01.02.20 - 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lampard ósáttur: Erfitt að halda Meistaradeildarsætinu

Lampard er ekki sáttur með stjórn Chelsea eftir janúargluggann.

Mynd: Getty Images

Lampard er ekki sáttur með stjórn Chelsea eftir janúargluggann.

Mynd: Getty Images
Frank Lampard er ekki sáttur með slakt gengi Chelsea á leikmannamarkaðinum í janúar en félagið bætti ekki einum einasta leikmanni við sig í janúarglugganum.
Lampard er ekki sáttur með öll ungstirnin sem félagið missti frá sér en Tariq Lamptey til Brighton og Clinton Mola til Stuttgart.
Chelsea er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur, sex stigum á undan Manchester United og Tottenham, en eftir þennan janúarglugga telur Lampard sína menn vera lenta undir í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
„Staðreyndin er sú að af einhverjum ástæðum þá keyptum við ekki einn einasta leikmann í janúarglugganum. Ef ég skoða stöðuna í kringum okkur í deildinni þá var Man Utd að kaupa leikmann í heimsklassa," sagði Lampard.
„Sheffield United bætti frábærum leikmönnum við sig og Tottenham bætti nokkrum öflugum við hópinn. Það mun vera ansi erfitt fyrir okkur að halda þessu Meistaradeildarsæti."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |