Fotbolti.net
01.09.22 - 12:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Memphis líka til Chelsea?

Memphis líka til Chelsea?
Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Barcelona eru sögð í viðræðum um þann möguleika að Memphis Depay gangi í raðir enska félagsins.

Memphis hefur sagt við Barcelona að hann vilji fara frá félaginu og samkvæmt spænska íþróttafréttamanninum Gerard Romero eru viðræður í gangi milli félaganna.
Memphis var í viðræðum við Juventus fyrr í þessum mánuði en Juve ákvað frekar að fá Arek Milik í sínar raðir.

Chelsea er að kaupa Pierre-Emerick Aubameyang frá Barcelona og þá er Marcos Alonso að fara til Barcelona frá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.