og blómvendi frá formanni KSÍ, Þorvaldi Örlygssyni.

Þvílíkur leiðtogi, þvílíkur maður.
Fyrir leik
Brynjólfur byrjar vinstra megin
Arnar Gunnlaugsson staðfesti við Sýn Sport að Brynjólfur yrði á vinstri svæðinu, en þegar við sækjum erum við með þrjá sjóðheita framherja. Mikael Egill er því áfram hægra megin.
Fyrir leik
Myndir úr upphitun
Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Eiður setur stórt spurningarmerki við að Aron byrji ekki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjörtur Hermannsson kemur inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Lúxemborg sem hefst klukkan 17.

Hjörtur var ekki í upphaflega leikmannahópnum í þessu verkefni en var kallaður inn vegna leikbanns Harðar Björgvins Magnússonar og meiðsla Stefáns Teits Þórðarsonar.

Eiður Smári Guðjohnsen er sérfræðingur í útsendingunni á Sýn Sport og finnst honum furðulegt að Aron Einar Gunnarsson byrji meðal varamanna í ljósi þess að hann hefur verið í hópnum allan tímann.

„Mér finnst það rosalega sérstakt, ekki bara því þetta er Aron Einar okkar fyrirliði í öll þessi ár. Það er bara það að leikmaður sem er ekki í hóp upphaflega komi beint inn í byrjunarliðið. Hvaða skilaboð eru það til hinna leikmannana sem eru á bekknum?" sagði Eiður Smári á Sýn.

„Manni þætti eðlilegt að einstaklingur af bekknum kæmi inn í byrjunarliðið og leikmaður utan hóps kæmi inn á bekkinn. Það ætti að vera eðlileg þróun. Arnar tekur þessa ákvörðun, við völdum hann sem landsliðsþjálfara og þurfum að standa með honum. En ég set stórt spurningarmerki við þetta."

Kári Árnason er einnig í útsendingunni og segir ljóst að Arnar sé meira að hugsa um áhrif Arons Einars utan vallar en innan þegar hann velur hann.

„Hann hefur sagt að hann vilji hafa hann í hópnum, hann hefur ekkert endilega sagt að hann sé í hópnum til að spila. Hann staðfestir það með þessu vali," sagði Kári.

Hvað segir Arnar Gunnlaugsson?
Arnar fór í viðtal við Val Pál Eiríksson fyrir leikinn og hann útskýrði þar pælingu sína varðandi það að Hjörtur væri í byrjunarliðinu en ekki Aron.

„Það spyrja vafalítið sig margir af hverju Hjörtur hafi ekki verið í hópnum en komi beint í byrjunarliðið. Ég hefði alltaf hugsað mér að Aron yrði í því hlutverki í þessum glugga að hann kæmi inn til að loka leikjum, með sína kunnáttu, reynslu og visku. Mér fannst ekki ástæða til að breyta því. Hjörtur er í góðu standi, búinn að spila mikið fyrir Gautaborg og þar sem við erum með háa ákefð frá upphafi taldi ég hann betri kost til að starta," sagði Arnar Gunnlaugsson.
Fyrir leik

Fyrir leik
Aron heiðraður fyrir leik - EM liðið 2016 í hálfleik
Á sjónvarpsskjá í fréttamanna-aðstöðunni sést dagskrá í kringum leikinn. Þar sést að Aron Einar Gunnarsson verður formlega heiðraður fyrir leikinn og í hálfleik verður EM 2016 hópurinn sérstaklega heiðraður.
Fyrir leik
Númer 14 í fyrsta leiknum, númer 14 í síðasta leiknum
Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Binni Willums meðal byrjunarliðsmanna
Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands hefur verið opinberað
Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason sem byrjuðu í 5-0 sigri Íslands í Búlgaríu eru á meiðslalistanum. Arnar Gunnlaugsson gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu. Hjörtur Hermannsson og Brynjólfur Willumsson koma inn í liðið.
Fyrir leik
Svona byrjar Ísland
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Sorgarbönd og þögn í mínútu
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur


Guðjón Þórðarson lést aðfaranótt föstudags, 71 árs gamall. Guðjón þjálfaði meðal annars íslenska landsliðið með frábærum árangri. Íslenska landsliðið mun leika með sorgarbönd gegn Lúxemborg og þá verður mínútuþögn fyrir leikinn.

Guðjón var afi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar, miðjumanns íslenska landsliðsins. Ísak segir að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefði gefið sér faðmlag þegar hann heyrði fréttirnar en þá var landsliðið í Búlgaríu.

„Við vissum þetta fyrir Búlgaríuleikinn. Arnar kom og knúsaði mig fyrir leikinn. Það er auðvitað mjög leiðinlegt að missa afa. Hann er náttúrulega goðsögn í íslenskum fótbolta. En maður þarf að vera fókusaður á verkefnið á morgun. Við þurfum að klára þetta vel. En eins og ég segi, bara leiðinlegt að missa afa og svona stóran prófíl í íslenskum fótbolta. Svona er lífið því miður," sagði Ísak á fréttamannafundi í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak að fara að leika 50. landsleikinn
Ísak er 23 ára en er að fara að leika sinn 50. landsleik. Hann segist ekki vera farinn að hugsa um að ná leikjameti í framtíðinni.

„Ég tek bara einn leik og eitt verkefni í einu og reyni að haldast heill sem lengst. Það er stórt fyrir mig að ná 50 leikjum, 23 ára. Ég tek þetta eitt skref í einu. Þá heldur þetta áfram að tikka. Núna er ég bara að reyna að hjálpa Íslandi að vinna fótboltaleiki," segir Ísak Bergmann Jóhannesson.
Fyrir leik
Vinnum ef við höldum hreinu því þeir „eru á eldi“
Mynd: KSÍ

Ísland er þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa funheitt sóknarpar í Andra Lucasi Guðjohnsen og fyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni sem hafa verið iðnir við markaskorun.

Ísak Bergmann Jóhannesson segir að það sé frábær staða að vera með þá tvo í þessum ham.

„Við þurfum ekki að hugsa um að skora mörkin. Við þurfum bara að koma boltanum eins oft á þá og hægt er. Við sem er fyrir aftan Orra og Andra. Þeir sjá um að skora. Ef við höldum hreinu þá er mjög líklegt að við vinnum fótboltaleikina því að þeir eru á eldi. Við þurfum bara að reyna að mata á eins mikið og við getum og þeir sjá um rest," sagði Ísak á fréttamannafundi í gær.

Blaðamaður Morgunblaðsins spurði á léttu nótunum hvort það væri enginn rígur á milli þeirra, eins og til dæmis hjá Salah og Mane sem virtust illa við að gefa á hvorn annan hjá Liverpool á sínum tíma.

„Þeir eru alls ekki þannig týpur. Andri lagði upp fyrir Orra á móti Lúxemborg og þetta hefur líka verið öfugt. Orri hugsar númer eitt, tvö og þrjú um liðið og Andri er nákvæmlega eins, vill að liðinu gangi sem best. Auðvitað eru þeir kannski svolítið að spá í að ná þessu markameti. En þeir eru fyrst og fremst liðsmenn og eru eiginlega glaðari þegar hinn skorar, held ég."
Fyrir leik
Ómögulegt að gera gagnrýnendum til geðs í þessum riðli
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari og Ísak Bergmann Jóhannesson miðjumaður töluðu um það á fréttamannafundi í gær að það væri erfitt að gera gagnrýnendum til geðs í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ef Ísland vinni leiki sé umræðan um að andstæðingurinn sé svo slakur en ef Ísland vinni ekki verði allt brjálað.

„Þetta er svoldið lose–lose riðill. Ef við vinnum segja allir að það skipti ekki máli því við áttum að gera það auðveldlega. Ef við töpum verður allt vitlaust. Sem betur fer eru allir strákarnir miklir fagmenn og gera sér grein fyrir stöðunni. Þeir eru fókuseraðir á því að loka þessum glugga á eins góðan hátt og mögulegt er," segir Arnar og Ísak tekur undir.

„Við þurfum náttúrulega fyrst og fremst að vera ekki að spá í utanaðkomandi hlutum. Við verðum bara að fókusa á að bæta okkur og við erum á vegferð. Við unnum 5-0 og þá var Búlgaría ekki nógu gott lið. Við erum bara að bæta okkur hægt og rólega sem lið, við erum bara að fókusa á það, við getum ekki verið að spá í einhverjum hlutum sem eru ekki í okkar stjórn. Við getum bara fókusað á að ná úrslitum og frammistöðu og við ætlum að halda því áfram," segir Ísak.

Furðulegt hvernig þeim hefur gengið
Það er ekki mikið sjálfstraust í Lúxemborgurum sem hafa tapað síðustu fjórum leikjum án þess að skora mark. Þeir hafa verið algjörlega bitlausir og veðbankar búast við mjög öruggum íslenskum sigri.

„Það er alveg furðulegt hvernig þeim hefur gengið. Það er stutt síðan við töpuðum 3-1 fyrir þeim og gerðum jafntefli á Laugardalsvelli. Í aðdraganda riðilsins hélt ég að þetta yrði lið sem færi í baráttu við okkur. Svo bara þessi blessaði fótbolti maður, sjálfstraustið hjá þeim fór til fjandans eftir leikinn gegn okkur því þeir höfðu unnið Búlgaríu, á erfiðum útivelli," segir Arnar.

„Ég býst við því að þeir spili án pressu gegn okkur, fari í svona smá 'fokk it' hugarfar ef ég leyfi mér að sletta. Verði kannski einhvern veginn villtir, byrji að pressa og vera með einhver læti. Þá er það okkar svolítið að taka á móti þeim með sterkum og aggressífum leik. Þetta er alveg fínasta lið með fínustu leikmenn en vantar það sem við höfum, toppframherja til að klára uppbyggingu sóknar."
Fyrir leik
Leiðtogi þjóðarinnar kveður
Landsliðsgoðsögnin Aron Einar Gunnarsson tekur þátt í sínum síðasta landsleik. Aron Einar getur jafnað leikjamet Birkis Bjarnasonar, fyrrum liðsfélaga síns, spili hann í leiknum.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði á fréttamannafundi að það væri þó alls ekki ljóst hvort Aron muni koma við sögu í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Líklegt byrjunarlið
Arnar var virkilega ánægður með Búlgaríuleikinn. Við giskum því á að breytingarnar á byrjunarliðinu verði aðeins tvær.

Spurning er hver verður í miðverði í stað Stefáns. Hörður Björgvin Magnússon, sem kom inn fyrir hann í Búlgaríu, verður í leikbanni. Miðað við ummæli Arnars á fréttamannafundinum í dag er útlit fyrir að Aron Einar Gunnarsson byrji á bekknum í sínu síðasta landsleikjaverkefni. Hjörtur Hermannsson og Brynjar Ingi Bjarnason voru kallaðir inn í hópinn og þá er möguleiki á að nota Guðlaug Victor Pálsson í hjarta varnarinnar. Fótbolti.net spáir því að Hjörtur komi inn í byrjunarliðið.

Fyrir leik
Frost á Fróni
Vallarstarfsmenn hafa starfað dag og nótt til að hafa Laugardalsvöll í eins góðu standi og hægt er. Hitakerfið hefur verið í fullum gangi og pulsan góða komið að góðum notum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Rúmenskir dómarar
.
Mynd: UEFA

Rúmenar munu sjá um dómgæsluna í leiknum. Aðaldómarinn heitir Marian Barbu og er 38 ára. Á síðasta tímabili dæmdi hann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, viðureign Slavia Prag og Bodö/Glimt, en það er hans eini leikur í keppninni til þessa

Aðaldómari: Marian Alexandru Barbu ROU
Aðstoðardómari 1: Mircea Mihail Grigoriu ROU
Aðstoðardómari 2: Imre Laszlo Bucsi ROU
4ði dómari: Andrei Florin Chivulete ROU
Var dómari: Adrian Sorin Costreie ROU
Aðstoðar-VARdómari: Radu Marian Petrescu ROU
Fyrir leik
Staðan

Jafntefli dugar Íslandi til að vinna riðilinn vegna öflugrar markatölu og þá er ljóst að Ísland endar alltaf í efsta sæti ef Eistland vinnur ekki Búlgaríu í leik sem fram fer á sama tíma.

Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra á morgun af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gengnum undankeppnina.
Fyrir leik
Ísland getur innsiglað sæti í B-deildinni
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á Laugardalsvelli. Ísland getur innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Það er ekki mikið sjálfstraust í Lúxemborgurum sem hafa tapað síðustu fjórum leikjum án þess að skora mark. Þeir hafa verið algjörlega bitlausir og veðbankar búast við mjög öruggum íslenskum sigri.

Epicbet er með stuðulinn 1,27 á sigur Íslands en 10,20 á að Lúxemborg vinni. Sigurlíkur Íslands eru því rúmlega átta sinnum meiri en að gestirnir fagni sigri undir flóðljósunum. Stuðullinn á jafntefli er 5,66.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.