Fotbolti.net
01.04.24 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Roma fjarlægðist Meistaradeildarsæti

Stephan El Shaarawy

Stephan El Shaarawy

Canon

Mynd: Getty Images

Roma heimsótti Lecce í fjörugum leik í ítölsku deildinni í kvöld.

Bæði lið fengu dauðafæri til að skora en allt kom fyrir ekki. Patrick Dorgu fékk dauðafæri fyrir Lecce eftir rúmlega klukkutíma leik en af einhverjum ótrúlegum ástæðum tókst honum að setja boltann framhjá af stuttu færi.

Hassem Aouar fékk gullið tækifæri til að tryggja Roma sigurinn þegar Stephan El Shaarawy sendi hann einan í gegn með hælspyrnu en Aouar lét verja frá sér.

Roma er nú fimm stigum frá Meistaradeildarsæti eftir öruggan sigur Bologna gegn botnliði Salernitana fyrr í dag.

Bologna 3 - 0 Salernitana
1-0 Riccardo Orsolini ('14 )
2-0 Alexis Saelemaekers ('44 )
3-0 Charalampos Lykogiannis ('90 )

Cagliari 1 - 1 Verona
0-1 Federico Bonazzoli ('30 )
1-1 Ibrahim Sulemana ('74 )

Lecce 0 - 0 Roma

Sassuolo 1 - 1 Udinese
1-0 Gregoire Defrel ('41 )
1-1 Florian Thauvin ('44 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.