Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. ágúst 2022 21:05
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Joao Pedro tryggði sigur gegn Sheffield United
Hinn tvítugi Joao Pedro skoraði þrjú mörk í 27 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð.
Hinn tvítugi Joao Pedro skoraði þrjú mörk í 27 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð.
Mynd: Getty Images

Watford 1 - 0 Sheffield United
1-0 Joao Pedro ('56)


Joao Pedro gerði eina mark leiksins er Watford tók á móti Sheffield United í lokaleik fyrstu umferðar nýs deildartímabils í Championship deildinni.

Hér mættust tvö af betri liðum deildarinnar sem er talið að geti gert atlögu að toppsætunum þegar tekur að líða á tímabilið.

Heimamenn í Watford virkuðu sprækari í nokkuð lokuðum leik en eina markið kom eftir skyndisókn snemma í síðari hálfleik.

Ismaila Sarr fékk boltann þá í frábærri stöðu og var fljótur að hugsa, hann gaf boltann beint inn í vítateiginn í fyrstu snertingu þar sem Joao Pedro var mættur til að skora eftir flott hlaup.

Sheffield átti í mestum erfiðleikum með að brjóta vörn Watford á bak aftur og virtist sigur heimamanna aldrei í hættu. Verðskulduð þrjú stig í fyrstu umferð fyrir sterkt lið Watford.


Athugasemdir
banner