Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
   fim 01. júní 2023 22:03
Elvar Geir Magnússon
Elmar: Kom ekki við höndina og ekki hægt að væla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason skoraði tvívegis fyrir KR í 3-3 jafntefli gegn Fylki í Árbænum í kvöld. Í síðasta marki leiksins var hreinsað í andlitið á honum og inn en stuðningsmenn Fylkis kölluðu eftir hendi.

„Boltinn fór beint í andlitið á mér og kom ekki við höndina, svo það er ekki hægt að væla yfir þessu. Þetta var sanngjarnt mark. Ef þetta hefði verið hendi þá gæti ég alveg viðurkennt það núna en boltinn fór í andlitið á mér," sagði Theodór Elmar.

Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  3 KR

Þetta var virkilega kaflaskiptur leikur og jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða.

„Við gefum þeim þrjú mörk á silfurfati sem er pirrandi því við vorum á köflum að spila ansi vel. Við verðum að vera samt stærri en það að bakka þegar við komumst yfir, við verðum frekar að sækja annað mark."

Hvernig er Elmar að fíla þá breytingu að spila 3-4-3 leikkerfi?

„Þetta hefur virkað vel fyrir okkur. Við þurftum á breytingu að halda og þetta hefur komið auknu jafnvægi á okkar leik. En það er ekki hægt að setja neitt út á kerfið í dag. Það voru einstaklingsmistök sem kostuðu mörkin."
Slapp
banner
banner