Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. mars 2020 16:05
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Kristján Flóki með þrennu gegn Leikni F.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir F. 2 - 7 KR
0-1 Kristján Flóki Finnbogason ('3)
0-2 Kristinn Jónsson ('16)
0-3 Kristján Flóki Finnbogason ('23)
0-4 Ægir Jarl Jónasson ('26)
1-4 Kifah Moussa Mourad ('46)
1-5 Kristján Flóki Finnbogason ('57)
1-6 Ægir Jarl Jónasson ('64)
1-7 Tobias Thomsen ('66)
2-7 Tom Zurga ('73)

Kristján Flóki Finnbogason var besti maður vallarins er KR rúllaði yfir Leikni F. í Lengjubikarnum í dag.

Kristján Flóki skoraði þrennu í stórsigri KR en Íslandsmeistararnir voru komnir með fjögurra marka forystu eftir tæpan hálftíma af leiknum.

Ægir Jarl Jónsson skoraði tvisvar sinnum fyrir KR og þá gerðu Kristinn Jónsson og Tobias Thomsen sitt markið hvor.

Kifah Moussa Mourad og Tom Zurga gerðu mörk Austfirðinga.

KR er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðir Lengjubikarsins. Leiknir er aðeins með eitt stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner