mán 01. ágúst 2022 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Newcastle búið að bjóða 50 milljónir fyrir Maddison
Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að Newcastle ætli ekki að gefast upp þegar kemur að því að reyna að kaupa James Maddison, sóknarsinnaðan miðjumann Leicester.


Maddison skoraði 18 mörk og gaf 12 stoðsendingar í 53 leikjum á síðustu leiktíð og hafa mörg félög sýnt honum áhuga en Leicester segir leikmanninn ekki vera til sölu.

Leicester hafnaði 40 milljón punda tilboði frá Newcastle á dögunum og sagði Brendan Rodgers knattspyrnustjóri í viðtali fyrr í dag að vinstri fótleggur Maddison, sem er réttfættur, væri einn og sér meira en 40 milljóna virði.

Nú hefur Newcastle hækkað tilboð sitt um 10 milljónir samkvæmt frétt Sky Sports en líklegt er að Leicester hafni því aftur. Talið er að 60 milljónir punda séu það minnsta sem Maddison gæti kostað.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner