Fotbolti.net
@fotboltinetLárus Ingi Magnússon
Lárus Ingi Magnússon
1.deild karla
Kópavogsvöllur
Logn og völlurinn iðagrænn
HK
HK
0 - 0
Selfoss
Selfoss
Dómari: Magnús Jón Björgvinsson
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
8. mín
Velkominn til leiks á Kópavogsvöll á leik HK og Selfoss í 1. deild karla. Staðan er 0-0 og fer leikurinn rólega af stað.
14. mín
Það er nákvæmlega ekkert í gangi fram til þessa. Hvorugt lið að ná að halda boltanum.
17. mín
Ibrahima var nálægt því að komast í gott færi en HK vörnin náði að komast fyrir skot hans. Vonandi að lifna yfir þessu.
18. mín
Eyþór Helgi fær boltann fyrir utan teig og tekur hann á lofti en skotið yfir Selfossmarkið.
24. mín
Eyþór Helgi Birgisson á langa sendingu innfyrir vörn Selfoss en Jóhann Ólafur markmaður gestanna er á undan Jóhanni Andra Kristjánssyni í boltann og bjargar Selfyssingum fyrir horn.
Selfoss
29. mín
Gult spjald

Peter Klancar

HK
32. mín
Gult spjald

Ívar Örn Jónsson

Fyrir heldur litlar sakir, nema ef vera skildi kröfu úr stúkunni
Selfoss
36. mín
Gult spjald

Ivar Skjerve

Fyrir brot
38. mín
Jóhann Andri Kristjánsson kemst innfyrir vörn Sellfyssinga en fer illa með ágætt marktækifæri
39. mín
Heimamenn heldur að lifna við en án þess að skapa sér veruleg tækifæri.
42. mín
Hinn kornungi Orri Sigurður Ómarsson fer illa með varnarmenn Selfyssinga en skot hans er varið.
45. mín
Það er kominn hálfleikur á Kópavogsvelli. Fyrri hálfleikur fer seint í sögubækur fyrir opin færi eða skemmtilegan fótboltaleik. Vonum að það lifni yfir þessu í seinni hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur að hefjast hér í Kópavoginum. Spurning hvort þjálfararæðurnar skili sér í betri leik. Hann getur allavega ekki versnað.
HK
47. mín
Gult spjald

Leifur Andri Leifsson

fyrir peysutog
47. mín
Selfyssingar taka aukaspyrnu frá hægri og Ivar Skjerve fær dauðafæri en skalli hans varinn á marklínu af varnarmönnum HK.
51. mín
Leikurinn stopp hér vegna meiðsla Ibrahima Nediaye og hann er borinn útaf. Sævar Þór gerir sig kláran að koma inná
Selfoss
54. mín
InnSvavar Berg Jóhannsson
ÚtIbrahima Ndiaye
55. mín
Viðar Örn Kjartansson kemst einn í gegn en Ögmundur Ólafsson markmaður HK er á undan honum í boltann. Boltinn berst svo í fætur Sævars Þórs Gíslasonar sem reynir að skjóta yfir Ögmund en skotið einnig yfir markið.
60. mín
Frábær sókn Selfyssinga. Jón Daði og Viðar Örn spiluðu sig í gegn um HK vörnina með léttum þríhyrningum en vantaði að þeir kláruðu færið.
HK
63. mín
Gult spjald

Hafsteinn Briem

Peysutog
64. mín
Selfyssingar virðast vera heldur að ná yfirhöndinni
64. mín
Viðar Örn Kjartansson kemst einn í gegn en missir boltann aðeins of langt frá sér og varnarmenn HK bjarga í horn. Ekkert varð úr hornspyrnunni.
66. mín
Birgir Magnússon fær boltann á miðjum vítateig Selfyssinga en laust skot hans er yfir markið.
68. mín
Dauðafæri hjá HK. Birgir Magnússon fær góða sendingu upp hægri vænginn, sendir frábæra sendingu fyrir markið á Eyþór Helga Birgisson en hann þrumar boltanum yfir markið af miðjum markteig
Selfoss
68. mín
InnIngi Rafn Ingibergsson
ÚtPeter Klancar
72. mín
Josep Tillen með hornspyrnu frá hægri. Jón Daði Böðvarsson stekkur hæðst í teignum en skalli hans yfir markið
HK
78. mín
InnFriðrik Þór Gunnarsson
ÚtJóhann Andri Kristjánsson
80. mín
Innkast hjá HK á miðjum vellinum. Boltinn berst til Hafsteins Briem sem á ágætt skot af löngu færi en Jóhann er rétt staðsettur í marki Selfyssinga.
85. mín
Friðrik Þór Gunnarsson kemur sér í ágætt skotfæri en skotið framhjá
Selfoss
86. mín
InnIngólfur Þórarinsson
ÚtJoseph David Yoffe
Selfoss
87. mín
Gult spjald

Svavar Berg Jóhannsson

Fyrir að láta sig falla í vítateignum
Selfoss
87. mín
Gult spjald

Stefán Ragnar Guðlaugsson

Mótmæli
88. mín
Ívar Örn Jónsson á gott skot að marki Selfyssinga en Jóhann ver vel
Selfoss
90. mín
Gult spjald

Joe Tillen

Fyrir mótmæli
Selfoss
90. mín
Rautt spjald

Joe Tillen

Stanslaus mótmæli. Virtist ekki vera búinn að jafna sig á fyrra gula spjaldinu og hafði fengið tvær aðvaranir eftir spjaldið.
90. mín
Leik lokið
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.