Sölvi staðfestir tíðindin: Risa áfall fyrir okkur

Tarik gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar spilar að öllum líkindum ekki meira í Bestu deildinni á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski framherjinn Nikolaj Hansen glímir við beinmar í ökkla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við spilum ekkert alla daga upp á að komast í þriðju umferð í Meistaradeildinni

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Því oftar sem við lendum í þessari stöðu, þá lærum við meira inn á að stjórna spennustiginu sjálfir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur spilar á Elkem vellinum á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tarik gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, staðfestir tíðindin í samtal við Fótbolta.net.

Mjög slæmar fréttir af Víkingum
„Óskar ökklabrotnaði og meiddist líka á liðbandi, hann verður frá í 12-16 vikur," segir Sölvi. Það þýðir að Óskar spilar að öllum líkindum ekki meira í Bestu deildinni á þessu tímabili því að eftir nákvæmlega tólf umferðir fer 27. umferðin í Bestu deildinni fram.
„Hnéskelin á Tarik fór úr lið og hann verður frá í 9-12 mánuði."
„Þetta er því risa áfall fyrir okkur og risa áfall fyrir leikmennina sérstaklega. Virkilega erfitt fyrir þá að bíta þetta súra epli, alltaf leiðinlegt þegar menn lenda í svona meiðslum. Mér persónulega finnst þetta leiðinlegt fyrir þá að lenda í svona meiðslum og þeir eru virkilega mikilvægir fyrir liðið. Þetta eru sterkir leikmenn sem við erum að missa."
Óskar þarf ekki að fara í aðgerð en Tarik þarf að fara undir hnífinn.
Tarik að verða samningslaus
Tarik er að renna út á samning, er hann búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Víking?
„Það er svo sem ekkert sem hægt er að fara í núna, en það er rétt að hann er að renna út á samningi. Það á bara eftir að ræða þá hluti, hvernig þeir verða tæklaðir í framhaldinu."
Niko glímir við beinmar í ökkla
Hvernig er staðan á Nikolaj Hansen sem spilaði ekki í Ungverjalandi?
„Hann er með beinmar í ökklanum sem er mjög sársaukafullt, það þarf að taka einn dag í einu með það. Það þarf að fylgjast með, leiðinda meiðsli. Einn daginn getur þú verið að drepast en ert skárri hinn daginn. Hann meiddist úti á móti Györ, náði að spila svo heimaleikinn á móti Hapoel, en er svo í hakki eftir þann leik án þess að eitthvað hafi gerst. Þetta eru snúinn meiðsli sem eru að trufla hann, hann var í miklum sársauka og gat því ekki spilað seinni leikinn gegn Hapoel. Við sjáum hvernig hann verður í dag, þurfum að fylgjast með stöðunni."
Þurfa að vanda sig vel á markaðnum
Fyrr í sumar sleit Elías Már Ómarsson krossband og verður ekki meira með á þessu ári. Félagaskiptaglugginn lokar 12. ágúst. Hvernig metur þú stöðuna? Viltu fá inn mann til að þétta raðirnar eftir að tveir í viðbót detta út?
„Við lögðum upp með í mótið að vera með stóran og sterkan hóp. Það er aðeins búið að fækka í þeim hópi, en við erum ennþá með hóp sem getur fyllt heila leikskýrslu."
„Ef við ætlum að sækja styrkingu þá þarf hún að vera rétt. Við þurfum að nýta næstu daga, vanda okkur vel og sjá hvað er í boði. Leikmaðurinn þarf að passa inn í liðið, má ekki vera einhvers konar panikk-kaup og einhver tekinn inn. Prófíllinn þarf að passa inn í Víkingsliðið. Við erum með augun opin og sjáum hvort eitthvað rökrétt komi upp," segir Sölvi.
Úr sérstökum leik í deildarleik
Á morgun fer Víkingur á Akranes og mætir þar ÍA. Hvernig verður að fara í þann leik eftir að hafa spilað í forkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni?
„Það á ekki að vera neitt öðruvísi. Á ekki að vera öðruvísi, en eins og ég hef sagt áður þá er munur að spila leik úti í Evrópu. Við spilum ekkert alla daga upp á að komast í þriðju umferð í Meistaradeildinni, þetta er sérstakt og það eru miklar tilfinningar; spennustigið er hátt. Án þess að gera lítið úr deildarleikjum, þá höfum við spilað þá áður, við spilum 27 deildarleiki á ári sem er ekkert nýtt hjá okkur. Ferlið að læra stilla spennustigið okkar í þessum leikjum er enn í gangi, það hefur reynst erfitt, en því oftar sem við lendum í þessari stöðu, þá lærum við meira inn á að stjórna spennustiginu sjálfir. Við í teyminu og leikmenn þurfum að ná spennustiginu á það stig að frammistaðan verði sem best," segir Sölvi að lokum.
Leikurinn gegn ÍA hefst klukkan 14:00.

Óskar spilar að öllum líkindum ekki meira í Bestu deildinni á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski framherjinn Nikolaj Hansen glímir við beinmar í ökkla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við spilum ekkert alla daga upp á að komast í þriðju umferð í Meistaradeildinni

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Því oftar sem við lendum í þessari stöðu, þá lærum við meira inn á að stjórna spennustiginu sjálfir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur spilar á Elkem vellinum á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
