Fotbolti.net
01.04.24 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Kemst Leicester aftur á beinu brautina eftir erfiðar vikur?

Spennandi Championship-leikir í dag

Vardy fór illa með færin sín á föstudaginn.

Vardy fór illa með færin sín á föstudaginn.

Canon

Mynd: Getty Images

Í dag, á öðrum degi páska, fer fram heil umferð í ensku Championship-deildinni, og mjög spennandi leikir framundan.

Leicester og Norwich eiga fyrsta leikinn en Leicester hefur vegnað illa að undanförnu og er skyndilega komið niður í þriðja sæti. Norwich er í sjötta sæti og berst um að komast í umspilið.

Leicester var að stinga af í deildinni um tíma en tapaði öðrum leik sínum í röð á föstudaginn langa þegar liðið beið lægri hlut fyrir Bristol City 1-0. Sóknarmaðurinn reynslumikli Jamie Vardy fór illa með góð færi hjá Leicester í þeim leik.

Þetta var fimmta tap Leicester í átta síðustu leikjum í öllum keppnum og er liðið nú í þriðja sæti á eftir Ipswich sem er á toppnum og Leeds sem er í öðru sæti.

En þrátt fyrir erfitt gengi að undanförnu á Leicester leik til góða á liðin fyrir ofan og enn með örlögin í sínum höndum.
Ipswich á spennandi leik gegn Southampton í dag og í kvöld mun Leeds mæta Hull City.

+ENGLAND: Championship
11:30 Leicester - Norwich
14:00 Birmingham - Preston NE
14:00 Coventry - Cardiff City
14:00 Middlesbrough - Sheff Wed
14:00 Plymouth - Bristol City
14:00 Rotherham - Millwall
14:00 Stoke City - Huddersfield
14:00 Sunderland - Blackburn
14:00 Swansea - QPR
14:00 West Brom - Watford
16:30 Ipswich Town - Southampton
19:00 Leeds - Hull City
Leeds á leik í kvöld.

Leeds á leik í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Birmingham14+1326
3Stoke City14+526
4Swansea14+526
5West Brom14+525
6Southampton14+1524
7Wolves13+724
8West Ham13+1522
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City13-218
16Bolton14-717
17Lincoln City14-1015
18Cardiff City13-114
19Wrexham13-414
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.