Fotbolti.net
01.04.21 - 15:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Ramos missir af báðum leikjunum gegn Liverpool

Ramos missir af báðum leikjunum gegn Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid og spænska landsliðsins, meiddist á kálfa í landsleikjahlénu og mun því missa af næstu leikjum.
Talið er að þessi 35 ára gamli varnarmaður verði frá í nokkrar vikur og missir hann því af báðum leikjum Real gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þá missir Ramos einnig af stórleik gegn Barcelona í toppbaráttu spænsku deildarinnar.

Ramos tók eftir meiðslunum eftir 3-1 sigur Spánverja gegn Kósovó.

Þessar fregnir hafa fengið mikla athygli enda frægt þegar Mohamed Salah meiddist eftir samskipti við Ramos í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir þremur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.