Bayern setur meiri kraft í viðræður við Musiala - Newcastle fylgist með Sane - Barcelona vill Kimmich
   fim 01. ágúst 2024 22:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar Grétarsson rekinn frá Val (Staðfest) - Túfa tekur við
Arnar Grétarsson.
Arnar Grétarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur rekið Arnar Grétarsson úr starfi. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa.

Þetta eru ansi óvænt tíðindi en þau koma eftir að Valur tapaði gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

„Þetta snýst ekki um einstaka úrslit eða leiki heldur er það einfaldlega mat okkar í stjórn að við séum ekki á réttri leið með liðið og því var þessi ákvörðun tekin," segir Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals.

„Við þökkum Adda fyrir allt það sem hann hefur gert síðan hann kom til okkar og óskum honum alls hins besta."

Arnar var á sínu öðru tímabili með Val en hann tók við liðinu fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa gert flotta hluti með KA. Valur hafnaði í öðru sæti í Bestu deildinni í fyrra. Valur er núna í þriðja sæti Bestu deildarinnar, átta stigum frá toppliði Víkings. Valur á leik til góða.

Túfa tekur núna við liðinu en hann hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val og aðalþjálfari KA og Grindavíkur.

„Túfa hefur þjálfað hjá okkur áður og skilaði þá titli. Hann er frábær þjálfari og flottur karakter sem hefur haldið tengslum við félagið eftir að hann fór að þjálfa erlendis. Strákarnir hans eru í Val og hann býr hérna í hverfinu. Okkur hlakkar til að vinna aftur með Túfa sem eftir dvöl sína í flottum klúbbum erlendis kemur til baka sem enn betri þjálfari,“ segir Börkur.

Næsti leikur Vals er gegn KA á Akureyri á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner