fim 01. apríl 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hættir með Arsenal - „Erfiðasta vinnutengda ákvörðunin"
Mynd: Getty Images
Joe Montemurro, sem hefur þjálfað kvennalið Arsenal síðustu þrjú árin rúmlega, hefur ákveðið að hætta að þessu tímabili loknu.

Montemurro tók við Arsenal í nóvember 2017 og hann stýrði liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni 2019. Það var fyrsti deildartitill félagsins í sjö ár.

Þessi 51 árs gamli Ástrali ætlar að taka sér frí frá fótbolta og verja meiri tíma með fjölskyldu sinni.

„Þetta er erfiðasta vinnutengda ákvörðun sem ég hef tekið. Ég elska þetta starf og ég elska félagið. Ég hef verið stuðningsmaður þessa félags allt mitt líf," sagði Montemurro en hann mun hætta formlega í starfinu þann 31. maí.

Arsenal er sem stendur í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner